Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Gefur ekkert eftir í húðumhirðu þótt hún komist varla í sturtu á daginn

Sam­fé­lags­miðla­stjarnan, flug­freyjan og nýbak­aða móð­irin Þórunn Ívars­dóttir er ann­ál­aður snyrti­vöru­unn­andi, þá sér­stak­lega þegar kemur að öllu sem teng­ist húð­um­hirðu. Fylgj­endur hennar á sam­fé­lags­miðlum vita að henni finnst fátt betra en gott dekur og hún lumar á dágóðu safni af kremum, möskum og öllu sem til þarf til að gera vel við sig.

Gefur ekkert eftir í húðumhirðu þótt hún komist varla í sturtu á daginn
|

Þórunn hefur, að eigin sögn, hugsað vel um húð sína frá því að hún var ung­lingur. „Áhugi minn á húð­um­hirðu spratt upp í kringum þrettán ára ald­ur­inn. Þó finnst mér vera mik­ill munur á að hugsa mikið eða vel um húð­ina. Það er nefni­lega hægt að hugsa allt of mikið um hana og oförva hana og gera henni illt. Því er allt gott í hófi, eins og með svo margt annað í líf­inu,“ segir hún. „Hreinsun er númer 1, 2 og 3. Þú getur alveg sleppt því að gera eitt­hvað annað ef þú tryggir ekki að yfir­borð húð­ar­innar sé hreint áður en þú notar krem, serum eða maska. Fólki finnst þetta skref oft ekk­ert skemmti­legt og trassar það. Sem gerir það að verkum að það eyðir morð­fjár í krem, serum eða maska sem fá aldrei tæki­færi til að sýna sína sönnu virkni. Sömu­leiðis finnst mér svo ótrú­lega mik­il­vægt að vera með­vituð um hvað er keypt og notað. Síð­ast­liðin ár hefur þekk­ing okkar á inni­halds­efnum breyst til hins betra og í dag þurfa snyrti­vöru­fram­leið­endur að vera á tánum. Sorg­leg­ast finnst mér þegar stærstu merkin taka ekki þátt í þró­un­inni og halda áfram að nota óæski­leg inni­halds­efni. Þetta ger­ist samt ekki á einni nóttu en maður getur haft það að leið­ar­ljósi að reyna með tím­anum að minnka notkun á vörum sem að inni­halda til dæmis mineral-olíu, sílíkon eða petr­o­leum.“

Notar helst engin krem á lítinn kropp

Eins og þeir sem fylgj­ast með Þórunni vita, þá eign­að­ist hún nýlega sitt fyrsta barn, stúlku sem fékk nafnið Erika Anna. Aðspurð hvort hún hafi fundið mun á húð­inni meðan á með­göngu stóð og eftir hana, svarar Þórunn að svo hafi ekki verið. „Kannski er ég mjög heppin en ég hef hef engan mun fundið. Ég hugs­aði nákvæm­lega eins um húð­ina og ég geri alltaf og hún hafði sjaldan verið jafn­góð. Það eina sem ég pass­aði mig á var að nota ekki retinol og of sterkar ávaxta­sýrur,“ segir hún. Þá seg­ist hún hafa verið dug­leg að taka inn olíur á með­göngu sem hún trúir að hafi gert húð Eriku gott. „Ég vil helst ekki nota nein krem á svona full­kom­inn lít­inn kropp sem er örugg­lega með fal­leg­ustu húð sem ég hef séð. Það eina sem ég nota er örlítið af bossakremi frá Weleda úr Calendula-lín­unni sem mæður um allan heim mæla með. Ég nota það til að fyr­ir­byggja bleiu­út­brot. Ég forð­ast petr­o­leum, mineral-olíu og parrafín eins og heitan eld­inn og mun alltaf lesa mér til um inni­halds­efni á þeim vörum sem ég mun nota á hana.“

Drunk Elephant í uppáhaldi

Þórunn seg­ist ekki breyta miklu í sinni húðrútínu nú þegar kólna fer í veðri, þar sem hún hald­ist í jafn­vægi allan árs­ins hring. „Mér finnst þó gott að næra húð­ina vel á köldum vetr­ar­dögum, sem er mjög mik­il­vægt fyrir þá sem finna mikið fyrir veð­ur­breyt­ingum. Ég nota kannski ögn meira af raka­kremi eða rakamaska aðeins oftar en vana­lega yfir vetr­ar­tím­ann. Í allra, allra mesta upp­á­haldi hjá mér eru vör­urnar frá Drunk Elephant en ég held ég noti allar vör­urnar frá merk­inu. Ég nota þær því það skiptir mig mjög miklu máli að velja vörur með hreinum inni­halds­efnum og að þær séu fram­leiddar án óæski­legra aukefna en ég hef kafað djúpt ofan í fræðin. Þær vörur nota ég síðan í bland við aðrar frá­bærar vörur eins og frá t.d. Origins, Glamglow, Clinique, Kiehls, Oskia, the Ordinary og fleiri. Í augna­blik­inu er nú eig­in­lega bara ekk­ert á óska­list­anum mínum en ég gæti alveg skroppið eins og eina ferð í Sephora og fyllt á rakama­ska­birgð­irnar mínar en ég elska að nota svona tis­sjúmaska. Annars var mamma mín að koma erlendis frá með smá­pakka handa nýbak­aðri móður en ég gef ekk­ert eftir í húð­um­hirðu þótt ég kom­ist varla í sturtu á dag­inn.“

Dekur að hætti Þórunnar

Þórunn Ívars­dóttir er ann­ál­aður snyrti­vöru­unn­andi.

„Þegar ég vil gera sér­stak­lega vel við mig, um það bil einu sinni í viku, fer ég í sturtu, er lengi og dekra extra vel við húð­ina. Þá byrja ég á þvi að hreinsa hana eins og vana­lega en sá hluti húð­um­hirð­unnar fer yfir­leitt fram í sturt­unni á kvöldin. Næst myndi ég nota ávaxta­sýrumaska sem sléttir yfir­borð húð­ar­innar, skrúbbar hana án korna og hreinsar hana. Þá myndi ég næra hana með extra­góðum nær­andi rakamaska og olíu. Ég nota mikið marula-olíu og það líður varla sá dagur að ég löðri henni ekki á mig. Hún hefur mik­inn lækn­inga­mátt og er ein­stak­lega rík af omega-fitu­sýrum. Dags­dag­lega byrja ég alltaf á hreinsun og hefur það kom­ist í vana minn að nota C-vítamín-serum og gott raka­krem á morgn­ana. Mér finnst það eig­in­lega ómissandi og sé hvað húðin mín er ljóm­andi og fín þegar ég geri það.

Mynd af Þórunni / Hákon Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum