Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Mér finnst eins og ég sé að fræða fólk í gegnum typpabrandara“

„Mér finnst eins og ég sé að fræða fólk í gegnum typpabrandara“
|

„Það sem knýr sýn­ing­una áfram er hve spaugi­legt það var hve týndur ég var í þessum nýja heimi sem ég hafði svo kjána­lega mikla van­þekk­ingu á þegar ég var í sam­bandi,“ segir ástr­alski grínist­inn Jonathan Duffy, vana­lega þekktur sem Jono. Jono sýnir uppi­standið I Wouldn’t Date Me Either á hátíð­inni Reykja­vík Fringe Festival í byrjun júlí, en verkið fjallar um þann tíma þegar Jono varð ein­hleypur eftir tíu ára sam­band og þurfti að læra að deita upp á nýtt. Á sama tíma varð hann þrí­tugur og flutt­ist á milli landa. Hann segir heim stefnu­móta hafa breyst mikið á þessum ára­tug sem hann var í sam­bandi.

Skyndibitamenning í stefnumótaheimi

„Sambönd virt­ust ekki end­ast eins lengi því það var keimur af skyndi­bita­menn­ingu þegar kom að stefnu­mótum. Þú finnur ein­hvern, sérð til hvort það virkar eða færð það sem þú vilt og heldur áfram. Ég held að það sé gott og slæmt. Annars vegar held ég að það veiti fólki kraft til að vera minna með­virkt og ekki byggja sjálfs­mat sitt á hæfni sinni í að vera í sam­bandi. Á hinn bóg­inn hef ég tekið eftir tísku þar sem fólk byrjar í sam­bandi en endar það um leið og nýja­brumið fer af, í stað­inn fyrir að vinna í hlut­unum og gera sam­bandið sterkara,“ segir Jono. Svo kom að því að Jono fann ást­ina, en hann og kær­asti hans hafa búið saman í hart­nært ár.

Jono sýnir I Wouldn’t Date Me Either á Fringe Festival.

„Við pössuðum saman á Tinder, á tíma­bili þar sem ég var ekki að leita að neinu,“ segir Jono. „Ég var hrein­skil­inn við hann um allt frá byrjun og gerði meira að segja grín að því að ég væri með pabbalík­ama og hryti þegar ég drykki,“ segir sprell­ar­inn, en það er einmitt hans besta ráð til fólks á stefnu­móta­bux­unum – að koma hreint fram.

„Verið hrein­skilin. Ekki bara við fólkið sem þið deitið heldur líka ykkur sjálf. Maður ætti alltaf að spyrja sig af hverju maður vill vera í sam­bandi. Ég held að á vissum tíma­bilum græði maður á því að vera ein­hleypur. Ég lærði mest um sjálfan mig þegar ég var einn á báti. Þegar ég tók allar ákvarð­anir einn og var sá eini sem bar ábyrgð á öllu sem fór úrskeiðis í mínu lífi.“

Endaþarmsgælur og Grindr

Jono sýnir I Wouldn’t Date Me Either í Secret Cellar 4. og 8. júlí og í Tjarn­ar­bíói 5. og 7. júlí. Jono hefur verið búsettur á Íslandi um nokk­urt skeið og á að baki sýn­ing­arnar Australi­ana og An Evening With Jono Duffy. Hann segir nýju sýn­ing­una frá­brugðna þeim þótt gestir megi treysta á að Jono verði alveg jafn­hisp­urs­laus og hans er von og vísa.

„Ég tala opin­skátt um hluti eins og kyn­líf og aðra hluti sem eru tabú. Mér finnst fólk njóta þess því það heyrir hluti sem það vildi alltaf fræð­ast um en var of hrætt að spyrja,“ segir Jono, sem er sam­kyn­hneigður en segir að flestir gestir á sýn­ingum hans sé gagn­kyn­hneigt fólk. „Mér finnst eins og ég sé að fræða fólk í gegnum typpa­brand­ara,“ segir hann og hlær. „En ef þú vilt ekki að barnið þitt viti neitt um enda­þarms­gælur og stefnu­móta­appið Grindr, ekki koma með það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum