Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Líður best í sveitinni sinni – Hvítársíðu í Borgarfirði

Anna Laufey Sig­urð­ar­dóttir er lög­giltur fast­eigna- og skipa­sali hjá Fast­eigna­söl­unni Nýtt heim­ili. Hún er ekkja, þriggja barna móðir, amma og hunda­eig­andi og er búsett í Skerja­firði.

Líður best í sveitinni sinni – Hvítársíðu í Borgarfirði

„Ég hef fengið að vera hluti af þessu ynd­is­lega sam­fé­lagi frá árinu 1995. Hér er gott að vera, stutt í göngu­stíg­inn við sjáv­ar­síð­una með Naut­hóls­vík til aust­urs og Ægi­síð­una til vest­urs. Ég þarf þó að fara að minnka við mig en er ekki enn þá viss um það hvert mig langar að flytja því það verður erfitt að hverfa frá þessum dásam­lega stað,“ segir Anna Laufey bros­andi en hún er fædd og upp­alin í Vest­ur­bænum. „Þar hef ég alltaf notið mín vel. Íþróttir og úti­vist eru stór þáttur í lífi mínu en ég stund­aði hlaup og fjall­göngur af krafti áður fyrr. Í seinni tíð hafa skíði og sund veitt mér útrás fyrir hreyfi­þörf­ina. Einnig hef ég verið að stílisera og hef mjög gaman að því. Tvö eldri börnin mín stunda fram­halds­nám og eru búsett erlendis sem stendur en yngsta barnið er enn í heima­húsum og stundar nám við Háskól­ann í Reykja­vík.“

Hvað heillar þig mest við starfið? „Starf fast­eigna­sala er fjöl­breytt og skemmti­legt. Ég hef lengi haft mik­inn áhuga á arki­tektúr og hönnun og því er alltaf jafn­gaman að koma í ný hús og kynn­ast sögu þeirra. Það er yfir­leitt stórt skref í lífi fólks að breyta til og skipta um sama­stað. Þess vegna hef ég mikla ánægju af því að hjálpa þeim sem þurfa að finna nýtt og gott heim­ili þar sem því  líður vel, því ég veit hversu miklu máli það skiptir.“

Getur þú lýst þínum stíl? „Ég er hrifin að jarð­litum, gömlum hlutum til dæmis erfða­gripum í bland við nýja hluti. Nátt­úru­legum efnum og fal­legri mynd­list. Það skiptir mestu máli að heim­ilið passi lífsmáta fjöl­skyld­unnar, sé nota­legt og praktískt. Ég á mér nokkra upp­á­halds­arki­tekta en held að hjónin Margrét Harð­ar­dóttir og Steve Christer hjá Stúdíó Granda standi upp úr.“

Hver er þinn upp­á­halds­hönn­uður? „Hans Wegner, Arne Jacobsen og Gunther Lambert eru í upp­á­haldi, fal­leg og tíma­laus hönnun þeirra. Auk þess er ég líka hrifin af mörgu sem Heimili og Hug­myndir selja, til dæmis frá Eddy Vers­mis­sen, Flamant og Chehoma.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast? „Ég hefði ekk­ert á móti því að eiga myndir eftir Georg Guðna og Kristján Dav­íðs­son.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn? „Upp­á­halds­lit­ur­inn minn í fata­vali er blár en í hús­gögnum og máln­ingu höfða til mín jarð­litir, gráir tónar, svartur og brúnir tónar í bland við ljósa liti.“

Hvar líður þér best? „Mér líður best í sveit­inni minni, Hvít­ár­síðu í Borg­ar­firði. Hér heima er upp­á­halds­stað­ur­inn minn heiti pott­ur­inn á pall­inum.“

Hvað heillar þig mest við haustin? „Haust­lit­irnir eru ynd­is­legir.  Ég fór á hverju hausti með mömmu til Þing­valla til að njóta þeirra. Ég kaupi erikur á haustin og set í alla potta á pall­inum og fyrir utan húsið. Inn­an­dyra eru kertin ómissandi.  Ekkert er eins róandi og gott eins og að kveikja á kertum á kvöldin.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag? „Svalasti veit­inga­stað­ur­inn er að sjálf­sögðu Krauma við Deilda­tungu­hver í Borg­ar­firði. Eftir að hafa slakað á í pott­unum og gufu og gert sig fína er fátt sem toppar það að setj­ast að snæð­ingi hjá þeim. Hreint og gott hrá­efni, sal­atið ræktað á staðnum og það bragð­besta sem ég hef smakkað. Yndisleg upp­lifun.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … stunda úti­vist og njóta nátt­úr­unnar í gleði með fjöl­skyldu og góðum vinum.

Mynd/ Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur