Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Væri til í að eiga lítið, fallegt hús í Montenegro

Elías Har­alds­son, lög­giltur fast­eigna­sali hjá 450 Fast­eigna­sölu, er hrif­inn af ferska loft­inu, rökkr­inu, kerta­ljós­unum og róm­an­tík­inni sem fylgir vetr­inum. Upp­á­hald­sinn­an­húss­arki­tekt­inn hans er Berglind Berndsen.

Væri til í að eiga lítið, fallegt hús í Montenegro

Hvað heillar þig mest við starfið?

„Ég held að það sé þessi fjöl­breyti­leiki og sam­skipti við fólk á öllum aldri. Að hafa milli­göngu um kaup og sölu fast­eigna getur verið mjög skemmti­legt, sér­stak­lega þegar allt gengur upp og kaup­endur og selj­endur eru ánægðir. En það getur líka verið mjög krefj­andi að leysa úr málum þegar allt gengur ekki alveg upp, eins og til dæmis galla­mál og fleira og þá er mjög gott að hafa góða og langa starfs­reynslu.“

Geturðu lýst hefð­bundnum vinnu­degi hjá þér?

„Hann er nú mjög breyti­legur í þessum bransa. Þú ert í raun og veru alltaf í vinn­unni eftir að far­sím­inn varð svona ofboðs­lega sterkur og mik­il­vægur. En auð­vitað reynir maður að stjórna sínum tíma eins og allt venju­legt fólk. Sér­stak­lega þegar maður hefur unnið við þetta í þrjá­tíu ár. En ég reyni að byrja snemma, fer í rækt­ina í hádeg­inu, nema á mið­viku­dögum, þá hitti ég gamla félaga mína úr Val í hádeg­is­verð. Svo er það mis­jafnt hvað ég er lengi að, það fer allt eftir því hvað er mikið að gera til dæmis opin hús, skoða, sýna og fleira.“

Hvað finnst þér gera heim­ili að heim­ili?

„Þegar ég finn per­sónu­lega strauma þegar ég geng inn á heim­ili, eins og fjöl­skyldu­myndir uppi á veggjum, hlý­lega liti, per­sónu­lega muni og nota­leg hús­gögn.“

Geturðu lýst þínum stíl?

„Ég veit ekki hvort ég hafi ein­hvern sér­stakan stíl. Mér finnst gaman að eiga fal­leg og vönduð hús­gögn í bland við eitt­hvað ein­falt og ódýrt, eins og IKEA-vör­unar sem alltaf er hægt að skipta reglu­lega út fyrir eitt­hvað annað. Svo finn­ast mér myndir á veggjum skipta máli.“

Áttu upp­á­halds­arki­tekt?

„Engan alveg upp­á­halds enda margir mjög góðir og alltaf spurn­ing um hvaða tíma­bil ræðir, en Guðjón Sam­ú­els­son teikn­aði margar mjög fal­legar bygg­ingar. En hvað varðar inn­an­húss­arki­tekt held ég að það sé Berglind Berndsen.“

Áttu upp­á­halds­hönnuð?

„Ég veit það ekki, það eru svo margir góðir og erfitt að draga ein­hvern einn út. En ætli það sé ekki bara konan mín heitin, hún var ótrú­lega sniðug og klár að raða saman fal­legum hlutum gömlum og nýjum í bland með skemmti­legum og hlý­legum litum.“

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til?

„Ég væri alveg til í að eiga lítið, fal­legt hús í Montenegro (Svart­fjalla­landi). Þar er mikið af fal­legum fjöllum til að stunda skíða­mennsku og góðar göngu­leiðir svo ég tali nú ekki um frá­bærar fal­legar strendur og sólin er þar oft á lofti.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn?

„Ég á engan upp­á­hald­s­lit, það skiptir svo miklu máli hvernig litum er raðað saman. Kannski er ein­hver litur ekk­ert sér­stak­lega fal­legur þegar maður horfir á hann en þegar hann er í réttri lita­sam­setn­ingu er hann mjög flottur. Þetta á bæði við fatnað og hús­næði.“

Hvar líður þér best?

„Ég held bara heima hjá mér og innan um fjöl­skyldu og vini. Mér líður líka ótrú­lega vel  í sum­ar­fríi að slappa af á ein­hverri sól­ar­strönd á góðu hót­eli.“

Hvað heillar þig mest við vet­ur­inn?

„Ferska loftið, rökkrið, kerta­ljósin og róm­an­tíkin. Það kemur líka annar bragur yfir allt. Sum­ar­fríin búin, haustið hverfur á braut, skól­arnir komnir í fastar skorður, margir með ný mark­mið í rækt­inni og mat­ar­ræði.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag?

„Ég hef farið mjög lítið út að borða upp á síðkastið en það eru margir mjög góðir veit­inga­staðir til um allt land en ég fór síð­ast á Skel­fisk­mark­að­inn og hann var mjög góður.“

Er ein­hver bygg­ing­ar­stíll sem heillar þig meira enn annar? 

„Já, örugg­lega, ég veit bara ekki hvað hann heitir. Ég hef séð mörg fal­leg hús í mis­mun­andi bygg­ing­ar­stíl, en mér finn­ast ávallt vel teiknuð og vel skipu­lögð funkis-hús fal­leg. Svo skiptir lóðin alltaf mjög miklu máli og hvernig hús og bygg­ing­ar­stíll njóta sín.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … lifa núna og njóta þess. Vera þakk­látur fyrir að hafa góða heilsu og geta gert allt sem maður vill. Það er það mik­il­væg­asta í líf­inu. Það er hægt að kaupa ýmis­legt fyrir pen­inga í líf­inu en ekki heils­una. Þekki það af eigin raun.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur