Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kári í herferð gegn mansali: Skelfilegt að börn séu seld

Kári í herferð gegn mansali: Skelfilegt að börn séu seld

Hrotta­legar sögur úr und­ir­heimum mansals vöktu óhug hjá ljós­mynd­ar­anum Kára Sverris­syni þegar hann var staddur í Suður-Afríku á dög­unum. Kári var þar við tökur á nýrri her­ferð fyrir Beauty for Freedom, sam­tök sem beita nýstár­legum aðferðum til að hjálpa þolendum kyn­lífs­þrælk­unar og mansals.

„Í gegnum tíð­ina hef ég mikið verið að rann­saka hvað hefur verið gert til að ná til fólks með óvana­legri ljós­myndun því sjálfur vill ég fara óhefð­bundnar leiðir og nota tísku­ljós­myndir til þess,“ segir Kári.

„Ég fór til Suður-Afríku, á vegum aug­lýs­inga­stofu sem ég hef áður unnið með í Þýska­landi, til að mynda verk­efni fyrir stórt alþjóð­legt fyr­ir­tæki, þegar þessi sam­tök, Beauty for Freedom, nálg­uð­ust mig. Þetta eru „non-profit“ sam­tök sem beita óvenju­legum aðferðum eins og lista­þerapíu til að berj­ast gegn man­sali og einn list­rænna stjórn­enda aug­lýs­inga­stof­unnar, sem vinnur mikið með þeim, kom á fundi með okkur þar sem þau kynntu her­ferð­ina fyrir mér og spurðu hvort ég vildi taka þátt í henni,“ segir Kári.

Hann við­ur­kennir að hann hafi misst and­litið á fund­inum. „Ég varð orð­laus þegar konan sem er í for­svari fyrir sam­tökin fór mér að segja mér frá man­sali og að þau væru búin að hjálpa yfir 3.000 manns sem hafa lent í því. Lýs­ing­arnar á því sem fólk hefur mátt þola eru skelfi­legar. Þarna er fólk sem er í stöð­ugum ótta um að börn­unum þeirra verði rænt og dæmi um að börn séu seld á unga aldri. Það er eig­in­lega varla hægt að setja sig í spor þessa fólks. Ég meina, ég vill ekki einu sinni hugsa þá hugsun til enda hvað ég gerði ef börnin mín yrðu tekin og seld, ég myndi örugg­lega ekki lifa það af, þetta er svo hræði­legt,“ segir Kári og kveðst ekki hafa verið lengi að hugsa sig þegar hann var beð­inn um að vera með. „Ég sagð­ist vera til í að lið­sinna þeim hvar og hvenær sem er og gefa mína vinnu og reynslu. Mér fannst ekki annað koma til greina.“

„Ég vill ekki einu sinni hugsa þá hugsun til enda hvað ég gerði ef börnin mín yrðu tekin og seld, ég myndi örugg­lega ekki lifa það af, þetta er svo hræði­legt.“

Að sögn Kára tóku fimmtán manns þátt í verk­efn­inu. „Við vorum fimmtán á setti og allir gáfu sína vinnu. Það voru bæði teknar ljós­myndir og videó sem tengj­ast sama lit­ríka þem­anu, en þessir sterku litir eiga að end­ur­spegla það lit­róf til­finn­inga sem þolendur mansals og kyn­lífs­þrælk­unar ganga í gegnum.

Mynd úr vænt­an­legri her­ferð Beauty for Freedom. Mynd / Kári Sverr­is­son

Það hefði alveg verið hægt að fara ein­hverja hefð­bundn­ari leið, til dæmis gera þetta í heim­ilda­mynda­stíl, en þau hjá Beauty for Freedom vildu vekja athygli á við­fangs­efn­inu með nýstár­legum hætti, meðal ann­ars í von um að ná til þeirra sem vita lítið um man­sal og vekja þá þannig til vit­undar um hvað þetta er hræði­leg glæp­a­starf­semi. Mark­miðið her­ferð­ar­innar er að reyna að stoppa man­sal með efni sem vekur athygli.“

Fer óhefðbundnar leiðir

Þetta er ekki sem Kári tekur þátt í því að vekja athygli á við­kvæmum mál­efnum. Fyrir meist­ara­verk­efni sitt við London College of Fashion bjó hann til fjórar mynda­ser­íur þar sem hann rann­sak­aði fíkn og fátækt. „Ég skoð­aði aðstæður heim­il­is­lausra og fólks með fíkni­vanda í London og gerði ekk­ert til að fegra aðstæður þeirra. Ég vildi sýna að þetta er raun­veru­legur partur af líf­inu og langt frá þeirri glansí­mynd sem er dregin upp í tískuríma­ritum,“ segir Kári, en fyrir loka­verk­efnið hlaut hann hæstu mögu­legu ein­kunn.

„Mark­miðið her­ferð­ar­innar er að reyna að stoppa man­sal með efni sem vekur athygli.“

Þá hafði Kári frum­kvæði að ljós­mynda­sýn­ingu sem var settu upp fyrir framan Hörpu í til­efni af 20 ára afmæli Krafts undir yfir­skrift­inni Skapa örin mann­inn, þar sem raun­veru­leiki ungs fólks sem hefur greinst með krabba­mein var fang­aður. Á ljós­mynd­unum sýndu þau ör, hár­leysi og aðra fylgi­fiska krabba­meins­með­ferðar.

„Í gegnum tíð­ina hef ég mikið verið að rann­saka hvað hefur verið gert til að ná til fólks með óvana­legri ljós­myndun því sjálfur vill ég fara óhefð­bundnar leiðir og nota tísku­ljós­myndir til þess og þessi her­ferð fyrir Beauty for Freedom er klár­lega í takt við það. Ég er því eng­inn nýgræð­ingur þegar kemur að svona verk­efnum, ég brenn fyrir þeim, en ég játa að mál­efni þess­arar her­ferðar er með þeim erf­ið­ari sem ég hef unnið að á ferl­inum,“ segir hann.

Að sögn Kára tóku fimmtán manns þátt í verk­efn­inu.

Spurður hvenær her­ferðin fari af stað seg­ist Kári reikna með að hún komi fyrir sjónir almenn­ings núna í sept­em­ber. En hvernig verður pen­ing­unum sem munu safn­ast varið? „Það á að nota pen­ing­ana sem safn­ast með her­ferð­inni til að halda vinnu­stofur fyrir þolendur mannsals og kyn­lífs­þrælk­unar,“ svarar hann. „Þeim hefur nú verið frestað vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins um óákveðin tíma. En þær verða haldnar, þegar öll hætta er liðin hjá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina