Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Kynntist eiginmanninum 14 ára gömul

Camilla Rut prýðir nýj­ustu for­síðu Vikunnar. Í ein­lægu við­tali dregur hún ekk­ert undan og talar um upp­eldið í kross­inum, óvænta athygli, tauga­á­fall sem hún fékk kjöl­far brúð­kaups síns og söng­fer­il­inn.

Kynntist eiginmanninum 14 ára gömul

Camilla hefur með einlægni sinni og hispurslausri framkomu fangað huga og hjörtu fjölmargra Íslendinga. Á degi hverjum hleypir hún tugum þúsunda fylgjenda inn í líf sitt og sýnir bæði góðar og slæmar hliðar þess.

Í dag er Camilla í fullu starfi við það að sinna sínum miðlum, auk þess sem hún er að hefja feril í tón­list. „Dæmi­gerður dagur í mínu lífi er ekki til, ég er rosa­lega mikið út um allt að græja og gera,“ segir hún. „Ég sit á alls­konar fundum og er stöðugt að vinna mig áfram. Það kemur aldrei sá dagur að ég sé ekki með neitt á dag­skránni. Ég við­ur­kenni alveg að þetta hefur reynst mér frekar erfitt, þar sem ég er svo rosa­leg rútínu­mann­eskja. Ég vil helst hafa dag­ana mína eins, en þegar ég er ekki í fastri vinnu frá 9-5 gefur það auga­leið að það gengur ekki alltaf upp. Svo á ég líka alls­konar drauma sem ég er að vinna í að upp­fylla og verk­efni sem ég er að hrinda í fram­kvæmd, lífið kemur ekki til mín á silf­ur­fati svo ég ætla að leggja hart að mér til þess að koma mér þangað sem ég vil fara.“

Kynntist eiginmanninum fjórtán ára

Camilla og eig­in­maður hennar, Rafn Hlíð­kvist, hafa verið saman í rúm tíu ár en hún var aðeins fjórtán ára þegar þau kynnt­ust. „Við byrj­uðum sam­band okkar mjög rólega, þar sem ég var svo ung. Rabbi er fimm árum eldri en ég og bar full­komna virð­ingu fyrir því að ég væri að stíga mín fyrstu skref í þessu öllu saman. Við höfum gengið í gegnum svo margt saman á þessum tíu árum en ein­hvern veg­inn alltaf náð að halda okkar striki sem er nú aðal­lega honum og hans yfir­vegun að þakka. Ég telst seint vera yfir­veguð og róleg því eins og ég segi þá stjórn­ast ég af til­finn­ingum en hann hefur tök á mér sem eng­inn annar hefur,“ segir Camilla og bætir við að þau hafi verið óað­skilj­an­leg frá fyrstu kynnum. „Við smullum saman eins og flís við rass. Á meðan ég er algjört fiðr­ildi og til­finn­inga­vera þá er hann rólegur og jarð­bund­inn, svo það má segja að hann dragi mig niður á jörð­ina á meðan ég dreg hann upp með mér, svo við hitt­umst oft­ast á miðri leið. Samband okkar hefur verið ferða­lag og mik­ill lær­dómur fyrir okkur bæði en í gegnum allt er þessi skil­yrð­is­lausa ást sem stendur svo sterk. Við trú­lof­uðum okkur um versl­un­ar­manna­helg­ina árið 2014 en vissum ekki þá að laumu­far­þegi var um borð. Sléttri viku eftir að við trú­lof­uðum okkur komumst við að því að ég væri ólétt af litla stráknum okkar – og því­lík ham­ingja.“

Sonur þeirra, Gabríel, kom svo í heim­inn fyrir rúmum þremur árum. Camilla segir að eins klisju­kennt og það hljómi, hafi son­ur­inn komið inn í líf þeirra á hár­réttum tíma og breytt öllu til hins betra.

„Með­gangan og fæð­ingin var hryll­ingur en þetta litla barn hefur verið draumur síðan við fengum hann í hend­urnar. Ég fékk rosa­legt fæð­ing­ar­þung­lyndi og átti mjög erfitt fyrstu mán­uð­ina. Í orlof­inu hafði ég gaman af því að fylgj­ast með öðrum á sam­fé­lags­miðlum og fljót­lega kvikn­aði sú hug­mynd að kannski hefði fólk áhuga á því sem ég hefði að segja. Ég opn­aði aðgang­inn minn og var ekki með neitt sér­stakt mark­mið. Ég ein­blíndi ekki á neitt afmarkað mál­efni, heldur var ég bara að spjalla um lífið og til­ver­una. Meðal þess sem ég ræddi opin­skátt var fæð­ing­ar­þung­lyndið. Markmið mitt var samt ekki beint að peppa aðra, heldur var ég að þessu aðal­lega til að peppa sjálfa mig og ég fann fljótt að þetta var hvati til þess að laga mitt eigið hug­ar­fari. En bolt­inn fór fljótt að rúlla og fylgj­enda­talan jókst með hverjum degi. Að mörgu leyti var ég heppin, varð­andi tíma­setn­ingu og annað en á þessum tíma var ekki mikið um það að fólk væri að opna sig og segja frá per­sónu­legri lífs­reynslu fyrir framan ókunn­ugt fólk á Snapchat.“

Þetta er aðeins brot úr ítar­legu við­tali við Camillu. Lestu við­talið í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

/Texti: Margrét Björk Jóns­dóttir
/Myndir: Aldís Páls­dóttir
/Förðun: Sara Dögg Johansen með YSL

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina