Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Svona verður heimurinn 2019

Rétt eins og árið sem nú er á enda mun árið 2019 ein­kenn­ast af spennu og óvissu á alþjóða­vett­vangi. Átökin í Mið­aust­ur­löndum virð­ast engan endi ætla að taka og óút­reikn­an­leg utan­rík­is­stefna Donalds Trump getur gert ótryggt ástand enn eld­fimara. Evr­ópu­sam­bandið mun taka miklum breyt­ingum, bæði að innan og utan þar sem Brexit verður að veru­leika. Mannlíf fer yfir það helsta sem mun ger­ast á árinu 2019.

Svona verður heimurinn 2019
Mynd/Pixabay|||||||

Stefnir í sársaukafullt Brexit

Bretland mun að öllu óbreyttu ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu þann 29. mars. Það á hins vegar enn eftir að koma í ljós á hvaða for­sendum það verður. Breska þingið mun kjósa um óvin­sælan samn­ing Theresu May í byrjun árs­ins og verði hann sam­þykktur hefst aðlög­un­ar­ferli við útgöngu.

Rík­is­stjórn May er hins vegar þegar farin að und­ir­búa sig fyrir útgöngu án samn­ings og sviðs­myndin sem við blasir er allt annað en fal­leg. Bresk stjórn­mál voru far­sa­kennd í ár og ekk­ert bendir til ann­ars en að það sama verði uppi á ten­ingnum árið 2019. Póli­tískt líf Theresu May og rík­is­stjórnar hefur hangið á blá­þræði í marga mán­uði og mun gera það áfram.

Miklar breytingar innan ESB

Miklar breyt­ingar verða á ásjónu Evr­ópu­sam­bands­ins. Kosn­ingar til Evr­ópu­þings verða í maí þar sem kosið verður um 705 sæti í stað 751 sætis áður vegna útgöngu Bret­lands úr sam­band­inu. Líkt og í fyrri kosn­ingum verður kosn­inga­þátt­taka lág og popúlistar og jað­ar­flokkar stela athylg­inni. Ný and­lit munu skipa for­ystu ráð­herra­ráðs­ins, þings­ins og fram­kvæmda­stjórn­ar­innar. Evran fagnar sömu­leiðis 20 ára afmæli sínu árinu sem jafn­framt verður síð­asta ár Marios Draghi í emb­ætti seðla­banka­stjóra.

Nýr seðla­banka­stjóri tekur við evr­unni í mun betra standi en Draghi sem þurfti að leiða gjald­mið­il­inn í gegnum krísur í Grikk­landi, Portúgal og á Spáni. Þó er við­búið að efna­hags­stefnan harðni er líða tekur á árið. Inn­spýt­ing­ar­að­gerðir seðla­bank­ans renna sitt skeið á enda næsta haust og við­búið er að eitt síð­asta verk Draghis verði að hækka stýri­vexti. Augu áhyggju­fullra fjár­festa bein­ast nú að Ítalíu þar sem popúlistar eru við völd. Ný fjár­lög þar í landi munu auka enn á skuld­setn­ingu í trássi við reglur evru­svæð­is­ins og var hún næg fyrir. Á póli­tíska svið­inu munu ólýð­ræð­is­legu popúlist­arnir í Ung­verja­landi og Póllandi halda áfram að reyna á þol­in­mæði kollega sinna með umdeildum og allt að því fasískum til­burðum.

Trump forherðist

Donald Trump mun glíma við nýjan veru­leika þegar demókratar taka völdin í full­trúa­deild þings­ins. Þeir munu vafa­laust gera for­set­anum lífið leitt og efna til hinna ýmsu rann­sókna gegn Trump, til að mynda freista þess að fá umdeilda skatta­skýrslu hans fram í sviðs­ljósið. Á sama tíma fer leitin að for­seta­fram­bjóð­anda Demókra­ta­flokks­ins á fullt. Fleiri ákærur munu birt­ast í tengslum við rann­sókn Roberts Mueller á afskiptum Rússa af for­seta­kosn­ing­unum 2016 en Trump mun sitja sem fast­ast og for­herð­ast enn frekar eftir því sem sótt verður harðar að honum.

Banda­ríska hag­kerfið hægir á sér eftir óvenju langt hag­sæld­ar­skeið sem mun ergja Trump enn frekar. Gjáin milli íhalds­manna og frjáls­lyndra breikkar með til­heyr­andi sjón­ar­spili og lág­kúru. Það verður þó ekk­ert í lík­ingu við 2020. Norðan landamær­anna þarf algjör and­staða Trump, Justin Trudeau, að sækj­ast eftir end­ur­kjöri. Vin­sældir hans hafa dalað nokkuð og sækir Íhalds­flokk­ur­inn hart að honum.

Hvað gerir veikur Pútín?

Vladimir Pútín er í vand­ræðum heima­fyrir. Hag­kerfið hefur glímt við ára­langa stöðnun og ekki er útlit fyrir að við­skipta­þving­unum, sem þrátt fyrir fjálg­legar full­yrð­ingar um annað hafa skaðað Rússland, verði aflétt í bráð. Vin­sældir Pútíns, sem fóru í hæstu hæðir eftir inn­limun Krím­skaga, fara dvín­andi. Almenn­ingur er orð­inn þreyttur á kostn­að­ar­sömum stríðs­rekstri í Sýrlandi og hækkun á elli­líf­eyr­is­aldri varð upp­spretta mót­mæla.

Þetta er hættu­leg blanda. Pútín gæti reynt að afla sér auk­inna vin­sælda með stríðs­á­tökum þar sem Úkraína er aug­ljós­asta skot­markið. Heima­fyrir herðir hann tökin á fjöl­miðlum og sam­fé­lags­miðlum enn frekar og má nú þegar sjá þess merki, sam­an­ber aðför hans gegn rapptón­list.

Hræringar á Norðurlöndum

Bæði Danir og Finnar ganga til kosn­inga á árinu. Í Danmörku er það bláa blokkin, sem sam­anstendur af hægri flokk­unum, sem stjórnar með minnsta mögu­lega meiri­hluta og fátt bendir til ann­ars en að kosn­ing­arnar í ár verði hnífjafnar. Sem stendur er rauða blokkin með nauman meiri­hluta í könn­unum.

Í Finn­landi mæl­ast Sós­í­alde­mókratar stærstir og útlit er fyrir stjórn­ar­skipti. Munar þar mestu um að hinn þjóð­ern­is­sinn­aði popúlista­flokkur Sannir Finnar klofn­aði á kjör­tíma­bil­inu. Þá gæti farið svo að kjósi þurfi á ný í Svíþjóð þar sem ekki hefur tek­ist að mynda rík­is­stjórn eftir þing­kosn­ing­arnar 9. sept­em­ber.

Flokkurinn herðir tökin

Hug­mynda­fræði for­set­ans Xi Jinping hefur nú verið greypt í stjórn­ar­skrá Kína um leið og tryggt var að hann getur setið í emb­ætti til ævi­loka. Þrátt fyrir það er Komm­ún­ista­flokk­ur­inn enn óör­uggur um stöðu sína sem mun end­ur­spegl­ast í enn ágeng­ari rit­skoð­un­ar­til­burðum og áfram­hald­andi ofsóknum gegn minni­hluta­hópum, ekki síst gegn Úígúrum.

Á næsta ári verða 30 ár liðin frá hinni blóð­ugu stúd­enta­upp­reisn á Torgi hins himneska friðar og má búast við grimmri rit­skoðun af hálfu kín­verskra yfir­valda í kringum þann við­burð. Efna­hag­ur­inn verður fyrir hnjaski, meðal ann­ars vegna harð­andi við­skipta­stríðs gegn Donald Trump.

Stríðandi stórveldi glíma við innanmein

Vonir standa til að hægt verði að hefja upp­bygg­ingu í Sýrlandi eftir ára­langar hörm­ungar þótt Bashar al-Assad reyni að leggja stein í götu upp­bygg­ing­ar­innar. Lítið lát er á hörm­ung­unum í Jemen þótt stór­veldin sem þar tefla – Íran og Sádí Arabía – glími við mikil inn­an­mein.

Ákvörðun Trumps um að draga her­lið Banda­ríkja­hers frá Sýrlandi gæti hins vegar raskað öllu valda­jafn­vægi á svæð­inu og leitt til enn frek­ari hörm­unga. Klerka­stjórnin í Íran stendur á veik­ari fótum en áður, meðal ann­ars fyrir til­stilli við­skipta­þving­ana Banda­ríkja­stjórnar. Önnur bylt­ing kann að vera í aðsigi. Í krafti olíu­auðs­ins hefur Sádí Arabía kom­ist upp með alls kyns óhæfu­verk en krón­prins­inn Mohammed bin Salman gekk of langt þegar hann lét myrða blaða­mann­inn Jamal Kashoggi. Hann á eftir að finna fyrir auk­inni ein­angrun, bæði heima­fyrir og frá Vest­ur­löndum.

Í Ísrael freistar Benjamin Net­anyahu að verða sá for­sæt­is­ráð­herra sem lengst hefur setið á stóli, það er tak­ist honum að sitja fram í júlí. Það er alls óvíst því spill­ing­ar­málin gegn Net­anyahu og eig­in­konu hans hrann­ast upp og valda­skipti á næsta ári eru því ekki úti­lokuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco