Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Enn einn bletturinn á hina fögru íþrótt

Enn einn bletturinn á hina fögru íþrótt
Mynd/Pixabay

Það hefur löngum verið vitað að spill­ing grass­erar í knatt­spyrnu­hreyf­ing­unni. Spill­ingin hold­gervist meðal ann­ars í þeirri ákvörðun að næsta heims­meist­ara­keppni fer fram í Katar, landi þar sem ógern­ingur er að spila fót­bolta á þeim tíma sem mótið fer alla jafna fram. Þýska blaðið Spiegel hefur á und­an­förnum vikum opin­berað kerf­is­bundna spill­ingu í æðstu lögum knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar. Umfjöll­unin á rætur að rekja til gras­rót­ar­hreyf­ing­ar­innar Football Leaks og byggir á stærsta gagna­leka sög­unnar. Blaða­menn Spiegel, ásamt 80 manna teymi frá 15 af helstu fjöl­miðlum heims, hafa und­an­farna mán­uði farið yfir um 70 millj­ónir skjala sem sýna hvernig stærstu og rík­ustu félög heims, í krafti gríð­ar­legs fjár­magns, svín­beygja reglur og gildi íþrótt­ar­innar til þess að moka enn meiri fjár­munum undir sig. Lyk­il­menn innan hreyf­ing­ar­innar eru ýmist virkir þátt­tak­endur eða líta undan. Umfjöll­unin varpar meðal ann­ars ljósi á leyni­legar fyr­ir­ætl­anir stærstu liða Evrópu um stofnun ofur­deildar og hvernig olíufurstar í Persaflóa svifust einskis til að gera algjört miðl­ungs­lið í Bret­landi að einu besta liði í heimi á aðeins nokkrum árum.

Framlenging af Sepp Blatter

Ein­hverjir hafa eflaust talið að þegar Sepp Blatter hrökkl­að­ist úr for­seta­stól FIFA vegna yfir­gengi­legrar og lítt duld­innar spill­ingar að betri tímar væru í vændum. Eft­ir­mað­ur­inn, Gianni Infantino frá Sviss, boð­aði enda nýja og bjart­ari tíma en gögn Spiegel sýna að Infantino er lítið annað en fram­leng­ing á for­vera sínum, jafn­vel ívið ófor­skammaðri. Eitt hans fyrsta verk var að reka þá aðila sem voru að rann­saka innri mál FIFA, þar með talið hans eigin, og skipta þeim út fyrir mann­eskju sem hreins­aði nafn hans áður en hún tók til starfa. Hann skip­aði svo aðal­rit­ara sem hafði aldrei komið nálægt fót­bolta. Undir hans stjórn hefur FIFA dælt út millj­ónum doll­ara til aðild­ar­sam­band­anna að því er virð­ist án nokk­urrar ábyrgðar eða eft­ir­fylgni. Lúx­us­bif­reiðar, einka­þotur og dek­ur­ferðir til vil­hollra koma oftar en ekki við sögu.

Velgengni í skjóli olíuauðs

Stór hluti upp­ljóstr­anna snýr að enska stór­lið­inu Manchester City, enda hefur upp­gangur þess liðs á síð­ustu árum verið ævin­týra­legur. Manchester City var í besta falli miðl­ungs­klúbbur þegar hann var keyptur af fjár­fest­inga­sjóði í eigu kon­ungs­fjöl­skyld­unnar í Abu Dhabi árið 2008. Pen­ing­arnir flæddu inn í klúbb­inn og sýna gögn Spiegel hvernig stjórn­endur félags­ins fóru kerf­is­bundið á svig við fjár­halds­reglur FIFA til að fegra bók­haldið. Manchester City spil­aði eftir eigin leik­reglum og gátu þannig, ólíkt keppi­nautum þeirra, gert ævin­týra­lega styrkt­ar­samn­inga við tengda aðila sem síðan tryggðu þeim aðgang að bestu knatt­spyrnu­mönnum og -stjórum heims. Þegar UEFA tók sig til og ætl­aði að refsa Manchester City og franska lið­inu PSG, sem einnig er í eigu mold­ríkra olíufursta, beitti títt­nefndur Infantino, þá aðal­rit­ari UEFA, sér per­sónu­lega fyrir því að refs­ing­arnar yrðu ein­ungis til mála­mynda.

Sýna deildum og landsliðum fingurinn

Í tölvu­póstum Football Leaks er að finna leyni­leg plön stærstu klúbba Evrópu um að koma á fót svo­kall­aðri ofur­deild sem myndi gjör­breyta lands­lagi fót­bolt­ans til lang­frama. Planið er að 20 bestu (og rík­ustu) lið álf­unnar kljúfi sig frá eigin knatt­spyrnu­sam­böndum og stofni eigin deild. Þessi lið myndu svo skipta með sér gríð­ar­legum tekjum sem fengjust í formi sjón­varps­rétt­ar­samn­inga, sölu aðgöngu­miða og styrkt­ar­samn­inga. Þetta eru lið eins og Bayern München, Real Madrid, Barcelona, Manchester United, Liverpool, Juventus, PSG og fleiri. Gögnin sýna einnig að for­ráða­menn þess­ara liða hafa leitað leiða til að tryggja að leik­menn þess­ara liða þyrftu ekki að spila leiki með sínum eigin lands­liðum.

Stórgræða á afrískum vonarstjörnum

Gögnin gefa sömu­leiðis inn­sýn inn í hvernig stærstu lið heims not­færa sér unga leik­menn frá fátæk­ari löndum sér til hags­bóta. Þannig hefur Manchester City starf­rækt knatt­spyrnu­aka­dem­íur í nokkrum Afr­íku­löndum um ára­bil. Þar fá ungir leik­menn aðgang að þjálfun og menntun sem þeir ættu alla jafna ekki völ á, sem vissu­lega er jákvætt, en fram­tíð þeirra er þó ekki eins glæst og ætla mætti. Félagið lítur á þessa drengi eins og hvern annan varn­ing og samn­ing­arnir sýna að Manchester City hefur fullan yfir­ráða­rétt yfir þeim. Ef þeir eru ekki nægi­lega góðir fyrir félagið eru þeir lán­aðir, stundum þvert gegn eigin vilja, til smærri liða í Evrópu. Manchester City veit að fæstir þeirra muni nokkurn tíma spila leik fyrir félagið en aka­dem­ían þarf ekki að skila nema einni stjörnu svo að fjár­fest­ingin borgi sig, sam­an­ber þegar City seldi Kelechi Iheanacho til Leicester á 28 millj­ónir evra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco