Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

UN Women á Íslandi hefur neyðarsöfnun fyrir Róhingjakonur

Lýstu upp myrkrið – þú getur hjálpað.

UN Women á Íslandi hefur neyðarsöfnun fyrir Róhingjakonur

Í sjötta sinn er ætl­unin að sam­ein­ast í yfir tvö hund­ruð löndum og dansa fyrir þolendur kyn­bund­ins ofbeldis og sýna þeim sam­stöðu. UN Women á Íslandi í sam­starfi við Sónar Reykja­vík hvetja alla til að mæta í Hörpu 16. mars kl. 12-13 og dansa gegn kyn­bundnu ofbeldi.

Stella Sam­ú­els­dóttir er fram­kvæmda­stýra UN Women á Íslandi og hefur yfir­um­sjón með verk­efnum og dag­legum rekstri UN Women á Íslandi ásamt því að vera tals­kona sam­tak­anna.

Stella Sam­ú­els­dóttir er fram­kvæmda­stýra UN Women á Íslandi og hefur yfir­um­sjón með verk­efnum og dag­legum rekstri UN Women á Íslandi ásamt því að vera tals­kona sam­tak­anna. Stella hefur meira og minna verið búsett erlendis síð­ustu 15 árin. Fyrst á Ítalíu, svo í Malaví og loks í Banda­ríkj­unum. Hún hefur víð­tæka starfs­reynslu á sviði þró­un­ar­sam­vinnu, rekst­urs og við­skipta.

Getur þú sagt okkur frá helstu við­burðum í tengslum við neyð­ar­söfn­un­ina?
„Vð hjá UN Women á Íslandi, í sam­starfi við Sónar Reykja­vík, skemmti­leg­asta við­burð árs­ins – dans­bylt­ing­una Millj­arður rís, föstu­dag­inn 16. mars kl. 12-13 í Hörpu. Í sjötta sinn ætlum við að sam­ein­ast í yfir tvö hund­ruð löndum og dansa fyrir þolendur kyn­bund­ins ofbeldis og sýna þeim sam­stöðu með gleði að vopni. Í ár til­einkum við dans­inn öllum þeim konum af erlendum upp­runa hér á landi sem þurft hafa að þola kyn­ferð­is­legt, lík­am­legt og kerf­is­bundið ofbeldi. Raddir kvenna af erlendum upp­runa verða að fá heyr­ast.”

Segðu okkur aðeins frá til­urð og fram­kvæmd söfn­un­ar­innar?
„Við hjá UN Women á Íslandi efnum til neyð­ar­söfn­unar fyrir Róhingja­konur í Bangla­dess sem hafa þurft að þola gróft ofbeldi og búa við grimman veru­leika.UN Women starf­rækir neyð­ar­at­hvarf fyrir konur í flótta­manna­búðum í Cox´s Bazar í Bangla­dess þar sem Róhingja­konur hljóta áfalla­hjálp, atvinnu­tæki­færi og öryggi gegn ofbeldi. UN Women dreifir einnig sæmd­ar­settum til kvenn­anna sem inni­heldur helstu hrein­læt­is­vörur, teppi, vasa­ljós og vist­væn kol til matseldar og upp­hit­unar.“

Stella segir að neyðin sé gríð­ar­leg og mik­il­vægt að bregð­ast við hið fyrsta. ,,UN Women vantar sár­lega fjár­magn til að veita konum kven­mið­aða neyð­ar­að­stoð með til­liti til þarfa kvenna og barna þeirra. Tryggja þarf áfram­hald­andi rekstur neyð­ar­at­hvarfs­ins, ef ekk­ert verður að gert lokar neyð­arat-hvarfið nú í apríl. Við hvetjum alla til að senda SMS-ið KONUR í 1900 (1900 kr.) og styrkja áfram­hald­andi starf­semi neyð­ar­at­hvarfs fyrir kon­urnar í flótta­manna­búð­unum.“

,,Við hvetjum alla til að leggja Róhingja­konum lið. Með því að senda SMS-ið KON-UR í 1900 styrkir þú neyð­ar­at­hvarf UN Women fyrir konur í flótta­manna-búð­unum þar sem konur hljóta áfalla­hjálp, fá sæmd­ar­sett, atvinnu­tæki­færi og öryggi gegn ofbeldi.“

Er vit­und­ar­vakn­ing á Íslandi þegar kemur að neyð­ar­kalli sem þessu?
„Miðað við þann stuðn­ingu sem við hjá UN Women á Íslandi höfum fundið und­an­farin ár eru lands­menn svo sann­ar­lega með­vit­aðir um að styðja við og vald­efla systur okkar um allan heim. Við erum einnig stolt af því að við hjá lands­nefnd UN-Women á Íslandi sendum hæsta fjár­fram­lag til verk­efna allra lands­nefnda sem eru alls fimmtán tals­ins. Sú stað­reynd er sönnun þess hve almenn­ingur hér á landi er með­vit­aður um bága stöðu kvenna og stúlkna víða um heim og mik­il­vægi þess að vald­efla konur og stúlkur sem búa við grimman veru­leika.“

Neyðin er brýn og það er ákall um hjálp, hefur þú fundið á eigin skinni hversu brýn þörfin er og að eitt­hvað sé að gert?
„Þörf Róhingja­kvenna í Bangla­dess fyrir aðstoð og stuðn­ing er þeim lífs­nauð­syn­leg líkt og við höfum séð í heims­fréttum að und­an­förnu. Um 400 þús­und konur dvelja um þessar mundir í flótta­manna­búð­unum og þora ekki að vera úti við af ótta við ofbeldi. UN Women hefur eins og er bol­magn til að fjár­magna eitt neyð­ar­at­hvarf sem mögu­lega lokar í apríl ef ekki tekst að fjár­magna áfram­hald­andi starf­semi athvarfs­ins. Konur í búð­unum búa við grimman veru­leika, eru ber­skjald­aðar fyrir ofbeldi og í bráðri hættu á að vera hnepptar í man­sal eða kyn­lífs­þrælkun en konur í neyð sem þess­ari eru ber­skjald­aðar fyrir slíku ofbeldi. Okkar hlut­verk er að vald­efla konur í aðstæðum sem þessum og útvega þeim réttu verk­færin til að vinna sig úr þessum erf­iðu aðstæðum.“

24 þús­und Róhingja­konur í búð­unum eru ýmist barns­haf­andi eða með barn á brjósti

Hver er staðan hjá Róhingja­konum í dag? Hversu alvar­leg er staðan og getur þú lýst þeirri grimmd sem þær búa við?
„Róhingja­konur eru rúm­lega helm­ingur þeirra sem dvelja í flótta­manna­búðum í Cox´s Bazar, Bangla­dess. Þær eru hvergi sjá­an­legar en konur í búð­unum dvelja að með­al­tali inni í 21-24 klst. á sól­ar­hring vegna stöðugs ótta við ofbeldi. Í neyð sem þess­ari eru konur ber­skjald­aðri en nokkru sinni fyrir ofbeldi. Stöðug hætta á ofbeldi, kyn­ferð­is­legri mis­notkun eða man­sali vofir yfir konum og stúlkum í búð­unum en nauðg­anir á konum og stúlkum hafa verið not­aðar sem mark­visst stríðsvopn í þessum blóð­ugu átökum. Nánast allar konur og stúlkur í búð­unum hafa orðið vitni að eða verið beittar grófu kyn­ferð­is­legu ofbeldi á borð við nauðgun, hópnauðgun. Í mörgum til­fellum voru konur og stúlkur látnar horfa á þegar her­menn myrtu börn þeirra eða for­eldra áður en þeir hófu að nauðga þeim. Konur og stúlkur þurfa einnig að deila sal­ern­is­að­stöðu/sturtu­að­stöðu með körlum sem gerir einnig að verkum að konur fara nán­ast ekki út fyrir heim­ilið af ótta við ofbeldi.“

UN Women á Íslandi er í góðu sam­starfi við sam­starfs­að­ila um heim allan. „Við eigum í góðu sam­starfi við svæð­is­skrif­stofur UN Women um allan heim, höf­uð­stöðvar UN Women í New York og vinnum ýmis verk­efni sam­hliða öðrum lands­nefndum UN Women sem starfa í þágu UN Women líkt og við gerum hjá íslensku lands­nefnd­inni.“

Nú hefur þú lagt málum sem þessum lið í áranna rás með ýmsum hætti, brennur þú fyrir því að láta gott af þér leiða til kvenna í neyð? Er þetta ástríða þín í starfi og leik?
„Já, það má segja að jafn­rétt­is­mál séu eitt­hvað sem ég brenn fyrir og hef gert allt frá unga aldri og þau eru í raun rauði þráð­ur­inn í öllum mínum störfum. Eftir að hafa starfað í fimm ár í Malaví, einu fátæk­asta ríki heims, sem og á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna, hef ég styrkst enn frekar í þeirri ástríðu að starfa að jafn­rétt­is­málum. Þetta er svo mik­il­vægt fyrir okkur öll, hvar sem við erum í heim­inum. Það er stað­reynd að þeim löndum sem búa við mesta jafn­réttið vegnar betur á öllum sviðum. Það er alveg nauð­syn­legt að kven­miða neyð­ar­að­stoð, því þarfir kynj­anna eru ólíkar. Hingað til hafa raddir kvenna ekki heyrst og þar af leið­andi ekki verið tekið til­lit til þeirra þarfa. Þessu þarf að breyta og það gerir UN Women.“

Stella hvetur alla þá sem geta lagt lið með ein­hverjum hætti að taka þátt og minnir á að margt smátt gerir eitt stórt. ,,Hver króna skiptir máli og við þökkum öllum velunn­urum UN Women á Íslandi kær­lega fyrir stuðn­ing­inn. Hann er ómet­an­legur. Við hlökkum til að sjá sem flesta á dans­bylt­ing­unni Millj­arður rís og dansa þar saman gegn kyn­bundnu ofbeldi.“

Milljarður rís í Hörpu

Í sjötta sinn er ætl­unin að sam­ein­ast í yfir tvö hund­ruð löndum og dansa fyrir þolendur kyn­bund­ins ofbeldis og sýna þeim sam­stöðu. UN Women á Íslandi í sam­starfi við Sónar Reykja­vík hvetja alla til að mæta í Hörpu 16. mars kl. 12-13 og dansa gegn kyn­bundnu ofbeldi. Í fyrra komu saman um fjögur þús­und manns á öllum aldri um allt land í til­efni af Millj­arður rís. Í ár verður dansað um allt land, í Reykja­vík, Akureyri, Seyð­is­firði, Reykja­nesbæ, Nes­kaup­stað, Höfn í Horna­firði, Egils­stöðum, Hvamms­tanga og Borg­ar­nesi. Sam­taka­mátt­ur­inn verður alls­ráð­andi.

Í ár til­einkar UN Women á Íslandi Milljarð rís konum af erlendum upp­runa sem þurft hafa að þola marg­þætta mis­munun og ofbeldi. Þær munu eiga sviðið í ár.

DJ Margeir heldur uppi stuð­inu líkt og und­an­farin ár og lofa UN Women óvæntum við­burðum og ógleym­an­legri upp­lifun.

Allir eru hvattir til að mæta og láta jörð­ina hrist­ast með sam­taka­mætt­inum.

Millj­arður rís er hald­inn víða um land; í Hörpu Reykja­vík, Hofi Akureyri, Hljóma­höll Reykja­nesbæ, Þrykkj­unni vöru­húsi, Félags­heim­il­inu Herðu­breið Seyð­is­firði, Íþrótta­hús­inu Nes­kaup­stað, Íþrótta­hús­inu Egils­stöðum og Félags­heim­il­inu Hvamms-tanga.

Vissir þú að?
– 96% kvenna í búð­unum segj­ast ekki hafa fengið ráðið eigin
ráða­hag.
– Um 45% Róhingja­kvenna hafa verið giftar á barns­aldri.
– 24 þús­und Róhingja­konur í búð­unum eru ýmist barns­haf­andi eða með barn á brjósti.

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við UN Women á Íslandi.
Texti / Sjöfn Þórð­ar­dóttir
Myndir / Úr einka­safni UN Women

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur