Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bláber munu vaxa á þökum

Gríð­ar­leg upp­bygg­ing hefur verið í Dalskóla í Úlf­arsár­dal og umhverfi hans. Skólinn blómstrar þessa dag­ana og nem­endur vaxa og dafna þar sem fjöl­breyttir starfs­hættir eru hafðir að leið­ar­ljósi. Við hittum á dög­unum Hildi Jóhann­es­dóttur skóla­stjóra og fengum inn­sýn í skóla­starfið og umhverfi hans í þessu ein­staka umhverfi Úlf­ar­árs­dals.

Bláber munu vaxa á þökum
Hildur Jóhann­es­dóttir skóla­stjóri með nem­endum við skól­ann.

Segðu okkur örlítið frá skóla­starf­inu í Dalskóla. „Dalskóli leggur áherslu á að öllum líði þar vel, að börnin okkar fái að dafna, nema og blómstra. Skólinn er sam­rek­inn leik-, grunn og frí­stunda­skóli sem byggir á fjöl­breyttum starfs­háttum í hverri stoð hans. Við eflum sjálf­stæð vinnu­brögð í nem­enda­hópum með sveigj­an­legum kennslu- og starfs­háttum. Lögð er áhersla á þema­bundna smiðju­vinnu þar sem sam­þætt­ing náms­greina og náms­sviða á sér stað innan árganga og á milli árganga í hluta starfs­ins. Skólinn er menn­ing­ar­skóli sem gerir list­greinum hátt undir höfði. List er kennd list­ar­innar vegna og aðferðum list­greina er beitt í smiðju­starfi sam­ofið bók­náms­greinum. Skólinn ræktar lær­dóms­menn­ingu meðal starfs­manna og við erum að inn­leiða leið­sagn­ar­nám í kennslu­stundum í grunn­skóla­hluta skól­ans. Í leik­skóla­hluta skól­ans er börnum gefið tæki­færi til þess að byggja ofan á fyrri reynslu og þekk­ingu í námi og starfi og er leik­ur­inn og upp­götv­un­ar­námið það sem gengið er út frá. Í frí­stunda­hluta skól­ans er barna­lýð­ræði gert hátt undir höfði ásamt sam­taka­mætti og gleði.“

„ Við eflum sjálf­stæð vinnu­brögð í nem­enda­hópum með sveigj­an­legum kennslu- og starfs­háttum. Skólinn er menn­ing­ar­skóli sem gerir list­greinum hátt undir höfði.“

Nú er mikil upp­bygg­ing í kringum skól­ann, getur þú aðeins sagt okkur frá upp­bygg­ing­unni sem fram undan er? „Það er mikið starf í gangi til þess að búa hverf­inu góðan kjarna. Í þessum kjarna fyrir botni dals­ins rís skóla­hús­næði sem hýsa mun nem­endur á aldr­inum fjög­urra til sextán ára auk frí­stunda­heim­ilis og frí­stunda­mið­stöðvar. Í kjarn­anum verða almenn­ings­bóka­safn, sund­laugar og menn­ing­ar­salir. Aðstaða fyrir tón­list­ar­nám verður góð og  hátíð­ar­salur verður stað­settur miðja vegu í hús­inu. Samtengt kjarn­anum austan megin mun rísa íþrótta­hús en Fram er hverf­is­fé­lagið okkar og verður aðstaðan þar til mik­illar fyr­ir­myndar. Nú þegar eru komnir góðir sparkvellir sem eru vel nýttir alla daga.  Haustið 2010 tókum við í notkun fyrsta áfang­ann í þess­ari miklu upp­bygg­ingu en það er mjög vel heppnað leik­skóla­hús­næði, þar starfa í dag 100 börn á aldr­inum tveggja  til fimm ára.“

Haustið 2016 var tek­inn í notkun fyrsti áfangi nýja skóla­hús­næð­is­ins og á næstu dögum verður næsti áfangi þess hús­næðis afhentur. „Þennan vet­ur­inn munu nem­endur í 4. bekk og upp úr starfa í Móanum okkar en nýja hús­næðið fékk það gælu­nafn á sínum tíma. Í Hlíðinni, sem er gælu­nafn fyrir lausu kennslu­stof­urnar okkar, verða nem­endur í 1.-3. bekk í vetur, auk list- og verk­greina. Næsta haust mun lang­þráður draumur ræt­ast þegar skóla­hús­næðið verður afhent og skól­inn kemst undir eitt þak, undir eitt fal­legt þak þar sem birta mun flæða niður í hús­næðið okkar og blá­ber vaxa á þökum.“

Fyrir botni Úlf­arsár­dals rís skóla­hús­næði sem hýsa mun nem­endur á aldr­inum fjög­urra til sextán ára auk frí­stunda­heim­ilis og frí­stunda­mið­stöðvar. Í kjarn­anum verða almenn­ings­bóka­safn, sund­laugar og menn­ing­ar­salir.

Hvað laðar fjöl­skyldu­fólk að Úlf­arsár­dal? „Þetta eru síð­ustu hlíð­arnar innan borg­ar­markanna sem snúa í suður, ef Esju­hlíðar eru frá­taldar. Maður sér fyrir sér afskap­lega hlý­legt og fal­legt hverfi þegar gróð­ur­inn nær að potast upp. Þessar hlíðar eru í útjaðri borg­ar­innar, stutt í nátt­úr­una, stutt í góða þjón­ustu­kjarna. Á Höfðanum og hér í kring eru mjög mik­il­væg þjón­ustu­fyr­ir­tæki og fólk þarf ekki að fara niður í bæ nema til hátíð­ar­brigða. Það er líka jákvætt að það er mjög stutt að fara út úr bænum, en hér í dalnum okkar er margar úti­vistar-, sum­ar­bú­staða- og fjall­göngu­fjöl­skyldur. Það að taka þátt í að byggja upp nýtt hverfi er for­rétt­inda­verk­efni fyrir alla sem í dalnum búa. Fólkið á hverfið og fólkið hér stendur mjög vel saman. Vinarþel ríkir á milli manna og ég held að leitun sé að jafn­góðu stuðn­ings­liði við skóla­starf eins og hér. Við höfum verið án hús­næðis í mörg ár og hvernig for­eldrar hafa með ráðum og dáð verið okkar bak­hjarlar er ómet­an­legt,“ segir Hildur og er full til­hlökk­unar.

Eru sam­göngu­leiðir góðar og öruggar? „Skólinn er í botni dals­ins og má segja að allar ár renni til skól­ans. Úlf­ars­brautin sem liggur hér sam­síða skól­anum er hugs­an­lega hættu­leg­asta braut dals­ins að því leyti að til hennar liggja allar götur og allir stígar. Yfir hana liggja gang­brautir og dal­búar fara hér ofur var­lega en brautin er hægakst­urs­braut. Það er ljóst að umferð mun vaxa við hana í fram­tíð­inni þegar allt er full­byggt og Fram verður komið með sína íþrótta­að­stöðu í gagnið. Auðvitað munum við, í sam­vinnu við borg­ina, halda áfram að gera þetta hverfi öruggt og tryggt hvað öll ferli­mál snertir. Þannig er það hannað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur