Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Nýjasta frá Apple – Apple Watch 4 – iPhone Xs og Xs MAX

Ásgeir Jón Guð­bjarts­son hjá Epli.is segir frá nýj­ungum frá Apple.

Nýjasta frá Apple – Apple Watch 4 – iPhone Xs og Xs MAX
Vonir standa til að samn­ingar náist við kenn­ara fyrir haustið svo ekki komi til verk­falla|Sigríður Björk Ein­ars­dóttir

Í sept­em­ber kynnti Apple nýj­ustu afurðir sínar, Apple Watch 4, iPhone Xs og iPhone Xs MAX, og iPhone XR, á árlegum við­burði sem fram fór í Steve Jobs Theater við nýju höf­uð­stöðvar Apple í Kali­forníu. Við hittum Ásgeir Jón Guð­bjarts­son, mark­aðs­stjóra hjá Epli.is, og skoð­uðum nýj­ustu afurðir Apple sem hafa litið dags­ins ljós hjá versl­un­inni og rjúka út eins og heitar lummur.

Áhersla Apple Watch 4 á heilsu og hreyfingu

Hvað hefur nýja útgáfan af Apple Watch 4-úrinu fram yfir eldri gerð­ina? „Nýja úrið er að miklu leyti end­ur­hannað en er í meg­in­dráttum með sama útlit. Skjárinn hefur stækkað um þriðj­ung og fyllir nú betur út í fram­hlið­ina. Úrin sjálf hafa stækkað örlít­ið, minni útgáfan fer úr 38 milli­metrum í 40 milli­metra og það stærra úr 42 milli­metrum í 44 milli­metra. Þetta gefur nýtt pláss fyrir nýjar og flókn­ari úrskífur með fleiri eig­in­leik­um. Frá því að Apple kynnti fyrsta úrið fyrir þremur árum hefur sýn fyr­ir­tæk­is­ins á vör­una þró­ast mikið. Í stað þess að vera fram­leng­ing á sím­anum og leið til að eiga í sam­skiptum við vini og vanda­menn þá er öll áhersla Apple nú á heilsu og hreyf­ingu,“ segir Ásgeir.

„Skjárinn hefur stækkað um þriðj­ung og fyllir nú betur út í fram­hlið­ina. Úrin sjálf hafa stækkað örlít­ið, minni útgáfan fer úr 38 milli­metrum í 40 milli­metra og það stærra úr 42 milli­metrum í 44 milli­metra.“

Hver myndir þú segja að væri stærsta breyt­ingin? „Stærsta breyt­ingin í þessa átt er að nú er úrið með inn­byggðu hjarta­línu­riti (ECG) sem er bylt­ing fyrir þá sem þurfa að fylgj­ast náið með sínum hjartslætti og hefur ekki sést áður í neinu öðru snjallúri. Sá eig­in­leiki verður í fyrstu ein­göngu aðgengi­legur í Banda­ríkj­unum. Nýju úrin nema það ef not­and­inn dettur og geta hringt sjálf­krafa í Neyð­ar­lín­una ásamt því að senda skila­boð á ICE (In Case of Emergency)-tengiliði ef not­and­inn hefur verið hreyf­ing­ar­laus í mín­útu eftir fall­ið. Jafn­framt getur úrið hjálpað til við að finna óreglu­legan hjart­slátt og aðrar hjart­slátt­ar­trufl­anir.“

Gylltur iPhone Xs og Xs Max

Apple er komið með nýjan arf­taka iPhone X sem kom í fyrra. Sá sími kall­ast iPhone Xs. iPhone Xs er hefð­bundin S-upp­færsla. Epli.is er þegar komið með arf­tak­ann í sölu og er mikil eft­ir­spurn eftir sím­anum.

Hverjar eru helstu nýj­ung­arnar í iPhone Xs? „Útlit sím­ans er nán­ast eins fyrir utan að hann fæst einnig í gylltum lit til við­bótar við svartan og hvít­an. Inn­volsið er aftur á móti mikið breytt. Nýr A12 Fusion-örgjörvi sem er mun öfl­ugri, ný mynda­vél með mögn­uðum eig­in­leikum og upp­fært Face ID sem aflæsir sím­ann hraðar en áður.“

„Mynda­vélin tekur margar myndir sem í bak­grunn­inum púslar þeim saman og gerir eina mynd með ótrú­legri dýpt og magn­aðri lýs­ingu sem kall­ast Smart HDR. Með þessu nást skýr­ari og bjart­ari myndir sem hafa ekki áður náðst á snjall­símum. Í fyrsta sinn er sími frá Apple með stuðn­ingi við tvö SIM-kort, annað hefð­bundið og hitt inn­byggt í sím­ann eða svo­kallað eSIM. Sú tækni er þó ekki kom­in hingað til lands og óvíst hvenær verður. Apple end­ur­tók leik­inn frá 2014 þegar fyr­ir­tækið kynnti iPhone 6 í tveimur stærð­um. Xs Max er nákvæm­lega eins og iPhone Xs, aðeins stærri.“

„Áður hétu stærri símar Apple Plus sem var þá tengt því að stærri sím­inn hefði eitt­hvað til við­bótar, til dæmis betri mynda­vél eða jafn­vel tvær í stað einn­ar. Svo er ekki með Xs Max, hann er bara stærri útgáfa af iPhone Xs. Skjár­inn á Xs er 6,5 tommu en ummál sím­ans er svipað og iPhone 8 Plus,“ segir Ásgeir og brosir.

Myndir/ Hákon Davíð Björns­son og úr einka­safni Epli.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur