Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nóg púður eftir í tunnunni í Úkraínu

Aukin harka er hlaupin í stríðið á milli Úkraínu og Rúss­lands eftir að Rússar tóku þrjú skip úkra­ínska hers­ins og skip­verja þeirra í gísl­ingu eftir að til átaka kom við Krím­skaga. Stjórn­völd í Kænu­garði svör­uðu með því að setja her­lög sem Petro Poros­henko, for­seti Úkraínu, segir nauð­syn­leg ef ske kynni að Rússar réð­ust til inn­göngu í landið.

Nóg púður eftir í tunnunni í Úkraínu
Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti.

Stríð hefur geisað í Úkraínu allt frá því Rússar hertóku Krím­skaga þvert á alþjóða­lög. Stríðið er að mestu bundið við Luhansk og Donetsk í aust­ur­hluta lands­ins en þar hafa upp­reisn­ar­menn, dyggi­lega studdir af Rússum, haldið uppi hern­aði gegn úkra­ínska hernum. Yfir 10 þús­und manns hafa fallið í átök­unum. Skær­urnar í vik­unni hófust þegar úkra­ínsku her­skipin freist­uðu þess að sigla frá Odessa til Mariupol sem bæði eru undir stjórn Úkraínu. Til þess þurftu þau að sigla fyrir Krím­skaga, í gegnum Kerch-sund og inn á Azovshaf þar sem Rússar ráða ríkjum. Til átaka kom þegar skipin sigldu inn á Kerch-sund og slös­uð­ust sex úkra­ínskir skip­verjar áður en Rússar tóku skipin yfir. Vilja Rússar meina að skipin hafi siglt ólög­lega inn í rúss­neska lög­sögu. NATO boð­aði til neyð­ar­fundar á mánu­dag­inn vegna atviks­ins þar sem nið­ur­staðan var að for­dæma fram­ferði Rússa.

Herlögin sem úkra­ínska þingið sam­þykkti á þriðju­dag­inn eru bundin við 10 af 27 hér­uðum lands­ins og gilda í 30 daga. Þetta eru þau héruð sem eiga landa­mæri að Rúss­landi, Trans-Dniester-hér­aði í Moldavíu þar sem rúss­neski her­inn er með við­veru og við strönd­ina að Azovshafi. Á þessum tíma verða mót­mæli og verk­föll bönnuð og almennir borg­arar geta verið kall­aðir í her­inn. Poros­henko segir að þetta hafi ekki áhrif á for­seta­kosn­ing­arnar sem fyr­ir­hug­aðar eru í mars.

Litlir grænir menn á Krím­skaga
Stríðið í Úkraínu hófst eftir að Viktor Yanukovych var hrak­inn úr stóli for­seta í bylt­ing­unni á Maidan-torgi í árs­byrjun 2014. Yanukovych var hlið­hollur Rússum en upp úr sauð þegar hann bakk­aði út úr við­skipta­samn­ingi sem gerður hafði verið við Evr­ópu­sam­bandið og hugð­ist styrkja tengslin við Rússa enn frekar. Um svipað leyti fór að bera á „litlum grænum mönnum“ á Krím­skaga, það er ómerktum her­mönnum sem lögðu undir sig mik­il­væg mann­virki. Velktist eng­inn í vafa um að þarna færu rúss­neskir her­menn sem nutu lið­sinnis upp­reisn­ar­manna hlið­hollum Rússum. Í byrjun mars efndu upp­reisn­ar­menn til „þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu“ þar sem sam­þykkt var að Krím­skagi skyldi til­heyra Rúss­landi og hafa Rússar haft fulla stjórn á Krím­skaga síðan. Aðeins fimm ríki við­ur­kenna yfir­ráð Rúss­lands á skag­anum sem hefur gríð­ar­legt hern­að­ar­legt mik­il­vægi fyrir Rússa, en þaðan stýra þeir Svarta­hafs­flota sínum.

„Við erum að verða vitni að enn einni gáleys­is­legri ögrun­inni af hálfu Rússa. Banda­ríkin munu sem fyrr standa með úkra­ínsku þjóð­inni gagn­vart ágengni Rússa.“ – Nikki Haley, sendi­herra Banda­ríkj­anna hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum.

Dæla vopnum og fjár­munum í upp­reisn­ar­menn
Í apríl 2014 hófust bar­dagar á milli upp­reisn­ar­manna og úkra­ínska stjórn­ar­hers­ins í Donetsk og Luhansk og standa þau átök enn yfir. Hernaður Rússa í Úkraínu er um margt óhefð­bund­inn. Rússar hafa löngum þrætt fyrir aðkomu sína að átök­unum en ekki þarf að velkj­ast í vafa um að upp­reisn­ar­menn­irnir eru ríku­lega studdir af stjórn­völdum í Kreml, bæði að vopnum og fjár­munum. Til að mynda er sannað að það voru upp­reisn­ar­menn sem skutu niður far­þega­þotu Mala­ysian Airlines yfir aust­ur­hluta Úkraínu sem varð 283 manns að bana. Samhliða því hafa Rússar beitt tölvu­árásum í Úkraínu og notað rík­is­fjöl­miðla sína grimmt í áróð­urs­stríði.

Við­skipta­bannið bítur
Fjöldi ríkja, þar með talið Ísland, sam­ein­að­ist um að beita Rússa efna­hags­þving­unum vegna fram­ferðis þeirra í Úkraíanu. Frá því fyrsta við­skipta­bannið – sem nær til stjórn­valda, fyr­ir­tæka og ein­stak­linga – var sett á í febr­úar 2014 hefur það verið fram­lengt með reglu­legu milli­bili og mun að öllum lík­indum verða fram­lengt aftur þegar það rennur út í febr­úar á næsta ári. Aðgerð­irnar hafa vissu­lega valdið Rússum vand­ræðum, en þau hafa einnig haft nei­kvæð áhrif á nokkrar af við­skipta­þjóðum Rússa í Evrópu. Í vik­unni greindi Washington Post frá því hvernig Rússar hafa farið í kringum bannið og haldið áfram að fjár­magna upp­reisn­ar­menn í Úkraínu með því að flytja fjár­muni milli Moskvu og Úkraínu í gegnum Suður-Ossetíu, land­svæði í Georgíu sem Rússar hafa hernumið frá því 2008.

„Þetta [Úkra­ínu­menn] eru stiga­menn. Þeir nota aðferðir stiga­manna, fyrst ögra þeir, svo beita þeir valdi og loks saka þeir aðra um að beita valdi.“ – Maria Zakharova, tals­maður rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Pútín sér leik á borði
Ólíklegt er að skær­urnar í vik­unni endi með alls­herjar stríði á milli ríkj­anna tveggja. Hins vegar er ekk­ert sem bendir til þess að Rússar láti Krím­skaga af hendi og láti af stuðn­ingi við upp­reisn­ar­menn í Úkraínu. Þvert á móti bendir margt til þess að átökin gætu harðnað enn frekar næstu miss­erin. Rússar gætu séð sér hag í því að magna upp átökin í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í mars til að veikja stöðu Poros­henko. Að sama skapi hafa vin­sældir Vladímírs Pútín heima fyrir dalað sökum þreng­inga í efna­hags­líf­inu og reynslan sýnir að þegar her­inn hnyklar vöðvana aukast vin­sældir hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco