Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Það var reynt að vega að mér um leið og ég kom inn í ráðuneytið“

Sigríður Á. Andersen er álitin með umdeild­ari stjórn­mála­mönnum lands­ins þótt sjálf upp­lifi hún sig ekki umdeilda. Hún heill­að­ist af frjáls­hyggju sem barn eftir að hafa horft á sjón­varps­þátt með Hannesi Hólm­steini Giss­ur­ar­syni og Milton Friedman en hún gekk svo í ung­liða­hreyf­ingu Sjálf­stæð­is­flokks­ins um leið og hún hafði aldur til. Eftir að hafa reynt við lækn­is­fræði í háskóla sneri hún sér að lög­fræði þar sem þrætu­listin átti vel við hana og gegnir hún nú æðsta emb­ætti dóms­mála í land­inu.

„Það var reynt að vega að mér um leið og ég kom inn í ráðuneytið“
|||

Í dag er nákvæm­lega ár síðan stjórn­ar­sátt­máli rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna var kynntur. Sam­starfið hefur að mestu gengið stór­á­falla­laust fyrir sig en það hefur þó mætt á einum ráð­herra umfram aðra, dóms­mála­ráð­herr­anum Sigríði Á. Andersen sem meðal ann­ars hefur þurft að verj­ast van­traust­s­til­lögu í þing­inu vegna umdeildrar skip­unar dóm­ara í Lands­rétt. Þetta var annar storm­ur­inn á stuttum tíma því rík­is­stjórnin sem hún sat í áður hafði fallið vegna trún­að­ar­brests sem sam­starfs­flokkur taldi að hefði orðið í máli er laut að eldri veit­ingu upp­reistar æru. Þrátt fyrir þessi hita­mál upp­lifir Sigríður sig ekki sem umdeildan stjórn­mála­mann og seg­ist mæta miklum vel­vilja í störfum sínum.

Þarf að gera fleira en gott þykir

Van­traust­s­til­lagan var borin upp eftir að Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að Sigríður hafði brotið gegn mats­kenndu ákvæði stjórn­sýslu­laga við skipan dóm­ara í Lands­rétt sem þá var verið að koma á lagg­irnar. Hæf­is­nefnd hafði lagt fram til­lögu um 15 hæf­ustu umsækj­end­urna en Sigríður breytti þeirri til­lögu, tók fjóra umsækj­endur af lista og setti fjóra aðra á list­ann í stað­inn. Þrátt fyrir kröfur and­stæð­inga um afsögn og að könnun Maskínu og Stund­ar­innar sýndi að þrír af hverjum fjórum vildu að hún segði af sér, stóð Sigríður föst á sínu og sagð­ist ein­fald­lega ósam­mála nið­ur­stöðu Hæsta­réttar. Við það stendur hún enn.

„Það er nú þannig, hvort sem er í stjórn­málum eða þegar menn eru að reka eitt­hvert apparat þá þarf maður að gera fleira en gott þykir. Ég stóð frammi fyrir ákveðnum aðstæðum,“ segir Sigríður en Alþingi hafi gert henni ljóst að það myndi ekki sam­þykkja list­ann óbreyttan og því hafi hún orðið að gera breyt­ingar.

„Málið var komið í póli­tískar skot­grafir áður en ég aug­lýsti emb­ættin laus til umsóknar, þá var strax byrjað að hóta ráð­herr­anum að hann skyldi ekki voga sér að koma með svona lista eða hinsegin og mér fannst það miður. Þegar listi nefnd­ar­innar lá fyrir kom ekki annað til greina en að kanna hug alþing­is­manna áður en ég bæri málið undir þingið, eins og mér bar að gera sam­kvæmt lögum. Þá var mér gert ljóst að list­inn yrði ekki sam­þykktur óbreyttur. Ég átti því ekki ann­arra kosta völ en að leit­ast við að leggja fram lista sem ég taldi að þingið gæti fellt sig við. Ég lagði mat á vinnu hæf­is­nefndar eins og mér ber skylda til að gera og ég gerði mál­efna­legar breyt­ingar á list­anum eftir minni bestu sam­visku. Meðal ann­ars fjölg­aði ég konum við rétt­inn sem varð þess vald­andi að í fyrsta sinn í sögu lýð­veld­is­ins var sett á lagg­irnar jafn­mik­il­væg stofnun sem dóm­stóll er með jöfnum kynja­hlut­föllum. Ég vog­aði mér líka að líta til ára­tuga athuga­semda­lausra starfs­reynslu dóm­ara sem voru meðal umsækj­enda og bætti þeim í  hóp hæf­ustu umsækj­enda, ekki í stað­inn fyrir þá fimmtán sem nefndin hafði lagt til heldur til við­bótar þeim.“

Sigríður Á. Andersen er álitin með umdeild­ari stjórn­mála­mönnum lands­ins þótt sjálf upp­lifi hún sig ekki umdeilda.

Dóm­stólar eru hins vegar ekki sam­mála Sigríði um að hún hafi rann­sakað málið nægi­lega og hefur dæmt tveimur dóm­urum miska- og skaða­bætur vegna þess að gengið var fram hjá þeim um skip­an­ina, nú síð­ast í októ­ber þegar Hér­aðs­dómur Reykja­víkur gerði rík­inu að greiða einum umsækj­enda 4 millj­ónir í skaða­bætur og 1,1 milljón í miska­bætur. Sigríður segir það mál í áfrýj­un­ar­ferli.

„Það er hins vegar lög­fræði­lega áhuga­vert fyrir þá sem eru að velta þessu fyrir sér, eins og starfs­mönnum hjá hinu opin­bera, hvort það verði þannig að í fram­tíð­inni að menn geti sótt skaða­bætur fyrir það að fá ekki starf. Það hefur hingað til ekki verið hægt og nýlega komst Hæsti­réttur að því að maður sem hafði sann­ar­lega verið ólög­lega vikið frá störfum fékk ekki miska­bætur.“

Aðspurð seg­ist Sigríður ekki á neinum tíma­punkti hafa íhugað að segja af sér. Van­traust­s­til­lagan var felld með 33 atkvæðum gegn 29 en þar vakti sér­staka athygli að tveir stjórn­ar­liðar, þau Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jónsson, greiddu atkvæði með til­lög­unni. Sigríður segir það í sjálfu sér ekki hafa komið á óvart. Þessir tveir þing­menn VG hafi ekki stutt til­lögu síns for­manns um að ganga til þessa rík­is­stjórn­ar­sam­starfs. Rík­is­stjórn­ar­sam­starf jafn­ó­líkra flokka og skipa þessa stjórn kalli á mála­miðl­anir. „Það felst í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi að menn styðja þá rík­is­stjórn og þá ráð­herra sem í henni starfa. Að öðrum kosti er rétt að líta svo á að menn styðji ekki rík­is­stjórn­ina. Þannig er það nú bara. Að minnsta kosti er það öllum ljóst sem hafa ein­hverja reynslu í stjórn­málum að öðru­vísi gangi ekki rík­is­stjórn­ar­sam­starf.“

Lét geðshræringu ná á sér tökum

Aðspurð út í rík­is­stjórn­ar­sam­starfið segir Sigríður mik­inn mun á rík­is­stjórn­inni sem nú situr og rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar sem áður sat. Björt fram­tíð ákvað að slíta því sam­starfi sökum trún­að­ar­brests sem þau töldu hafa orðið gagn­vart Sjálf­stæð­is­flokknum eftir að í ljós kom að faðir Bjarna Bene­dikts­sonar hafði skrifað undir með­mæla­bréf fyrir dæmdan kyn­ferð­is­brota­mann sem sótt hafði um upp­reist æru nokkrum árum áður. Sigríður lá undir ámæli fyrir að birta ekki opin­ber­lega gögn í máli ann­ars manns sem hlotið hafði upp­reist æru fyrir hennar ráð­herra­tíð og fyrir að hafa greint Bjarna frá aðkomu föður hans að máli enn ann­ars manns sem fengið hafði upp­reist æru.

„Ég myndi segja að það væri einkum og sér í lagi reynsla þeirra sem sitja í þess­ari rík­is­stjórn. Þeir voru kannski lík­ari flokk­arnir sem voru í rík­is­stjórn­inni þar á undan en þetta sam­starf gengur miklu mun betur. Menn átta sig á þeirri ábyrgð sem þeir bera þegar þeir taka sæti í rík­is­stjórn. Þá þýðir ekki að vera í upp­námi út af alls kyns álita­efnum. Menn þurfa að vera yfir­veg­aðir og fag­legir í sinni vinnu og gera sér grein fyrir að þeim ber skylda til að reka til­tekin mál áfram og láta sín ráðu­neyti virka.“

„Mín aðkoma að fyr­ir­bær­inu upp­reist æru var sú að neita að veita hana kyn­ferð­is­brota­manni, þvert gegn ráð­legg­ingum emb­ætt­is­manna minna, og um leið tók ég ákvörðun um að end­ur­skoða laga­á­kvæði um upp­reist æru.“

Viltu meina að fyrri rík­is­stjórn hafi fallið á smá­at­riðum? „Það liggur fyrir að sam­starfs­flokk­arnir létu geðs­hrær­ingu ná á sér þannig tökum að þeir risu ekki undir þeirri ábyrgð sem menn þurfa að gera í rík­is­stjórn, þegar menn í skjóli nætur ákveða að slíta stjórn­ar­sam­starfi með vísan til máls sem rík­is­stjórnin hafði ekk­ert með að gera, máli úr tíð fyrri rík­is­stjórnar án þess svo mikið sem að ræða við sam­starfs­ráð­herrana. Mín aðkoma að fyr­ir­bær­inu upp­reist æru var sú að neita að veita hana kyn­ferð­is­brota­manni, þvert gegn ráð­legg­ingum emb­ætt­is­manna minna, og um leið tók ég ákvörðun um að end­ur­skoða laga­á­kvæði um upp­reist æru. Þetta gerði ég áður en mál frá fyrri tíð komu til opin­berrar umræðu. Ég held að það sé komið í ljós eftir á hví­lík gönu­hlaup þessi stjórn­ar­slit voru sem að á end­anum varð þeim flokkum, að minnsta kosti öðrum þeirra að ald­urtila. Hinn flokk­ur­inn, þótt hann tóri enn þá á Alþingi, finnst mér ekki hafa mikla skírskotun í þjóð­fé­lagið í dag,“ segir Sigríður og á þar við Viðreisn.

„Ég velti því fyrir mér hvaða erindi þau eru að reka í dag. Ég held að þessi stjórn­ar­slit hafi verið þeim þung­bær og þótt það hafi verið Björt fram­tíð sem átti upp­hafið að þeim þá gekk Viðreisn í að ger­ast spor­göngu­menn þess flokks. Þau eru fyrst og fremst með það á dag­skrá hjá sér að Ísland ger­ist aðili að Evr­ópu­sam­band­inu og flokk­ur­inn er svo­kall­aður eins máls flokkur. Slíkir flokkar fara oft erind­is­leysu. En ég ætla svo sem ekk­ert að vera að fella dóma yfir öðrum flokkum en sagan er hins vegar ólygn­ust.“

Sannfærðist af Hannesi Hólmsteini í sjónvarpinu

Líkt og margir núver­andi og fyrr­ver­andi áhrifa­menn í Sjálf­stæð­is­flokknum lauk Sigríður stúd­ents­prófi úr MR og fór í lög­fræði í Háskóla Íslands þaðan sem hún lauk emb­ætt­is­prófi. Færri vita hins vegar að hún hóf fyrst nám í lækn­is­fræði áður en hún skipti yfir í lög­fræð­ina. Þótt hún telji aðspurð að hún hefði orðið ágætis læknir telur hún lög­fræð­ina eiga betur við sig. „Þetta húmaníska fag sem lög­fræðin er átti betur við mig en raun­vís­indin í lækn­is­fræð­inni.“

Sigríður er einn stofn­enda vef­mið­ils­ins Andríki.is sem á blóma­skeiði póli­tísku vefrit­anna var einn frjóasti vett­vangur stjórn­mála­um­ræðu í land­inu. Vefurinn er reyndar enn til og er eig­in­maður hennar, Glúmur Björns­son, einn rit­stjóra en eins og nafnið gefur til kynna var vef­ur­inn flagg­skip frjáls­hyggju á Íslandi. Sjálf hefur Sigríður hallað sér að frjáls­hyggju frá því hún var barn að aldri.

„Ég hafði alltaf gaman af póli­tískri umræðu sem krakki og ég man eftir því þegar ég var 12 eða 13 ára að ég horfði á Hannes Hólm­stein, sem ég þekkti þá nátt­úr­lega ekki neitt, tala við Milton Friedman í sjón­varp­inu. Ég man að Hannes tal­aði svo skýrt þarna í sjón­varp­inu að jafn­vel barn gat skilið hann sem er reyndar eitt­hvað sem stjórn­mála­menn ættu að hafa að leið­ar­ljósi. Ég held ég geti sagt að þarna hafi Hannes Hólm­steinn opnað augu lít­illar stúlku í Vest­ur­bænum,“ segir Sigríður og hlær. „Ég gekk svo strax í Heimdall þegar ég var 15 ára, um leið og ég hafði aldur til.“

„Mér finnst ég hafa svo normal skoð­anir, algjör­lega með­al­hófs. Það hefur ekk­ert elst af mér, nema síður sé.“

Aðspurð hvort hún sé enn jafn­rót­tækur frjáls­hyggju­maður og hún var á árum áður svarar Sigríður: „Ég lít alls ekki á mig sem rót­tæka. Mér finnst ég hafa svo normal skoð­anir, algjör­lega með­al­hófs. Það hefur ekk­ert elst af mér, nema síður sé.“ Sigríður er ekki mikið fyrir að liggja á skoð­unum sínum. Hún talar hreint út og ljóst að hún er ekki í stjórn­málum til að þókn­ast þeim sem hæst tala og stefnu­festa hennar veldur oft fjaðrafoki. „Ég upp­lifi mig ekki umdeilda. Það eru hins vegar margir sem hrósa mér en bæta svo við: „En ég er ekki alltaf sam­mála öllu sem þú segir.“ Þá spyr ég oft á móti: „Hvað er það helst sem þú ert ekki sam­mála mér um, getur þú nefnt mér eitt­hvert eitt atriði?“ Stundum geta menn það ekki en ef þeir geta nefnt eitt­hvað þá er ég alltaf til­búin að ræða það og þá endar það oft­ast þannig að við endum sam­mála um það atriði. Auðvitað er fólk aldrei sam­mála um allt en ég hef þó ekki greint annað en mik­inn vel­vilja í minn garð sem stjórn­mála­manns. Mér er umhugað um að hafa allar stað­reyndir uppi á borðum og tala hreint út. Það kann að vera að mönnum mis­líki þær stað­reyndir eða hafa aðrar skoð­anir á þeim og þá býðst mönnum að rök­styðja það.“

Konur ekki beittar skipulegu misrétti

Í þessu sam­hengi má nefna Facebook-færslu Sigríðar sem birt­ist á kvenna­frídeg­inum þar sem ráð­herr­ann fjall­aði um fram­setn­ingu þeirra sem stóðu að hátíð­ar­höld­unum þann dag. Á vefnum kvenna­fri.is var því slegið föstu að konur væru ein­ungis með 74 pró­sent af með­al­at­vinnu­tekjum karla en Sigríður benti á að það væri rangt því þegar búið væri að leið­rétta fyrir mæl­an­legum þáttum við útreikn­ing á launa­mun kynj­anna væri mun­ur­inn ekki nema 5%. Vísaði hún um þetta til sömu skýrslu Hag­stof­unnar og kvenna­fri.is hafði stuðst við. Þá væru ungar konur hjá hinu opin­bera með ívið hærri laun en karlar og lagði hún því til að ungu kon­urnar mættu aðeins fyrr til vinnu dag­inn eftir. Þessi ummæli Sigríðar vöktu hörð við­brögð en hún seg­ist ein­ungis hafa verið að benda á að aðstand­endur hátíð­ar­hald­anna hafi farið full frjáls­lega með stað­reyndir.

„Ég heyrði svo ekki betur en að dag­inn eftir hafi þær fall­ist á það með mér að þetta væri alveg rétt sem ég væri að benda á en að þær ætl­uðu samt ekki að breyta sinni aðferð. Þær hafa allan rétt til þess en mér finnst mjög mik­il­vægt að allir viti hvernig raun­veru­lega er í pott­inn búið þannig að hver og einn geti dregið eigin ályktun af þessum tölum.“

„Það getur verið að konur for­gangsraði öðru­vísi, að þær fari fyrr heim úr vinnu til að sækja börnin, þær séu frekar heima með börnin og þá er það eitt­hvað sem við eigum að ræða ef menn telja það vanda­mál.“

Sigríður seg­ist í raun hafa þarna verið að end­ur­taka það sem hún hefur haldið fram um ára­bil, að það þurfi að taka til­lit til mæl­an­legra þátta þegar launa­munur kynj­anna er reikn­aður út. „Það sem ég er að benda á er að það er ein­hver munur á launum kynj­anna en það er ekki víst að það sé vegna þess að það sé verið með skipu­legum hætti að beita konur ein­hverju mis­rétti. Ég held að það sé ekki staðan á Íslandi í dag heldur að það sé sam­fé­lagið sem ýti konum í til­teknar áttir, að þær taki vissar ákvarð­anir frekar en karlar. Það getur verið að konur for­gangsraði öðru­vísi, að þær fari fyrr heim úr vinnu til að sækja börnin, þær séu frekar heima með börnin og þá er það eitt­hvað sem við eigum að ræða ef menn telja það vanda­mál. Af hverju velja konur þessa leið frekar en karlar? Það er ekki verið að ræða það í þess­ari launa­mis­rétt­isum­ræðu.“

Mönnum hugnaðist ekki að hafa mig í þessu ráðuneyti

Í fram­hald­inu berst talið að MeToo-bylt­ing­unni og upp­lifun Sigríðar af henni. „Ef konum fannst nauð­syn­legt að stíga fram og lýsa sinni reynslu þá er frá­bært að þær skyldu gera það og að á þær hafi verið hlustað. Ég held að þetta hafi haft heil­mikil áhrif á margt í sam­skiptum kynj­anna og að mestu leyti til hins betra. Það hefur stundum verið sagt við mig að ég þreyt­ist ekki á að reyna að ala upp full­orðið fólk. Ég á það meira að segja til að kalla á eftir fólki úti á götu í svarta­myrkri sem er ekki með end­ur­skins­merki að setja það upp og lifi svo í von­inni um að það taki ábend­ing­unni. MeToo-bylt­ingin er svo­lítið af þeim meiði, það er verið að reyna að ala upp full­orðið fólk, kenna því við­eig­andi hegðun. Það getur verið mjög erfitt að gera það en það er til­raun­ar­innar virði.“

Sigríður seg­ist aldrei hafa fundið fyrir því að hallað hafi á hana vegna kyn­ferðis eða að hún kann­ist við það að konur í stjórn­málum fái harka­legri með­ferð en karlar.

Sjálf seg­ist Sigríður aldrei hafa fundið fyrir því að hallað hafi á hana vegna kyn­ferðis eða að hún kann­ist við það að konur í stjórn­málum fái harka­legri með­ferð en karlar. „Það hefur verið talað um að konur eigi erfitt upp­dráttar en ég hef aldrei orðið vör við það. Ég fór fyrst í próf­kjör í Sjálf­stæð­is­flokknum árið 2006 og fann ekk­ert nema vel­vilja og náði mjög góðum árangri af nýliða að vera, algjör­lega óþekkt þannig séð. Ég hef alltaf fengið mik­inn stuðn­ing þar sem ég hef gefið kost á mér.“ Sigríður bendir á að í próf­kjörum og kjöri til Alþingis séu ein­ungis 63 sæti í boði og því liggi það í hlut­ar­ins eðli að færri kom­ist að en vilja.

„Það er líka mikil bar­átta milli karla og það eru margir karlar í sárum eftir hvert ein­asta próf­kjör í öllum flokkum og eftir kosn­ingar, alveg eins og konur. Það er alveg vegið að körlum í póli­tík­inni líka. Ég fann alveg að það var reynt að vega að mér um leið og ég kom inn í ráðu­neytið. Mönnum hugn­að­ist það ekki að ég kæmi inn í þetta ráðu­neyti, engan veg­inn. Það var reynt frá fyrsta degi en hvort það hafi verið af því að ég var kona, ég veit það ekki. Ætli það hafi ekki frekar verið vegna skoð­ana minna og stefnu­festu.“

Bylting með rafrænni þinglýsingu

Des­em­ber­mán­uður er einn anna­samasti tími stjórn­mála­manns­ins. Fjár­lögin eru keyrð í gegn og ráð­herrar kepp­ast við að tæma þing­mála­lista sína. Sigríður er þar engin und­an­tekn­ing og hjá henni er það for­gangs­at­riði að koma í gegn frum­varpi um raf­ræna þing­lýs­ingu sem hún segir fela í sér bylt­ingu fyrir hinn almenna borg­ara. „Í dag er það þannig að þegar þú kaupir þér íbúð þá þarft þú eða fast­eigna­sal­inn þinn að fara með kaup­samn­ing­inn til sýslu­manns í við­kom­andi umdæmi þar sem fast­eignin er og láta þing­lýsa honum. Það hefur tekið mis­langan tíma. Í sumar lentum við í því að það tók allt of langan tíma að þing­lýsa skjölum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 4-5 vikur sem er algjör­lega óásætt­an­legt.“

Með nýju verk­lagi, gangi frum­varpið í gegn, verður hins vegar hægt að þing­lýsa skjölum á Netinu í gegnum sér­staka gátt og það mun því ekki taka nema nokkrar sek­úndur að þing­lýsa skjali. Ef eitt­hvað mis­jafnt kemur upp, til dæmis ef selj­andi fast­eignar er í raun ekki rétt­mætur eig­andi hennar, þá gerir kerfið við­vart. „Þetta mun verða bylt­ing. Þetta mál hefur verið til umræðu í um 10 ár og nú þarf ein­fald­lega að taka skrefið.“

Mætti skoða hvort allur orkupakkinn verði undanskilinn

Annað mál sem dúkk­aði óvænt upp á haust­þingi og valdið hefur deilum er hinn svo­kall­aði þriðji orku­pakki ESB og innan stjórn­ar­flokk­anna skipt­ast menn í tvær fylk­ingar. Sigríður segir að þriðji orku­pakk­inn feli ekki í sér fram­sal vald­heim­ilda umfram aðrar reglu­gerðir sem Ísland hefur tekið upp í gegnum EES-samn­ing­inn. Hins vegar sé eðli­legt að spurn­ingar vakni í hvert sinn sem reglu­gerðir sem þessar eru inn­leiddar. „Það er alveg ljóst að mörgum Íslend­ingum blöskrar það fram­sal sem hefur átt sér stað frá Íslandi til erlendra stofn­ana, lög­gjafa og jafn­vel dóm­stóla. Stjórn­mála­menn verða að hlusta á þessar raddir, hlusta á þetta fólk hvort sem þessi þriðji orku­pakki í sjálfu sér sé til­efni til þeirrar geðs­hrær­ingar sem hefur gripið um sig meðal sumra.“

Ráð­herr­ann veltir því upp hvort mis­tök hafi verið gerð í upp­hafi þegar ákveðið var að und­an­skilja orku­mál ekki frá EES-samn­ingnum. „Það var ekki gert og ef menn telja að það hafi verið mis­tök þá er sjálf­sagt að skoða það hvort að við ættum að hefja við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið um hvort und­an­skilja eigi allan orku­pakk­ann, ekki bara þriðja orku­pakk­ann heldur þann við­auka sem snýr að orku­málum, alfarið. Þriðji orku­pakk­inn sem slíkur er bara lít­ill hluti af orku­málum EES-samn­ings­ins.“

Eigi að síður telur Sigríður að EES-samn­ing­ur­inn hafi reynst mikið gæfu­spor fyrir Ísland og eins og staðan er núna farn­ist Íslandi best að hafa hann. „Auðvitað hefði mér fund­ist betra ef Alþingi sjálft, og íslenskir stjórn­mála­menn, kæmu sér saman um svona reglur; kæmu sér saman um að stöðva ein­okun rík­is­ins á til­teknum mörk­uðum, eins og fjar­skipta­mark­aði, orku­mark­aði og fjöl­miðla­mark­aði. En það þýðir ekki að þótt við höfum þurft að taka þær upp frá Evr­ópu­sam­band­inu í gegnum EES-samn­ing­inn að þá séu þær sjálf­krafa slæmar.“

Bakar ekki en dóttirin freistar hennar

Sigríður ætlar að taka sér tíma til að taka þátt í jóla­und­ir­bún­ingnum með fjöl­skyld­unni þrátt fyrir annir.

Líkt og áður sagði eru þing­menn og ráð­herrar jafnan á haus í des­em­ber­mán­uði en rétt eins og aðrir þurfa þeir að halda heilög jól og sinna því sem þeim fylgir. Þrátt fyrir annir gefur Sigríður sér tíma til að taka þátt í jóla­und­ir­bún­ingnum með fjöl­skyld­unni.

„Ég skreyti alltaf fyrsta sunnu­dag í aðventu og ég verð að rífa mig upp fyrir það um þessa helgi. Ég hef ekki bakað lengi en það er nú bara af því að ég vil ekki lenda í óholl­ustu en ég á ung­lings­stúlku sem hefur tekið að sér að baka og freistar mín með kökum alla aðvent­una. En mér finnst jólin mjög hátíð­legur fjöl­skyldu­tími og mér finnst gaman að halda í hefðir. Ég segi um hver ein­ustu jól að næstu jól ætli ég að prófa að vera erlendis en það verður aldrei neitt úr því, ég tími ein­hvern veg­inn aldrei að fara.“

Þar sem trú­mál heyra undir dóms­mála­ráð­herra lá bein­ast við að spyrja hvort ráð­herr­ann sæki kirkju yfir jóla­há­tíð­irnar. „Ég fór lengi vel í Landa­kots­kirkju á mið­nætti þegar ég var ung­lingur og í Háskól­anum. Það er nú mín heima­kirkja þannig að ég hef aldrei farið í aðra kirkju þótt ég sé ekki kaþ­ólsk. Ætli ég fari nú ekki eitt­hvað í kirkju um jólin.“

Ertu trú­rækin? „Já. Nú er ég svo heppin að dóttir mín fermist næsta vor og mér gefst kostur á að fylgja henni í ferm­ing­ar­fræðsl­unni og fara í messur. Mér finnst það nota­leg stund, það er ef prest­inum mælist vel.“

Þjóðkirkjan taki öll mál í sínar hendur

Þjóð­kirkjan hefur átt undir högg að sækja und­an­farið, það fækkar hratt í söfn­uð­inum og er svo komið að í dag stendur þriðj­ungur lands­manna utan hennar. Sigríður seg­ist þrátt fyrir það ekki hafa áhyggjur af kirkj­unni og hennar erindi. „Ég held að hún eigi enn erindi við fólk. Það er kannski ekki mitt að hafa áhyggjur af stöðu kirkj­unnar heldur er það kirkjan sjálf sem þarf að hafa áhyggjur af því. Hún þarf auð­vitað að laga sig að breyttu umhverfi og getur gert það með ýmsu móti. Það er hennar verk­efni.“

„Ég hef ekki greint annað en að kirkjan vilji hafa það sjálf þannig og vilji auka það enn frekar. Ég held að til fram­tíðar litið þá sé það far­sæl­ast fyrir kirkj­una að taka öll mál í sínar hendur, algjör­lega.“

Hvort þessi þróun kalli á aðskilnað ríkis og kirkju segir Sigríður að nú þegar sé mik­ill aðskiln­aður þar á milli. „Einu sinni hét þetta emb­ætti sem ég gegni sem dóms- og kirkju­mála­ráð­herra en nú er þetta ráðu­neyti, ekki bara ráðu­neyti þjóð­kirkj­unnar heldur allra trú­fé­laga og kirkjan nýtur í sívax­andi mæli sjálf­stæðis.“ Um þessar mundir er verið að leggja loka­hönd á sam­komu­lag sem ein­faldi meðal ann­ars fjár­fram­lög frá rík­inu og geri þjóð­kirkj­una enn sjálf­stæð­ari í því hvernig hún ráð­stafar þeim fjár­munum. Þegar fram í sækir sé end­an­legur við­skiln­aður heppi­leg­astur.

„Kirkjan ræður að mestu leyti sínum mál­efnum sjálf, það koma til dæmis aldrei kirkju­leg mál­efni sér­stak­lega inn á borð til mín. Ég hef ekki greint annað en að kirkjan vilji hafa það sjálf þannig og vilji auka það enn frekar. Ég held að til fram­tíðar litið þá sé það far­sæl­ast fyrir kirkj­una að taka öll mál í sínar hendur, algjör­lega.“

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Aðstoð / Unnur Magna
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir með YSL

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum