Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þú sérð það ekki utan á mér

Þú sérð það ekki utan á mér
|

Edda Svav­ars­dóttir, tækni­teikn­ari hjá verk­fræði­stof­unni Verkís, hefur þurft að glíma við ein­kenni frá melt­ing­ar­vegi alla ævi og var sögð vera með risti­ló­reglu (iðra­bólgu) þegar hún var barn. Í dag er Edda for­maður CCU- sam­tak­ana (Crohn´s og Colitis Ulcerosa-sam­tak­anna) en helstu mark­mið þeirra er stuðn­ingur við þá sem grein­ast, stuðla að auk­inni almennri fræðslu um sjúk­dómana, auk þess að gefa út fræðslu­efni.

Á morgun er 19. maí en hann er alþjóð­legur IBD-dagur. IBD er notað sem sam­heiti yfir sjúk­dómana sem eru báðir lang­vinnir bólgu­sjúk­dómar í melt­ing­ar­vegi.

Greindist loksins með Colitist Ulcerosa

Getur þú aðeins sagt okkur frá því hvenær þú fórst fyrst að finna fyrir alvar­legum ein­kennum? „Það var eftir að ég átti dóttur mína. Heils­unni hrak­aði jafnt og þétt þangað til ég grein­ist loks með Colitis Ulcerosa. Þegar ég horfi til baka sé ég að ég hef verið að glíma við ein­kenni sjúk­dóms­ins frá því að ég var barn.

CCU-samtökin eru opin öllum

Tákn IBD dags­ins.

Geturðu sagt okkur stutt­lega frá CCU-sam­tök­unum og til­urð þeirra?

„Ásgeir Theó­dórs­son melt­ing­ar­sér­fræð­ingur er frum­kvöð­ull að stofnun sam­tak­anna. Þegar hann var í sér­námi í Banda­ríkj­unum, kynnt­ist hann því hve mik­il­vægt er fyrir ein­stak­linga sem grein­ast með sjúk­dómana, að hafa aðgang að slíkum sam­tökum. Haustið 1992 boð­aði hann fimm sjúk­linga á St. Jós­efs­spít­ala í Hafn­ar­firði til fundar við hann og tvo hjúkr­un­ar­fræð­inga sem störf­uðu við spít­al­ann. Eftir tals­verða und­ir­bún­ings­vinnu og funda­höld var félagið stofnað 26. októ­ber 1995. CCU-sam­tökin eru hags­muna­sam­tök ein­stak­linga með Crohn’s- sjúk­dóm (svæð­is­garna­bólgu) og Colitis Ulcerosa (sáraristil­bólgu) en þeir eru einnig þekktir sem IBD ( Inflammatory Bowel Diseases ). Samtökin eru opin öllum, sjúk­lingum, aðstand­endum og öðrum áhuga­sömum ein­stak­lingum. Það er í raun ekki vitað hve margir eru með IBD á Ísland en áætlað er að það sé um 0,5% þjóð­ar­innar. Stofn­fé­lagar voru um 60 en í dag eru félagar rúm­lega 390,“ segir Edda.

Helstu markmið samtakanna er stuðningur við þá sem greinast

Ert þú búin að vera lengi í for­mennsku hjá CCU-sam­tök­unum? „Ég er búin að vera for­maður í rúm­lega sjö ár. Fyrst var ég skoð­un­ar­maður reikn­inga, 2007 varð ég gjald­keri og for­maður 2011.“ Helstu mark­mið sam­tak­anna er stuðn­ingur við þá sem grein­ast, að stuðla að auk­inni almennri fræðslu um sjúk­dómana og útgáfa fræðslu­efnis. „Samtökin eru yfir­leitt með fjóra fræðslu­fundi yfir árið og reynt er að hafa umræðu­efnin sem fjöl­breytt­ust. Við eru með heima­síðu, www.ccu.is, opna fés­bók­ar­síðu og nokkra lok­aða hópa fyrir félags­menn, meðal ann­ars umræðu­hóp og for­eldra­hóp. Umræðu­hóp­ur­inn er mjög virkur og góður vett­vangur til að spyrja spurn­inga, skipt­ast á skoð­unum og fá ráð­legg­ingar. Hópurinn tengir ein­stak­ling­ana saman og sýnir þeim að það er fullt af öðru fólki að glíma við sömu vanda­mál og það sjálft. Margir félags­menn hafa sagt að þeir hafi aldrei heyrt minnst á, eða vitað um Crohn´s eða Coltitis fyrr en þeir sjálfir eða ein­hver í fjöl­skyld­unni grein­ist. Þó að margt sé sam­eig­in­legt með sjúk­dómunum, er mjög ein­stak­lings­bundið hvað hentar hverjum, til dæmis varð­andi matar­æði,“ segir Edda og er hún mjög ánægð hvernig umræðu­hóp­ur­inn hefur stækkað og dafnað.

„Svo erum við líka með ung­liða­hóp fyrir fólk á aldr­inum 16 til 30 ára og ekki er nauð­syn­legt að vera félags­maður til að vera með í þeim hóp.“

Sjúkdómarnir geta verið mikið feimnismál

Nú er alþjóð­legi IBD-dag­ur­inn fram undan. Getur þú sagt okkur aðeins frá þessum degi og mark­miði hans? „Árið 2002 gengu CCU-sam­tökin í EFCCA ( Regn­hlífa­sam­tök Crohn´s og Colitis Ulcerosa sjúk­linga­sam­taka í Evrópu) og er það að und­ir­lagi þeirra sam­taka, að alþjóð­legi IBD-dag­ur­inn er hald­inn þann 19. maí um allan heim. Í ár eru meira en 50 lönd í fimm heims­álfum sem taka þátt í að vekja athygli á mál­efn­inu, auka almenna þekk­ingu, hvetja til rann­sókna og styðja með því yfir 10 millj­ónir manna sem lifa með IBD í heim­inum í dag. Sjúk­dóm­arnir eru þess eðlis að þeir geta verið mikið feimn­is­mál og ekki beint skemmti­legir til umræðu í kok­teil­boðum eða kaffi­stofum vinnu­staða. Aukin almenn þekk­ing getur einnig auð­veldað sumum að segja frá hvað hrjáir þá, því í flestum til­vikum sést ekki utan á fólki að það sé með lang­vinnan og ólækn­andi sjúk­dóm sem hefur áhrif á allt dag­legt líf.“

Alvogen er gullstyrktaraðili ungliðafundarins

„Helsta verk­efni sam­tak­anna þessa dag­ana er auð­vitað IBD-dag­ur­inn og að sinna því mark­miði að vekja sem mesta athygli en það eru líka fleiri stór verk­efni í gangi, svo sem útgáfa á nýjum bæk­lingi um matar­æði, for­gangskort á sal­erni, sem er mjög þarft verk­efni og svo sjáum við um að halda ung­liða­fund EFCCA 2018.“ Fund­ur­inn verður í Reykja­vík í júlí og þátt­tak­endur verða 30 ung­menni frá 17 löndum. Þau sitja fyr­ir­lestra og taka þátt í vinnu­hópum sem miða að því að hjálpa til við stofna eða halda utan um ung­liða­starf í sínu heima­landi. Þátt­tak­endur þurfa að kynna starf­semi síns félags og miðla með því hug­myndum sem allir geta nýtt í sínu félags­starfi. „CCU hefur fengið nokkra góða styrkt­ar­að­ila að fund­inum, meðal ann­ars Alvogen og vel­ferð­ar­ráðu­neytið en Alvogen er einmitt Gull- styrkt­ar­að­ili með hæsta styrk­inn, 300.000 kr. En ef það er ein­hver sem les þessa grein og hefur áhuga á að styrkja verk­efnið þá er um að gera að hafa sam­band,“ segir Edda.

Geta haft mikil áhrif á allt daglegt líf

Er eitt­hvað sem stendur upp úr í til­efni þessa dags? „Það er ein­fald­lega til­gangur dags­ins, að upp­lýsa almenn­ing um sjúk­dómana. Ef þú veik­ist eða ein­hver þér nákom­inn, þá er mark­miðið að það sé til staðar lág­marks­þekk­ing á þeim aðstæðum sem ein­stak­ling­arnir eru að glíma við. Sjúk­dóm­arnir sjást ekki utan á fólki en þeir geta haft alveg gríð­ar­leg áhrif á allt dag­legt líf. Það er miklu auð­veld­ara að sýna skiln­ing á aðstæðum fólks ef þú hefur þekk­ing­una.

Það hefur gefið mér alveg ótrú­lega mikið að vera í sam­tök­unum og taka þátt í starf­inu. Kynnast mörgu fólki sem veit nákvæm­lega hvað maður er að tala um og skilur hvað er í gangi. Það er ómet­an­legur stuðn­ingur. Þess vegna langar mig til að hvetja alla sem eru með IBD að ganga í sam­tökin og taka þátt í að byggja upp betra og sterkara félag,“ segir Edda sem hlakkar til að takast á við næstu verk­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur