Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dreymir um að eignast ákveðna týpu af sérhæð eftir Kjartan Sveinsson arkitekt

Ólafur H. Guð­geirs­son er lög­giltur fast­eign­sali hjá Stakfell fast­eigna­sölu, mennt­aður í almanna­tengslum og mark­aðs­fræðum og með MBA-gráðu til við­bótar. Hann býr yfir ára­tuga reynslu af mark­aðs­málum og rekstr­ar­ráð­gjöf, á þrjú börn og eina stjúp­dóttur á aldr­inum 14, 16, 23 og 25. Hann er í sam­búð með Kristínu Þór­is­dóttur, við­skipta­fræð­ingi í fjár­reiðu­deild Símans. Bjó sjálfur í úthverfi Reykja­víkur í ára­tugi en er nýlega fluttur til Krist­ínar í Vest­ur­bæ­inn þar sem hann kann vel við sig.

Dreymir um að eignast ákveðna týpu af sérhæð eftir Kjartan Sveinsson arkitekt

Hvað heillar þig mest við starfið?
„Má segja að það sé tvennt: Annars vegar það að starfið krefst náinna per­sónu­legra sam­skipta við fólk sem statt er á öllum mögu­legum stöðum í líf­inu. Oft þarf að nálg­ast úrlausn mála af mik­illi var­færni og yfir­vegun, en einnig þarf maður að vera hug­mynda­ríkur og reyndur til að gera þetta vel.

Hins vegar þá er þetta starfs­um­hverfi nátengt ástand­inu í hag­kerf­inu og við verðum vör við breyt­ingar í efna­hags­málum á undan flestum öðrum. Ef eitt­hvað kemur upp sem skapar óör­yggi á mark­aðnum, til dæmis kosn­ingar, umtal um sam­drátt í ferða­þjón­ustu eða breytt gengi krón­unnar, þá finnum við strax breyt­ingar, þannig að það ýmist hægist á eft­ir­spurn eða hún herðir á sér. Fyrir mig sem rekstr­ar­hag­fræð­ing þá er þetta mjög spenn­andi.“

Geturðu lýst hefð­bundnum vinnu­degi hjá þér?
„Yfir­leitt reyni ég að vera mættur um klukkan átta, byrja á að fara yfir verk­efni vik­unnar og hvernig þeim hefur miðað áfram. Fer í að fylgja málum eftir, en ég skipu­legg verk­efnin eftir því hvort hvort um er að ræða sölu­verk­efni, öflun eigna í sölu, eft­ir­fylgni kaup­samn­inga eða mark­aðs­setn­ingu. Fæstir dagar hins vegar fara eins og lagt var upp með heldur ger­ist alltaf eitt­hvað nýtt og óvænt.“

„Fyrir mig per­sónu­lega skiptir síðan máli að hafa bíl­skúr þar sem ég get dundað mér í jepp­anum og skrif­borð fyrir tölv­una og mynda­vél­arnar, en jeppar og ljós­myndun hafa fylgt mér frá ung­lings­árum.“

Hvað er það sem þér finnst gera heim­ili að heim­ili?
„Mér finnst heim­ili þurfa að vera þannig að fólk geti gleymt skóla­tösku á gang­inum, hengt jakka á stól eða skilið eftir peysu í sóf­anum án þess að allt liti út fyrir að vera á öðrum end­anum. Það sem ég á kannski við er að heim­ili megi að mínu viti ekki vera yfir­hönnuð og stíliseruð. Fyrir mig per­sónu­lega skiptir síðan máli að hafa bíl­skúr þar sem ég get dundað mér í jepp­anum og skrif­borð fyrir tölv­una og mynda­vél­arnar, en jeppar og ljós­myndun hafa fylgt mér frá ung­lings­árum.“

Getur þú líst þínum stíl?
„Á erfitt með það en galla­buxur, skyrta og jakki er það sem ég vel mér helst ef það segir eitt­hvað.“

Áttu þinn upp­á­halds­arki­tekt?
„Upp­á­halds­arki­tekt­inn minn er Kjartan Sveins­son, af nokkrum ástæðum. Eignir eftir hann eru yfir­leitt ein­faldar, hann raðar saman stofum og eld­húsi þannig að það er auð­velt að breyta eftir kröfum nútím­ans og hann er snill­ingur í að leyfa birtu að njóta sín sem allra best. Arki­tektar í dag nýta vissu­lega plássið betur en Kjartan gerði, en mig dreymir engu að síður um að eign­ast ákveðna týpu af sér­hæð eftir hann.“

Áttu þinn upp­á­halds­hönnuð?
„Ég held mjög upp á danska hönn­uði eins og Börge Mogensen og Lois Poulsen. Ég á sófa eftir Börge Mogensen, en ég á reyndar líka tvo íslenska stóla frá því um, 1970 sem ég lét gera upp fyrir nokkrum árum. Veit því miður ekki hver hann­aði þá en myndi gjarnan vilja kom­ast að því.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til?
„Mig langar í stóla sem heita Mogensen 2204, en veit ekki hvort ég kem nokkurn tíma til með að vera í hús­næði þar sem hægt væri að koma slíkum gripum fyrir svo vel færi.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn?
„Mér finnst bláir tónar yfir­leitt fal­legir, sam­an­ber sixties-stól­ana mína, en ég held líka mjög upp á lit­inn sem er á vel not­uðu brúnu leðri.“

Ólafur H. Guð­geirs­son er lög­giltur fast­eign­sali hjá Stakfell fast­eigna­sölu.

Hvar líður þér best?
„Það væri undir stýri á jepp­anum, með úti­legu­dót og úti­vi­star­föt, í ferða­lagi með fjöl­skyld­unni.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag?
Margir fínir veit­inga­staðir hafa sprottið upp á und­an­förnum árum, en ég borð­aði í gær í Eng­lend­inga­vík í Borg­ar­nesi. Fékk þar ein­hvern þann fal­leg­asta mat sem ég hef borðað, sér­lega gott sjáv­ar­réttapasta, en svo er birtan og útsýnið á staðnum þannig að maður vill helst ekki standa upp og fara.“

Er ein­hver bygg­ing­ar­stíll sem heillar þig meira enn annar? 
„Klárlega sixties-stíll eins og frá Kjartani Sveins­syni og Sigvalda Thordar­syni. Þó að þeir séu ólíkir þá eru þeir báðir gott dæmi um það tíma­bil sem mér finnst flott­ast í bygg­ingum hér á landi.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … hafa gaman af því sem maður er að gera, vera með gott fólk í kringum sig og reyna að vera sæmi­lega góð fyr­ir­mynd fyrir krakk­ana sína.

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur