Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Óvissunni ekki eytt þrátt fyrir stórtíðindi gærdagsins

Enn er mikil óvissa um íslensku flug­fé­lögin eftir tíð­inda­mik­inn gær­dag. Þótt bráða­birgða­sam­komu­lag liggi fyrir um kaup Indigo partners á WOW liggi fyrir þá er rekstur félags­ins enn í járnum. Á sama tíma kynnir Icelandair stór­huga áform um aukin umsvif en þrátt fyrir það hríð­féllu hluta­bréf félags­ins í morgun.

Óvissunni ekki eytt þrátt fyrir stórtíðindi gærdagsins

Icelandair féll í gær frá kaup­unum á WOW eftir að ljóst varð að fjár­þörf lággjalda­flug­fé­lags­ins var umtals­vert meiri en stjórn­endur Icelandair höfðu gert ráð fyrir. Í til­kynn­ingu til kaup­hallar var það orðað þannig að við­skiptin hafi ekki stað­ist þær for­sendur sem gerðar voru við und­ir­ritun kaup­samn­ings­ins. Til stóð að sam­þykkja kaupin á hluta­hafa­fundi Icelandair sem hald­inn var í morgun en til­laga fund­ar­ins var, eðli­lega, borin til­baka.

Ákvörðun Icelandair þurfti ekki að koma á óvart í ljósi þess hvað gerð­ist í aðdrag­anda fund­ar­ins. Að beiðni FME höfðu við­skipti með Icelandair verið stöðvuð og þá upp­lýsti Skúli Mogensen, for­stjóri WOW, í tölvu­pósti til starfs­manna sinna að hann ætti í við­ræðum við aðra fjár­festa. Það kom flatt upp á stjórn­endur Icelandair. Loks bár­ust fréttir af því að WOW myndi skila fjórum þotum sem það hafði haft á leigu sökum minnk­andi umsvifa.

Seint í gær­kvöldi bár­ust svo tíð­indi af bráða­birgða­sam­komu­lagi um kaup fjár­fest­inga­fé­lags­ins Indigo Partners á WOW. Banda­ríska félagið hefur víð­tæka reynslu af rekstri lággjalda­flug­fé­laga og er til að mynda aðal­fjár­festir­inn í Tiger Airways sem er með bæki­stöðvar í Singa­pore, og Spi­rit Air­lines, sem er stað­sett í Flórída. Það er einnig stór fjár­fest­ir í Wizz Air Hold­ings, Plc, Frontier Air­lines, Volar­is Air­lines og JetS­MART. Það yrði því mik­ill happa­fengur fyrir Skúla og WOW gangi kaupin í gegn.

Það er hins vegar ekk­ert víst að svo verði enda ein­ungis um bráða­birgða­sam­komu­lag að ræða og enn er margt á huldu um við­skiptin. Þannig kemur ekk­ert fram í til­kynn­ingu WOW hverjir skil­mál­arnir eru og þá eru uppi efa­semdir um rekstr­ar­hæfi WOW. Öldurót und­an­far­inna vikna hefur án efa haft áhrif á bók­anir og um leið fjár­magns­flæði til fyr­ir­tæk­is­ins. Sú stað­reynd að Skúli þurfti að lýsa því yfir að starfs­menn fengju greidd laun nú um mánð­ar­mótin segja sína sögu um stöðu fyr­ir­tæk­is­ins. Fyr­ir­huguð kaup Indigo og WOW munu taka ein­hvern tíma og Skúli þarf þess vegna að tryggja rekstur WOW þangað til. Til þess gæti þurft umtals­verðar fjár­hæðir og tím­inn mun leiða í ljós hvort og þá hvernig það bil verður brúað. Nú þegar er farið að grípa til ráð­staf­ana og fengu 15 starfs­menn WOW upp­sagn­ar­bréf í morgun.

Það er mikið undir fyrir íslenskt efna­hags­líf að kaupin gangi í gegn enda gerir grein­ing stjórn­valda ráð fyrir að fall WOW myndi þýða umtals­verða veik­ingu krón­unnar og sam­drátt hag­vaxtar um allt að 3%. Höggið fyrir ferða­þjón­ust­una yrði gríð­ar­legt sem sést á því að Airport Associates á Kefla­vík­ur­flug­velli sagði upp 237 manns í gær þegar ljóst var að kaup Icelandair á WOW myndu ekki ganga í gegn. Um var­úð­ar­ráð­staf­anir er að ræða og standa vonir til að hægt verði að draga upp­sagn­irnar til­baka ef það tekst að halda WOW á floti.

Hræringar hjá Icelandair

Hluta­bréf í Icelandair ruku upp þegar til­kynnt var um kaupin á WOW. Að sama skapi hríð­féllu þau þegar til­kynnt var um að ekk­ert yrði af þeim. Á hlut­hafa­fundi í morgun var til­kynnt um metn­að­ar­full áform Icelandair um að stækka leið­ar­kerfið og stjór­fjölga flug­ferðum á helstu áfanga­staði félags­ins. Hægt yrði að auka sæta­fram­boð um 35% og auka fjölda ferða­manna til Íslands um 350 þús­und. Þá var sam­þykkt til­laga um að auka hlutafé í Icelandair um allt að 625 millj­ónir hluta að nafn­virði.

Ólíkt því sem við mátti búast héldu hluta­bréf í Icelandair áfram að falla í morgun, þrátt fyrir þessi tíð­indi. Annað hvort hefur mark­að­ur­inn ekki trú á fyr­ir­ætl­unum stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins eða hann metur sem svo að mögu­legur nýr eig­andi WOW sé ógn fyrir Icelandair. Að sama skapi hefur mark­að­ur­inn tekið vel í tíð­indin af WOW því gengi krón­unnar hefur styrkst gagn­vart öllum helstu gjald­miðlum og gengi allra félaga í kaup­höll­inni, að Icelandair und­an­skildu, hafa hækkað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum