Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Borgin iðar af jazzi

Mið­borgin mun iða af jazztónum dag­ana 5.-9. sept­em­ber þegar fram fer Jazzhátíð Reykja­víkur 2018.

Borgin iðar af jazzi
Sunna Gunn­laugs­dóttir skipu­leggur hátíð­ina ásamt Leifi Gunn­ars­syni.

Íslenskt jazzlíf hefur aldrei staðið styrk­ari fótum en nákvæm­lega núna og á hátíð­inni gefst færi til að hlýða á fram­varð­ar­sveitir í fag­inu en ekki síður er spenn­andi sam­starf íslenskra flytj­enda og erlendra sem er fyr­ir­ferða­mikið að þessu sinni. Sunna Gunn­laugs­dóttir skipu­leggur Jazzhátíðina ásamt Leifi Gunn­ars­syni en þau hafa gert það frá árinu 2015 og eru bæði jazzleikarar og tón­list­ar­kenn­arar. Við hittum Sunnu á dög­unum og for­vitn­uð­umst um dag­skrá hátíð­ar­innar.

Geturðu aðeins sagt okkur frá til­urð Jazzhátíðar Reykja­víkur og hversu oft hún hefur verið haldin? „Jazzhátíð var fyrst haldin árið1990 sem fram­lag RÚV til nor­rænna útvarps­daga. Hún heppn­að­ist svo vel að ákveðið var að halda árlega hátíð á vegum RÚV og Reykja­vík­ur­borgar og var kölluð RÚREK. Á ein­hverjum tíma­punktu drógu þessir aðilar sig út og FÍH tók að sér umsjón Jazzhátíðar Reykja­víkur og er hún, að ég held, elsta tón­list­ar­há­tíð lands­ins.“

Segðu okkur aðeins frá Jazzgöngunni og setn­ingu hátíð­ar­innar? „Jazzgangan hefur verið fastur liður í nokkur ár og er ein­stak­lega skemmti­leg. Hljóð­færa­leik­arar og aðrir áhuga­menn safn­ast saman við Lucky Records og stilla saman strengi og svo er mar­serað niður Laugaveg að Borg­ar­bóka­safni við fjöruga tóna hóps­ins.“

Eigum við von á athygl­is­verðum böndum og ein­stak­lingum í ár? „Jazzhátíð leggur metnað sinn í að fá fram­úr­skar­andi lista­menn erlendis frá. Í ár fáum við að upp­lifa banda­ríska gít­ar­snill­ing­inn Ralph Towner á ein­leiks­tón­leikum með klass­ískan gítar, tríó spánska kontra­bassa­leik­ar­ans Giulia Valle sem hefur verið á hraðri upp­leið, tíu kvenna nor­ræna sveit Marilyn Mazur, dúóið Skeltr frá Bret­landi og síð­ast en ekki síst frá Póllandi, Marcin Wasilewski Trio sem hefur verið ein af skraut­fjöðrum ECM-útgáf­unnar í yfir ára­tug. Svo koma frá­bærir ein­stak­lingar í sam­starfs­verk­efnum við Íslend­inga, eins og Lage Lund, Lars Jansson, Verneri Pohjola, Pierre Perchaud, Nico Moreaux, Richard Anderson, Miro Herak og Bárður Reinert Poulsen.“

Verður ein­hver nýbreytni frá fyrri árum hátíð­ar­innar? „Hátíðin hefur fært sig úr Hörpu þar sem við höfum verið síð­ustu ár og verður nú í ár í Tjarn­ar­bíói, Iðnó, Hann­es­ar­holti, Grand Hótel, Borg­ar­bóka­safni og Gömlu kart­öflu­geymsl­unum í Ártúns­holti sem nú hafa verið upp­færðar í prýði­legan vett­vang fyrir tón­list­ar­flutn­ing. Það gefur okkur kost á að selja inn á staka við­burði í stað pass­ans sem var. Það nýjasta hjá okkur er að bjóða upp á svona late night-við­burð á laug­ar­dags­kvöldið í Gömlu kart­öflu­geymsl­unum. Þar verður partí­stemn­ing með Skeltr og Una Stef Band frá 23 til 01 og fyrr um dag­inn eru Andrés Þór & Miro Herak og svo DOH trio með útgáfu­tón­leika.“

Gítar­leik­ar­inn Ralph Towner verður með ein­leiks­tón­leika á Jazzhátíð Reykja­víkur 2018.

Hver er helstu núm­erin á Íslandi, okkar fræg­ustu jazzarar og jazzbönd? „Jazzsenan okkar er ótrú­lega fjöl­breytt og því getum við teflt fram mjög fjöl­breyttri dag­skrá frá ári til árs. Á Jazzhátíð reynum við að tefla fram bæði gömlu kemp­unum og þeim ungu og fersku. Í Hann­es­ar­holti verða kemp­urnar Agnar Már ann­ars vegar ásamt Lage Lund og hins vegar Sigurður Flosason með Lars Jansson. Óskar Guð­jóns­son og Matthías Hemstock fagna nýjum diski með Richard And­ers­son í Iðnó, Scott McLemore með Hilmar Jensson inn­an­borðs er með útgáfu­tón­leika í Tjarn­ar­bíói, og tríó mitt ásamt Verneri Pohjola fagnar einnig nýrri útgáfu á sama stað. Svo eru þessi ungu og fersku, eins og Ingi Bjarni Trio og Sigmar Matth­í­as­son, báðir með útgáfu­fögnuð í Tjarn­ar­bíó og Þórdís Gerður sextett í Iðnó auk fyrr­nefndra atriða í Gömlu kart­öflu­geymsl­unum.“

Hver verður hátindur hátíð­ar­innar, að þínu mati? „Það er ómögu­legt að velja eitt­hvert eitt atriði fram yfir annað en það hlýtur að telj­ast sér­stakt að fá hingað tíu kvenna sveit slag­verks­leik­ar­ans Marilyn Mazur. Hún er eina konan sem átti sæti í sveit Miles Davis, fræg­asta jazzara fyrr og síðar: Ég sá þessa sveit á sviði fyrir rúmu ári og það voru sann­kall­aðir töfrar sem umluktu þá tón­leika. Sama kvöld leikur svo tríó Marcin Wasilewski sem hefur verið í upp­á­haldi hjá mér lengi og á hádeg­is­tón­leik­unum þann dag­inn syngur Katrín Halldóra sem var svo frá­bær í hlut­verki Ellýjar Vil­hjálms ásamt sveit Hauks Gröndal.“

Wasilewski Trio frá Póllandi.

Verða margir útgáfu­tón­leikar í til­efni þessa? „Í ár eru sjö útgáfu­tón­leikar sem ber vitni um mikla grósku í íslensku jazzlífi. Fimm af þessum sjö eru með erlenda sam­starfs­menn inn­an­borðs og því er aug­ljóst að jazzfólkið okkar stefnir út fyrir land­stein­ana með verk­efnin sín og þar er Jazzhátíð mik­il­vægur hlekkur í að skapa tæki­færi og greiða leið þessa metn­að­ar­fulla fólks.“

Hvert er mark­mið ykkar með hátíð­inni? „Hátíðin er vett­vangur alls þess helsta sem er að ger­ast á sviði inn­lendrar jazztónlistar og er í raun hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg upp­skeru­há­tíð inn­lendra jazztónlistarmanna. Auk þess stendur hátíðin að komu fjöl­margra erlendra tón­list­ar­manna á ári hverju, bæði evr­ópskra og banda­rískra. Hátíðin leitar einnig tæki­færa til að koma íslenskum jazzi á fram­færi erlendis í gegnum sam­starfs­vett­vang evr­ópskra jazzhátíða Europe Jazz Network,“ segir Sunna og er mjög spennt fyrir því sem koma skal.

Vert er að geta þess að þeir sem ætla að sækja marga tón­leika á Jazzhátíðinni geta nálg­ast afslátt­ar­pakka, á ferna, sex og átta tón­leika. Mik­il­vægt er að skoða dag­skrána vand­lega til tryggja að ekk­ert fari fram hjá manni. Nánari upp­lýs­ingar er að finna á heima­síð­unni www.reykjavikjazz.is og www.tix.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur