Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Ég var ekki mjó, ég var að svelta mig“

„Ég var ekki mjó, ég var að svelta mig“

Fyr­ir­sætan Hunter McGrady er ein af þeim sem prýðir síður nýjasta heftis tíma­rits­ins Sports Ill­u­strated. Hunter er það sem kallað er fyr­ir­sæta í yfir­stærð en í við­tali við tíma­ritið Women’s Health seg­ist hún vera mjög ósátt við að fólk setji sama­sem­merki milli holda­fars hennar og að hún lifi óheil­brigðum lífs­stíl.

„Það er kjaftæði. 100 pró­sent. Ég gæti gefið fólk­inu í kringum mig upp­lýs­ingar um kól­estórólið mitt, hjartað, allt og ég er full­komin,“ segir Hunter.

Ólst upp á setti

Hunter steig fyrst af alvöru inní fyr­ir­sætu­brans­ann þegar hún var sextán ára. Þá var hún í amer­ískri stærð 2, sem er evr­ópsk stærð 34. Hún segir að hún hafi ekki notið vel­gengni í brans­anum eða fundið fyrir ham­ingju fyrr en hún tók þá ákvörðun að hætta að reyna að passa inní ákveðna stærð og taka lík­am­anum sem hún fædd­ist í fagn­andi.

„Móðir mín var fyr­ir­sæta, amma mín var fyr­ir­sæta, frænka mín var fyr­ir­sæta, faðir minn var leik­ari. Ég er fædd og upp­alin í Los Angeles. Ég var alltaf á setti, ég var alltaf með mynda­vélar í kringum mig, ég var alltaf í tökum og það var eitt­hvað sem mig lang­aði alltaf að gera. Ég horfði upp til móður minnar og mér fannst hún vera (og finnst hún enn vera) glæsi­leg­asta mann­eskjan í heim­inum. Mig lang­aði að vera eins og hún,“ segir Hunter þegar hún rifjar upp barn­æsk­una.

Fimmtíu kíló og borðaði bara salat

„Fyrsta mynda­takan mín var þegar ég var þriggja eða fjög­urra ára gömul en ég byrj­aði að gera þetta að aðal­starfi þegar ég var sextán ára,“ segir Hunter og bætir við að hún hafi verið rétt um fimm­tíu kíló á þeim tíma.

„Núna er ég í stærð 16 og ég lít allt öðru­vísi út. Þið getið ímyndað ykkur hve grönn ég var. Ég lifði svaka­lega óheil­brigðu lífi þegar ég var stærð 2. Ég var ekki mjó, ég var að svelta mig. Ég var í rækt­inni í marga klukku­tíma á dag. Hefð­bundin mál­tíð hjá mér var salat með engri sósu og það var morg­un­matur, hádeg­is­matur og kvöld­matur – og jafn­vel þá fékk ég sam­visku­bit. Af því að mér fannst ég vera eyði­leggja mögu­leika mína á að verða ofur­fyr­ir­sæta,“ segir Hunter.

Varð alvarlega þunglynd

Hún seg­ist hafa fengið mjög mann­skemm­andi leið­bein­ingar frá umboðs­skrif­stofum sem voru aldrei sáttar við útlit hennar.

„Maður er svampur þegar maður er sextán ára. Mér var sagt að ég væri of stór, að ég gæti ekki gert þetta, að ég þyrfti að létt­ast, að ég þyrfti að laga húð­ina mína. Þeir segja í raun og veru að maður þurfi að breyta öllu við sig sjálfan og koma aftur. Það er það sem er sagt við stúlkur og ég trúði því. Ég varð alvar­lega þung­lynd, eins og allir yrðu. Ég ákvað að þetta væri eitt­hvað sem ég gæti ekki gert. Það var ekk­ert meira sem ég gat gert. Ég hafði gefið mig alla í þetta og þetta var bara ekki í spil­unum fyrir mig.“

„Við vissum ekki hve stór þú værir“

Það var ein stund sem breytti öllu fyrir Hunter og þá ákvað hún að taka sér frí frá fyr­ir­sætu­störfum og klára skóla.

„Ég var ráðin í mynda­töku. Það var bola­fyr­ir­tæki í Los Angeles. Ég var ráðin og ég var svo spenn­andi. Ég hugs­aði: Guð minn góður, loks­ins! Nú er komið að því! Ég bað móður mína um að keyra mig því ég var ekki komin með bíl­próf og ég var svo spennt. Þetta var mín stoltasta stund. Við gengum inn og það var svo svalt að sjá ljósin og mynda­vél­arnar og allt sem því fylgir. Allir að ganga um og þetta var eins og í kvik­mynd. En allt í einu byrj­uðu allir að stara á mig. Ég fann fyrir skrýtnum straumum á sett­inu. Fram­leið­and­inn dró mig til hliðar og tal­aði við okkur móður mína og sagði:

„Jiminn, ég veit ekki hvernig ég á að segja þetta. Okkur finnst þetta leið­in­legt en við vissum ekki hve stór þú værir.“

Á þess­ari stundu var ég búin að upp­lifa svo mikið af von­brigðum að ég hugs­aði: Ég vil ekki stunda fyr­ir­sætu­störf ef þetta verður alltaf svona. Þetta var ekki þess virði.“

Varð loksins hamingjusamari

Eins og áður segir tók Hunter sér frí frá fyr­ir­sætu­störfum til að klára skóla og segir að sá tími hafi verið mjög góður.

„Ég hugs­aði: Guð gaf mér þennan eina lík­ama, sjáum hvernig hann breyt­ist. Ég varð þykk­ari, og ég var með slit­för og app­el­sínu­húð og ég var farin að lifa heil­brigð­ara lífi. Mér leið betur og loks­ins var ég ham­ingju­sam­ari. Ég naut lífs­ins og ég naut þess aftur að vera með fjöl­skyldu og vinum. Ég grét ekki kvölds og morgna,“ segir Hunter, sem kynnt­ist fyrst fyr­ir­sætum í yfir­stærð þegar hún var nítján ára gömul.

„Þá var ég í stærð 14 og ég sagði: Mig langar að prófa þetta. Þetta er leið fyrir mig að prófa að vinna í fyr­ir­sætu­heim­inum aftur. Mig langar að prófa. Ég gekk inn á Wilhelmina-umboðs­skrif­stof­una og fékk samn­ing sama dag. Og ég er ekki að grín­ast, á einni viku bók­aði ég þrjú mis­mun­andi verk­efni.“

Þú ert falleg. Þú ert þess virði

Í dag seg­ist Hunter vinna í því á hverjum degi að hugsa jákvætt um lík­ama sinn.

„Lyk­il­orðið er ferli. Þetta er eitt­hvað sem þarf að gera á hverjum degi. Ég held að aðal­at­riðið fyrir mig séu jákvæðar stað­hæf­ingar. Og ég veit að þetta hljómar eins og klisja. Ég vakna á morgn­ana, spyrjið bara unnusta minn, og horfi í spegil og segi við sjálfa mig: Þú ert fal­leg. Þú ert þess virði. Dagurinn í dag verður góður dagur. Já, þú ert með bólu en hún er flott á þér. Ég segi þessa hluti við mig áður en ég fer út því ég þarf á þessu að halda. Vegna þess að heim­ur­inn er þannig staddur á sam­fé­lags­miðlum að allir eiga eftir að segja þér eitt­hvað annað. Af því að við lifum í heimi þar sem verið er að segja okkur að líta öðru­vísi út. Að hafa öðru­vísi hár­greiðslu. Að þú verðir fal­leg/ur ef þú missir nokkur kíló. Ef þú segir þessi orð ekki við þig sjálfa/n þá mun eng­inn gera það.“

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco