Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Magnea glímir við fæðingarþunglyndi: Erfiðast að elska sjálfa mig

Magnea glímir við fæðingarþunglyndi: Erfiðast að elska sjálfa mig
|||

„Ég við­ur­kenndi ekki þung­lyndi mitt strax. Ég átti mjög erfitt með það en eini sem fékk að sjá það var mað­ur­inn minn. Ég reyndi allt til að fela það. Ég vildi bara hafa það fyrir mig. Þegar ég var komin rúm­lega tutt­ugu vikur þá var ég komin á lyf við van­líðan,“ segir Magnea Hildur Jóns­dóttir.

Magnea eign­að­ist dóttur sína Talíu Líf, fyrir tæp­lega tveimur árum síðan. Magnea byrj­aði að finna fyrir fæð­ing­ar­þung­lyndi á með­göngu og hefur talað opin­skátt um það á Snachat-reikn­ingi sínum undir nafn­inu magnea8.

Magnea og litla Talía Líf.

„Ég var bara ekki að höndla þessar breyt­ingar og ég var með mjög slæman bjúg sem varð sífellt verri. Ég er svo þrjósk að ég lét mig hafa það lengur en ég átti að gera. Ég pass­aði ekki lengur í neina skó nema ein­hverja ljóta inni­skó úr Rúm­fatala­gernum sem ég tróð mér í. Ég fékk með­göngu­syk­ur­sýki sem greind­ist allof seint og ég þurfti að fara í mikið tjékk seinni hluta með­göng­unnar,“ segir Magnea. Ekki bætti úr skák að hún lenti í óhappi á fyrri hluta með­göng­unnar.

„Það versta var að ég datt á leið í vinn­una í steyptum tröppum. Ég var rétt komin sautján vikur á leið og skall í tröpp­una með hnakk­ann undir, mitt bakið og grind­ina í. Ég var það þrjósk að ég lét ekki kíkja á mig né athuga með barnið,“ segir Magnea, sem hélt áfram að mæta í vinnu þó hana verkj­aði.

„Ég sé eftir því en málið var að ég vildi ekki lýta út eins og ein­hver aum­ingi því það sást ekk­ert á mér. Þannig hugs­aði ég allt, að ef það sést ekki þá er ekk­ert að mér, sem var svo rangt og ég er enn þann dag í dag að læra það. Að sýna til­finn­ingar og elska mig, sem mér finnst erf­ið­ast af þessu öllu.“

Brotnaði niður og gafst upp

Magnea segir að hvers­dag­ur­inn sinn hafi ein­kennst af hæðum og lægðum í bar­átt­unni við fæð­ing­ar­þung­lyndi.

„Stundum vil ég bara ekki gera neitt, bara liggja uppi í rúmi og sofa eða bara vera ein og ekki tala við neinn. Ég er nán­ast alltaf þreytt sama hvað. Það er kannski svona mán­uður síðan ég hætti að segja við sjálfa mig: Ég legg mig bara þegar ég kem heim, á hverjum ein­asta morgni. Ég gerði það sjaldan en þetta var eitt­hvað sem ég sagði við sjálfa mig til að kom­ast í gegnum dag­inn,“ segir Magnea. henni er eitt atvik sér­stak­lega minn­is­stætt þegar hún fer yfir þennan tíma í sínu lífi.

„Þegar stelpan mín var ekki orðin tveggja mán­aða var ég ein heima með hana og hún byrjar að gráta um sjö leytið um kvöld. Ekkert sem ég gerði var nógu gott til að fá hana til að hætta að gráta. Þetta var ekk­ert venju­legur grátur, það var hrein­lega eins og ein­hver væri að drepa hana. Maðurinn minn var að vinna og for­eldrar mínir í heim­sókn. Ég hrein­lega brotn­aði bara gjör­sam­lega niður og gafst upp. Ég hringdi í mann­inn minn og spurði hann hvort hann gæti komið heim. Ég var grát­andi í sím­anum og sagði að ég gæti ekki huggað hana. Hann kom heim stuttu seinna og spurði mig að því versta sem hægt er að spyrja grát­andi móður: Hri­st­irðu hana? Ég missti and­litið. Ég myndi aldrei meiða litla barnið mitt, sama hvað. En hann sá eftir þessu. Hann hélt bara að eitt­hvað hræði­legt hafi gerst. Hann átti lika erfitt á þessum tima, hann var að vinna svo mikið og var mikið frá, hann varð para­nojaður yfir öllu. Sem bætti ekki mína and­legu líðan.“

Skömmin var mikil

Magnea seg­ist hafa verið mjög góð í að fela fæð­ing­ar­þung­lyndið frá ljós­mæðrum í kringum fæð­ingu litlu hnát­unnar.

„Ég man eftir því þegar ljós­móðir kom heim að athuga með okkur mæðgur. Hún spyr mig hvernig mér liði. Litla systir mín sat í sama sófa og eina sem ég hugs­aði var að ég ætti bara að segja að allt gengi vel og að ég hefði það fínt. Ég vildi ekki að systir mín myndi vita hvernig mér liði. Þá myndi mamma min vita það og þá myndi hún byrja að tala við mig, sem hefði ekki verið slæmt, en skömmin var bara svo mikil og mig lang­aði ekki að mis­takast,“ segir Magnea, sem tár­ast nán­ast við til­hugs­un­ina.

„Þegar ég hugsa um þetta núna langar mig að gráta því ég hefði þurft svo mikið á því að halda að tala við ein­hvern. En þrjóskan og skömmin var svo mikil hjá mér. Ég var, og er, mjög klár að setja upp grímu og láta eins og ekk­ert sé að.“

Erfið fæðing frumburðarins

Hér leikur Talía Líf á alls oddi. Lífsglöð stúlka.

Magnea er 28 ára gömul og býr í Kópavogi ásamt unnusta sínum, litlu Talíu Líf og kett­inum þeirra. Hún vinnur sem stuðn­ings­full­trúi á ein­hverfu­deild í grunn­skóla í Kópavogi og er nú hægt og bít­andi að koma and­legu heils­unni í lag eftir þennan erf­iða tíma.

„Ég reyni að borða hollt, taka lyf og hætta að vera svona nei­kvæð, og þá sér­stak­lega við mig. Gera eitt­hvað sem mér finnst gaman að gera og að hreyfa mig eitt­hvað. Ég set mér mark­mið, til dæmis að labba sex þús­und skref á hverjum degi. Og segja við mig að þetta tekur tíma, margt smátt gerir eitt stórt,“ segir Magnea sem stefnir á frek­ari barn­eignir í fram­tíð­inni.

„Það sem ég ætla mér núna er að koma mér í mitt fyrra horf lík­am­lega og and­lega. Númer 1, 2 og 3 er að læra að elska sjálfa mig aftur. Og já, þrátt fyrir þetta allt saman þá langar mig í annað barn, en kannski eftir svona tvö ár,“ segir Magnea, en fæð­ing frum­burð­ar­ins tók á.

„Stelpan mín kom mán­uði fyrr í heim­inn og það sem situr í mér er að það fór ekki eins og ég hefði viljað að það færi. Mamma mín var í útlöndum með systk­inum mínum hja ömmu minni en hún átti að vera með inni á fæð­ing­ar­deild­inni. Stelpan var skökk og ég fest­ist í níu í útvíkkun og end­aði í bráða­keis­ara. Ég þurfti að vera svæfð vegna blóð­flögugalla hjá mér. Stelpan end­aði inná vöku­deild því hún átti erfitt með að anda og taka nær­ingu. Hún blán­aði þrisvar sinnum en ég sá það aldrei ger­ast. Maðurinn minn sá það hins vegar í eitt skipti. Við vorum inni á spít­ala í tíu daga og var hún á vöku­deild í átta daga þar til hún fékk loks­ins að koma til okkar og vera með okkur í tvær nætur áður en við fengum að fara heim. Ég var undir eft­ir­liti vegna hás blóð­þrýst­ings og svo ég myndi ekki fá blóð­tappa.“

Engin skömm að líða illa

Magnea er þakk­lát fyrir þann stuðn­ing sem hún hefur fengið eftir að hún opn­aði á sína van­líðan.

„Þrjóskan í mér lok­aði á allt og alla. Maðurinn minn stendur 100% við bakið á mér í dag og hefur gert sein­ustu mán­uði. Mamma mín og tví­bura­systir eru mér líka allt.“

Eins og áður segir opnar Magnea á sinn raun­veru­leika á Snapchat, en af hverju?

Magnea er dug­leg að snappa um sinn raun­veru­leika.

„Að því að mér leidd­ist, mig lang­aði að sýna hvernig dag­arnir væru hjá mér. Hvað ég borða. Hvernig það er að vera með stelpuna enn á brjósti þó hún sé að verða 2ja ára. Margir spyrja af hverju ég hætti ekki bara með hana á brjósti en það er ekki svo auð­velt, ekki eftir það sem ég upp­lifði fyrir og eftir með­göngu. Mér fannst hún ekki vera mín fyrst en ég elska þessar stundir okkar. Lífið er ekki alltaf dans á rósum og ég nota stundum kassa­merkið #eng­ingl­ans­mynd. En ég snappa líka um mat og hef gaman af því að elda og baka. Svo snappa ég líka mikið af stelp­unni minni,“ segir Magnea.

Áður en ég sleppi henni verð ég að spyrja að því hvað hún vill segja við for­eldra sem glíma við fæð­ing­ar­þung­lyndi.

„Það er engin skömm að líða illa, það er betra að tala um það hvernig manni líður en að halda því fyrir sig sjálfan. Sama hversu erfitt það er.“

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum