Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Barnaloppan – komin til að vera

Tæpt ár er nú liðið frá því að Guðríður Gunn­laugs­dóttir flutt­ist heim frá Danmörku, þar sem hún hafði búið und­an­farin ár ásamt fjöl­skyldu sinni. Guðríður hefur ekki setið auðum höndum eftir heim­kom­una en í maí síð­ast­liðnum opn­aði hún Barna­lopp­una, markað þar sem fólk getur komið með not­aðar barna­vörur og látið selja þær fyrir sig. Guðríður heill­að­ist af „loppu“-menn­ingu Dana en hún von­ast til að Barna­loppan verði skref í átt að breyttri kaup­hegðun Íslend­inga og umhverf­is­verndar.

Barnaloppan – komin til að vera

Eftir útskrift úr við­skipta­fræði frá Háskóla Íslands árið 2011 flutt­ist Guðríður til Kaup­manna­hafnar ásamt fjöl­skyldu sinni. Við tók áfram­hald­andi nám og varð meist­ara­nám í þjón­ustu­stjórnun fyrir val­inu. „Ég var mjög ánægð með það nám, enda hef ég unnið í allskyns þjón­ustu­störfum í gegnum tíð­ina og haft mik­inn áhuga á hvernig fyr­ir­tæki geta byggt upp sterk tengsl við við­skipa­vini sína og aukið gæði þjón­ust­unnar,“ segir Guðríður. „Ég hef alltaf haft sterk tengsl við Danmörku því ég fædd­ist þar og bjó þar fyrstu árin í mínu lífi með for­eldrum mínum sem voru í námi og á því marga góða að þar.“

Á þeim árum sem Guðríður bjó í Danmörku var hún að eigin sögn dyggur aðdá­andi dönsku Loppu­mark­að­anna, eða flóa­mark­að­anna á réttri íslensku, en slíka mark­aði er að finna víðs­vegar um borg­ina allan árs­ins hring. „Danir eru meira að segja með sér­stakt loppu­daga­tal, þar sem hægt er að sjá hvar og hvenær loppu­mark­að­irnir fara fram. Ég gerði oft frá­bær kaup á þessum mörk­uðum og eftir nokkur ár í Kaup­manna­höfn var þetta bara orðið þannig að ég keypti nán­ast ekk­ert nýtt. Ég keypti fatnað, hús­gögn, skraut­vöru og fleira notað, hvort sem það var á mörk­uðum eða á Netinu. Mér fannst frá­bært að gera góð kaup á fal­legum vörum, hvort sem það voru merkja­vörur eða ekki,“ segir hún.

Meðan á nám­inu stóð velti Guðríður því mikið fyrir sér hvað hana lang­aði að gera eftir útskrift, og var alltaf með þá hug­mynd í höfð­inu að opna ein­hvers­konar „second hand“ verslun, hvort sem það væri hérna heima eða úti. Hún seg­ist fljótt hafa áttað sig á að hana lang­aði að gera eitt­hvað tengt börnum, þar sem henni hafi alltaf þótt lang­skemmti­leg­ast þegar hún sjálf fann eitt­hvað fal­legt á mörk­uðum fyrir stelp­urnar sínar tvær. „Ég elskaði ekk­ert meira en að kaupa fal­legar vörur sem voru vel með farnar fyrir lít­inn pen­ing. En það er einmitt málið með barna­vör­urnar, þær eru margar hverjar not­aðar svo rosa­lega stutt og því til­valið að gefa þeim nýtt líf hjá nýrri fjöl­skyldu. Þó svo að það sjá­ist að varan hafi verið notuð þá finnst mér það satt að segja bara sjar­mer­andi og gott að vita til þess að varan eigi sér fram­halds­líf. Ég er engan veg­inn snobbuð á svona hluti, heldur finnst mér frá­bært að það sé hægt að end­ur­nýta hlut­ina og nota þá aftur og aftur. Gott fyrir umhverfið sem og budd­una! Jörðin okkar er að fyll­ast af drasli og það er lífs­nauð­syn­legt að íhuga afleið­ing­arnar af því. Við þurfum ekki alltaf að vera að kaupa allt nýtt, við eigum að nota og nýta það sem til er. Það skiptir akkúrat engu máli þó svo að það sé ein saum­spretta í úlp­unni sem þú kaupir eða þó svo að það sé ein rispa á String-hill­unni þinni. Svo las ég líka ein­hvers staðar að magnið af vatni og eit­ur­efnum sem fer í að búa til eitt par af bláum galla­buxum sé gríð­ar­legt og að það þurfi nú alveg nokkra þvotta til þess að ná öllum þeim efnum úr flík­unum sem við kaupum.“

Þetta er aðeins brot úr við­tal­inu við Guðríði. Lestu við­talið í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

/Texti: Margrét Björk Jóns­dóttir
/Mynd: Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina