Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Pyntaður og líkið bútað í sundur

Pyntaður og líkið bútað í sundur
Jamal Khas­hoggi.

Heims­byggðin hefur fylgst agn­dofa með máli blaða­manns­ins Jamals Khas­hoggi sem talið er að hafi verið myrtur á ræð­is­skrif­stofu Sádí-Arabíu í Tyrk­landi þar sem hann var að sækja um leyfi til að kvæn­ast unn­ustu sinni. Tyrknesk stjórn­völd full­yrða að 15 manna teymi hafi flogið frá Riyadh í Sádí-Arabíu til Istanbúl, gagn­gert til að myrða Khas­hoggi sam­kvæmt beinni skipun frá krón­prins­inum Mohammed bin Salman. Segjast þau hafa undir höndum sönn­un­ar­gögn sem sýni að Khas­hoggi hafi verið pynt­aður áður en hann lést og að lík hans hafi verið bútað niður. Stjórn­völd í Sádí-Arabíu neit­uðu í fyrstu allri aðild í mál­inu og full­yrtu að Khas­hoggi hafi verið sprell­lif­andi er hann yfir­gaf ræð­is­skrif­stof­una, en fjöl­miðlar vest­an­hafs segja að Sádar muni fljót­lega við­ur­kenna að Khas­hoggi hafi lát­ist í yfir­heyrslu sem hafi „farið úrskeiðis“.

Nátengdur hirðinni en féll í ónáð

Jamal Khas­hoggi var einn þekkt­asti blaða­maður araba­heims­ins. Hann starf­aði lengi í heima­land­inu, var í nánum tengslum við valda­el­ít­una þar og starf­aði meðal ann­ars sem tals­maður sendi­herra Sádí-Arabíu í Bret­landi um skeið. Eftir að krón­prins­inn, bin Salman, hóf að sölsa undir sig völd fór hann í útlegð og hélt til í London, Istanbúl og í Banda­ríkj­unum. Hann skrif­aði reglu­lega pistla í Washington Post þar sem hann gagn­rýndi ýmsar af aðgerðum bin Salmans; svo sem efna­hags­þving­anir gegn Katar, stríðs­rekst­ur­inn í Jemen, milli­ríkja­deilur við Kanada og Líbanon og hand­tökur á bar­áttu­konum fyrir auknum rétt­indum kvenna. Khas­hoggi var greini­lega með­vit­aður um mögu­legar afleið­ingar þessa því hann hafði sagt sínum nán­ustu að hann ótt­að­ist um líf sitt.

Krónprinsinn sífellt óútreiknanlegri

Sér­fræð­ingar eiga erfitt með að átta sig á hinum unga krón­prinsi, bin Salman. Heima fyrir hefur hann hrint í fram­kvæmd umbótum eins og að draga úr völdum trú­ar­lög­regl­unnar og auka rétt­indi kvenna. Á sama tíma hefur hann fang­elsað emb­ætt­is­menn, við­skipta­menn og aðra með­limi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar í við­leitni sinni til tryggja sig í sessi. Mann­rétt­indi eru enn fótum troðin og mann­rétt­inda­fröm­uðir hafa verið hand­teknir. Á alþjóða­vett­vangi ger­ist hann æ her­skárri, sam­an­ber deil­urnar sem vitnað er til að ofan og nú morðið á Khas­hoggi. Óljóst er hvaða afleið­ingar þetta mál hefur en vanga­veltur hafa verið uppi um að bin Salman verði jafn­vel steypt af stóli eða að hann herði tökin enn frekar og færi Sádí-Arabíu nær því að verða útlaga­ríki.

Olíuverð gæti rokið upp

Stjórn­völd í Sádí-Arabíu finna fyrir þrýst­ingi vest­rænna ríkja vegna máls­ins. Fjöl­margir styrkt­ar­að­ilar og fyr­ir­les­arar hafa dregið til baka þátt­töku sína í risa­stórri fjár­fest­a­ráð­stefnu sem kölluð er „Davos eyði­merk­ur­innar“og á að halda í Riyadh síðar í mán­uð­inum. Þeirra á meðal eru for­stjórar stærstu fyr­ir­tækja heims. Stjórn­völd í Sádí-Arabíu brugð­ust við með harð­orðri yfir­lýs­ingu um að öllum efna­hags­þving­unum skyldi svarað af fullri hörku. Í yfir­lýs­ing­unni var að finna ber­orða hótun um að Sádar muni beita olíu­vopn­inu ef að þeim verður þrengt, en landið fram­leiðir 10,5 millj­ónir tunna af olíu á dag sem sam­svarar 10 pró­sentum af heims­eft­ir­spurn. Láti Sádar verða af hót­unum gæti olíu­verð farið upp fyrir 100 doll­ara, jafn­vel upp að 200 doll­urum, sem hefði gríð­ar­leg áhrif á heims­hag­kerfið.

Bandaríkin í snúinni stöðu

Málið er erfitt fyrir Donald Trump og rík­is­stjórn hans. Trump hefur lagt höf­uð­á­herslu á að rækta tengslin við bin Salman og hirð hans og tengda­son­ur­inn, Jared Kuschner, á í nánum sam­skiptum við ráða­menn í Riyadh. Sádar gegna lyk­il­hlut­verki í bar­áttu Trump-stjórn­ar­innar gegn Íran og eitt hans fyrsta verk var að und­ir­rita vilja­yf­ir­lýs­ingu um 110 millj­arða doll­ara vopna­við­skipti við Sádí-Arabíu. Samband Banda­ríkj­anna og Sádí-Arabíu nær 73 ár aftur í tím­ann. Þrátt fyrir yfir­gnæf­andi sann­anir um aðild Sáda að morð­inu hefur Trump ekki viljað áfell­ast bin Salman. Þeir töl­uðu saman í síma í vik­unni og sagð­ist Trump trúa því ein­læg­lega þegar bin Salman sagð­ist ekk­ert hafa með málið að gera. Mike Pompeo hélt til Riyadh og Ankara í vik­unni til að ræða við ráða­menn þar. Þingmenn á Banda­ríkja­þingi hafa hins vegar sagt að þeir muni grípa til aðgerða geri Trump-stjórnin það ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco