Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fékk þrefaldan sýklalyfjaskammt daginn fyrir brúðkaup

Fékk þrefaldan sýklalyfjaskammt daginn fyrir brúðkaup
|

Ingólfur Ágústs­son og Sigríður Etna Mar­in­ós­dóttir voru búin að vera saman í sjö ár þegar þau ákváðu að láta pússa sig saman þann 12. júlí árið 2014 á Tálkna­firði. Helgina fyrir brúð­kaupið var Ingólfur steggj­aður af vinum og fjöl­skyldu­með­limum, steggjun sem átti svo sann­ar­lega eftir að draga dilk á eftir sér.

„Ég var nán­ast alls­ber allan dag­inn og meðal ann­ars hent ofan í sjó­inn í Reykja­vík tvisvar sinnum. Strax eftir helgi fór ég að finna fyrir eymslum í háls­inum en var ekk­ert að spá mikið í það enda nóg að gera bæði í vinnu og að und­ir­búa brúð­kaup sem átti að halda í um fimm hund­ruð kíló­metra fjar­lægð,“ segir Ingólfur, sem varð þó örlítið áhyggju­fullur þegar nær dró stóra deg­inum.

„Á fimmtu­dags­morgni byrj­uðum við að græja brúð­kaupssal­inn og ég fann að mér leið ekki vel. Ég var að reyna að láta lítið fyrir því fara til að gera brúð­ina ekki áhyggju­fulla. Svo var ég að sækja eitt­hvað inn í áhalda­geymslu og var alveg bug­aður og lagð­ist á dýnu og sofn­aði. Eftir ein­hvern tíma skildi konan mín ekk­ert í hvar ég gæti verið. Svo var henni til­kynnt að ég væri sof­andi inn í áhalda­geymslu. Hún kom og vakti mig og botn­aði ekk­ert í þess­ari hegðun hjá mér. Þá sagði ég henni að ég væri orð­inn slappur og að ég héldi að ég væri kom­inn með strept­ókokka, en ég hafði fengið þá áður,“ segir Ingólfur sem fór til læknis á Pat­reks­firði í kjöl­farið.

„Lækn­ir­inn var fljótur að greina mig og skrif­aði upp á sterk sýkla­lyf og lét mig taka þre­faldan skammt. Hann sagði mér að ég ætti að hvíla mig fram að brúð­kaupi, reyna að vera sem minnst með kon­unni, til að smita hana ekki, og alls ekki kyssa hana.“
Ingólfur tók ekki eftir miklum óþæg­indum á brúð­kaups­dag­inn, nema hann var með litla mat­ar­lyst.

Í móki nóttina fyrir brúðkaup

Daginn eftir, á föstu­deg­inum, streymdu fjöl­skyldu­með­limir og vinir á Tálkna­fjörð, en Ingólfur neydd­ist til að láta lítið fyrir sér fara. „Ég gat ekki tekið á móti þeim eða aðstoðað við að gera brúð­kaupið klárt, lá bara hund­veikur uppi í rúmi og hálf­vank­aður af lyfj­unum. Nóttina fyrir brúð­kaupið var ég víst bara í ein­hverju móki, svitn­aði svaka­lega og konan gat ekki sofið af áhyggjum. Hún var svo smeyk um að það þyrfti að fresta brúð­kaup­inu og allir hefðu þá komið í fýlu­ferð vestur. Gaman að segja frá því að hún svaf á milli hjá for­eldrum sínum þessa nótt. Þau reyndu að full­vissa óléttu, stressuðu stelpuna sína um að allt yrði í lagi og að brúð­kaups­dag­ur­inn yrði góður,“ segir Ingólfur og brosir þegar hann rifjar upp þessa daga.

Þegar sjálfur brúð­kaups­dag­ur­inn rann svo upp var Ingólfur enn slappur, en eins og fyrir örlög breytt­ist eitt­hvað í athöfn­inni sem var töfrum lík­ast.

„Við hjónin komum síð­ust í kirkj­una og gengum saman inn kirkju­gólfið. Eins væmið og það hljómar þá losn­aði um allt í háls­inum á sama and­ar­taki og dyrnar inn í kirkj­una opn­uð­ust og við hjónin gengum inn gólfið. Dagurinn var skemmti­legur og góður svo ég tók ekki eftir neinum óþæg­indum, nema ég var ekki með mikla mat­ar­lyst,“ segir Ingólfur, sem er enn leiður yfir því að hafa ekki getað tekið virkan þátt í þessum mik­il­væga degi sökum veik­ind­anna.

Leiðinlegt að taka ekki þátt í undirbúningnum

„Brúð­kaups­dag­ur­inn heppn­að­ist vel þrátt fyrir veik­indin og ég er þakk­látur fyrir það. En mér finnst enn þá leið­in­legt að hafa ekki geta tekið þátt í und­ir­bún­ingnum. Salurinn var orð­inn alveg klár snemma á föstu­degi, því við hjónin ætl­uðum að eyða rest­inni af föstu­deg­inum í að taka á móti fjöl­skyldu og vinum. En við gerðum það ekki og það var pínu súrt. Það voru margir dug­legir að taka Snapchat og senda okkur og fannst okkur það mjög skemmti­legt. Að sjá vini okkar sem þekkt­ust ekki fyrir brúð­kaupið vera að hitt­ast á tjald­stæð­inu og þess háttar,“ segir hann. Það stendur svo ekki á svör­unum þegar hann er beð­inn um ráð fyrir til­von­andi brúð­hjón.

„Númer eitt, tvö og þrjú ráð­legg ég fólki að steggja og gæsa ekki brúð­hjón viku fyrir brúð­kaup. Númer fjögur, ef þið eruð eitt­hvað slöpp, kíkið strax til læknis! Númer fimm, reynið að vera skipu­lögð og tíma­lega í und­ir­bún­ingnum, það var mjög gott að vera búinn að gera allt klárt snemma á föstu­deg­inum. Númer sex, hafið dag­inn ykkar nákvæm­lega eins og þið viljið hafa hann. Ekki efast um ákvarð­anir sem þið takið tengdar brúð­kaup­inu. Bjóðið bara þeim sem þið viljið, óháð því sem „búist er við af manni“. Það er æðis­leg til­finn­ing að ganga inn kirkju­gólfið og vera umkringdur fólki sem manni þykir vænt um. Veljið mat­inn, drykk­ina, tón­list­ina og fleira nákvæm­lega eins og þið viljið hafa það. Þetta er ykkar dagur.“

Þetta við­tal er hluti af stærra efni í nýjasta tölu­blaði Mannlífs um óvæntar upp­á­komur á brúð­kaups­dag­inn. Smelltu hér til að lesa Mannlíf á net­inu.

Myndir / Sólný Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum