FólkKynntist eiginmanninum 14 ára gömul Camilla Rut prýðir nýjustu forsíðu Vikunnar. Í einlægu viðtali dregur hún ekkert undan og talar um uppeldið í krossinum, óvænta athygli, taugaáfall sem hún fékk kjölfar brúðkaups síns og söngferilinn.
FólkEltu leikmenn inn í sturtuklefana Skapti Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari, sendi á dögunum frá sér bókina Ævintýri í Austurvegi – Strákarnir okkar á HM í Rússlandi. Bókin er í dagbókarformi og lýsir upplifun Skapta á ævintýrinu sem þátttaka Íslands var á mótinu.
FólkPantar óhikað af netverslunum „Síðkjóllinn sem var sérsaumaður á mig fyrir Ungfrú Ísland hefur mesta tilfinningalega gildið enda góðar minningar sem fylgja honum. Mér finnst bakið á kjólnum sérstaklega töff og öðruvísi.“ Kristín Eva Gunnarsdóttir stundar nám í University of the Pacific í Kaliforníu auk þess að spila þar fótbola. Hún stefnir að því að starfa innan heibrigðisgeirans að námi loknu en undanfarin sjö...
FólkLíkamsrækt í náttúrunni Þegar líkamsræktarstöðvar eru ekki til staðar, fólk langar að breyta til eða finnst innileikfimi almennt leiðinleg er tilvalið að hreyfa sig úti, ekki síst þegar farið er í ferðalög. Víða í umhverfinu má finna staði sem henta vel til hreyfingar og líkamsræktar.
FólkFá konur fullnægingu? Íris Stefanía Skúladóttir hóf nýverið MFA nám í sviðslistum við Listaháskóla Íslands eftir tæplega tveggja ára langt bataferli vegna kulnunar í starfi.
FólkPraktísk og jarðtengd Þórunn María leikmynda- og búningahöfundur lærði í Frakklandi og Belgíu á síðustu öld og hefur því starfað við iðn sína um langa hríð. Hún segist ekki tengjast fötum tilfinningalegum böndum en sterkar og sjálfstæðar konur veiti sér innblástur á hverjum degi.
FólkSá sem skuldar ríkisbönkunum mest Útgerðarmaðurinn Guðmundur Kristjánsson, oftast kenndur við Brim, er sá einstaklingur sem er með mest undir, þegar kemur að skuldum við íslensku ríkisbankana, Landsbankann og Íslandsbanka.
FólkTónlist, tíska og hjólabretti- hin heilaga þrenning Steinar Fjeldsted hefur í nægu að snúast þessa dagana en hann á og rekur þrjú fyrirtæki. Steinar er mikill áhugamaður um hjólabretti en fyrir ári stofnaði hann Hjólabrettaskóla Reykjavíkur sem hlotið hefur frábærar viðtökur. Þar að auki á hann og rekur fataverslun sem og veftímarit sem fjallar um íslenska tónlist. Fljótt á litið virðast þetta vera fyrirtæki með ólíkar áherslur en Steinar segir þetta allt tengjast og mynda hina heilögu þrenningu.
Fólk„Ekkert til í okkar orðabók sem heitir stöðnun.“ Íslenskt áhugafólk um förðun ætti að kannast vel við Sigurlaugu Dröfn Bjarnadóttur og Söru Dögg Johansen, en þær hafa skipað sér í raðir okkar fremstu förðunarfræðinga. Ungar að árum stofnuðu þær fyrirtækið sitt Reykjavík Makeup School sem nýtur mikilla vinsælda, en á þeim fimm árum sem liðin eru frá stofnun skólans hafa tæplega 600 nemendur útskrifast þaðan. Velgengni þeirra má þakka metnaði og óbilandi áhuga á því sem þær gera, en þær leggja mikla áherslu á að auka sífellt þekkingu sína og færni í faginu.
FólkBarnaloppan – komin til að vera Tæpt ár er nú liðið frá því að Guðríður Gunnlaugsdóttir fluttist heim frá Danmörku, þar sem hún hafði búið undanfarin ár ásamt fjölskyldu sinni. Guðríður hefur ekki setið auðum höndum eftir heimkomuna en í maí síðastliðnum opnaði hún Barnaloppuna, markað þar sem fólk getur komið með notaðar barnavörur og látið selja þær fyrir sig. Guðríður heillaðist af „loppu“-menningu Dana en hún vonast til að Barnaloppan verði skref í átt að breyttri kauphegðun Íslendinga og umhverfisverndar.
FólkFaðir Katrínar Leu var skotinn til bana Katrín Lea Elenudóttir hlaut nýverið titilinn Miss Universe Iceland en keppnin var haldin fyrr í mánuðinum.
FólkGerði mynd í miðri #metoo byltingu Kvikmyndin Lof mér að falla eftir þá Baldvin Z og Birgi Örn Steinarsson verður frumsýnd innan skamms en myndin er byggð á sannsögulegum atburðum.