Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Líkamsrækt í náttúrunni

Þegar lík­ams­rækt­ar­stöðvar eru ekki til staðar, fólk langar að breyta til eða finnst inni­leik­fimi almennt leið­in­leg er til­valið að hreyfa sig úti, ekki síst þegar farið er í ferða­lög. Víða í umhverf­inu má finna staði sem henta vel til hreyf­ingar og lík­ams­ræktar.

Líkamsrækt í náttúrunni

Krefj­andi kirkju­tröppur
Ef þú ert á Akureyri þá er bein­línis skylda að taka æfingu í kirkju­tröpp­unum fyrir framan Akur­eyr­ar­kirkju. Sem upp­hitun má taka hring í bænum ann­að­hvort gang­andi eða hlaup­andi og fara svo nokkrar ferðir upp og niður tröpp­urnar. Eftir á er svo nauð­syn­legt að taka rólegt nið­urskokk eða ganga til að koma jafn­vægi á lík­amann.
Í Kjarna­skógi rétt fyrir innan Akureyri er einnig frá­bær aðstaða til úti­vistar. Þar er hægt að ganga, hlaupa eða hjóla eftir flottum stígum og gera svo nokkrar æfingar í lokin. Ef fólk vill gera eitt­hvað aðeins meira krefj­andi er hægt að ganga á Súlur (1213 m) suð­vestan við Akureyri. Algeng­asta leiðin er frá ösku­haug­unum en hún er um það bil 5 km og hækk­unin um það bil 880 m. Leiðin er stikuð og greið­fær en svo­lítið brött efst. Útsýnið frá Yrti-Súlu er frá­bært til norð­urs og aust­urs og þegar færi er gott er upp­lagt að ganga á Syðri-Súlu þar sem útsýnið opn­ast til suð­urs.

Göngur öflug lík­ams­rækt
Göngu­hópar spretta nú alls staðar upp eins og gorkúlur og áhug­inn á göngum hefur auk­ist mikið á und­an­förnum árum. Þeir sem hafa sjaldan fundið sig í nokk­urri lík­ams­rækt hafa fallið fyrir göng­unum og klífa nú hvert fjallið á fætur öðru eftir því sem þolið eykst og formið verður betra. Göngur eru öflug lík­ams­rækt og með því að fara í göngu­hóp fást einnig góðar leið­bein­ingar og frá­bær félags­skapur. Hvar sem þið eruð, heima eða í fríi, getið þið alltaf tekið lík­ams­rækt­a­ræf­ingu í formi göngu, hvort sem það er á fjall í nágrenn­inu eða hring í borg­inni sem þið eruð stödd í.

Afl­rauna­steinar
Víða um land er að finna afl­rauna­steina sem gaman er að spreyta sig á þegar ferð­ast er um landið. Á Djúpa­lóns­sandi á Snæ­fells­nesi eru stein­arnir Full­sterkur, Hálf­sterkur, Hálf­drætt­ingur og Amlóði. Við tóft gangna­manna­kof­ans í Ausu­bóls­hólum vestan við Þakgil í Mýrdal eru þrír afl­rauna­steinar sem nefndir eru Amlóði, Hálf­sterkur og Full­sterkur. Við eyði­býlið England í Lunda­reykja­dal er heit laug og þar liggja fjórir afl­rauna­steinar sem heita Full­sterkur, Hálf­sterkur, Amlóði og Örvasi. Í Húsa­felli í Borg­ar­firði er Kvía­hellan og þar eru líka Grái­steinn og Steðja­steinn. Í Þórð­ar­teigi í Hvít­ár­síðu eru þrír steinar sem nefndir eru Engja­steinar og greindir eru Full­sterkur, Hálf­sterkur og Amlóði. Þrír afl­rauna­steinar eru undir Kirkju­felli í landi Vill­inga­dals í Haukadal. Þeir heita Full­sterkur, Hálf­sterkur og Amlóði. Á Hval­látrum eru fjögur steina­tök og á Látra­nesi í Hval­látrum er steinn­inn Klofi. Þrjú steina­tök eru á bökk­unum fyrir ofan vör­ina Miðþröng í Arn­ar­stapa­vík í Tálkna­firði. Þau heita Full­sterkur, Miðl­ungur og Aumingi. Eig­in­lega afl­rauna­steina má finna víðar um landið en svo má líka alltaf taka hvaða steina sem er og nota til lík­ams­ræktar. (Heim­ildir: arna­stofnun.is)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una