Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

„Við viljum deila gleðinni og glimmerinu með sem flestum“

„Við viljum deila gleðinni og glimmerinu með sem flestum“
||||||

Seinni und­ankeppni í Söngvakeppn­inni fer fram í Háskóla­bíói laug­ar­dags­kvöldið 17. febr­úar. Í gær fengum við að kynn­ast þeim flytj­endum sem keppa um sæti í úrslit­unum 3. mars í fyrri und­ankeppn­inni en nú er komið að því að spyrja flytj­endur í seinni und­ankeppn­inni spjör­unum úr.

Lífið og tónlistin stoppar ekki í Eurovision

Söngv­ar­inn Aron Hannes syngur lagið Golddig­ger og stígur fyrstur á svið í Háskóla­bíói þann 17. febr­úar næst­kom­andi. Hann keppti líka í fyrra og komst alla leið í úrslita­keppn­ina. Hann seg­ist mjög spenntur yfir því að fá að upp­lifa ævin­týrið í kringum Söngvakeppn­ina aftur.

Af hverju Eurovision?

Frábær vett­vangur til að koma sér á fram­færi sem tón­list­ar­maður.

Hvaða þýðingu hefur lagið fyrir þér?

Lagið hreyf mig við fyrstu hlustun og gaf mér tæki­færi til að hall­ast meira að nútíma funki sem að mig hefur langað að gera í langan tíma.

Hvernig var til­finn­ingin þegar þú komst að því að lagið væri komið í und­an­úr­slit?

Að sjálf­sögðu mjög spenntur að fá að upp­lifa ævin­týrið í kringum Söngvakeppn­ina aftur.

Hvert er fyrsta lagið sem þú manst eftir í Eurovision?

Ætli það sé ekki Tell Me sem að Einar Ágúst og Telma tóku árið 2000. Frábært lag.

En uppáhalds Eurovision-lagið og af hverju?

In my dreams, WigWam. Geggjað lag sem hefur fylgt mér alla tíð síðan það var í keppn­inni árið 2005.

Aron Hannes tók líka þátt í fyrra.

Af hverju ætti íslenska þjóðin að kjósa þig?

Ef að fólki líkar vel við lagið og atriðið þá má það endi­lega henda atkvæði á strák­inn.

Hvernig áttu eftir að bregðast við ef þú vinnur?

Eflaust í skýj­unum með það að fá að fara fyrir Íslands hönd í Eurovision.

En ef þú tapar?

Áfram gakk! Lífið og tón­list­inni stoppar ekki þar.

Verður einhver ríkur á að taka þátt í Eurovision?

Ríkur af reynslu og svo veit maður aldrei hversu stór tæki­færi Eurovision býður uppá fyrir mann.

Númer 1,2 og 3 er að njóta augnabliksins

Grín­gúbban Áttan, með Sonju Valdín og Egil Ploder í broddi fylk­ingar, keppir í Söngvakeppn­inni með lagið Hér með þér, eða Here For You. Þau Sonja og Egill segja að lagið sé ekki típískt Áttulag og telja að flutn­ing­ur­inn í beinni útsend­ingu muni koma á óvart.

Af hverju Eurovision?

Af því að við höfum alltaf haldið mikið upp á keppn­ina og horft á hana frá því við vorum krakkar. Svo finnst okkur gaman að taka að okkur ný og krefj­andi verk­efni og Söngvakeppnin passar vel inn í það.

Hvaða þýðingu hefur lagið fyrir ykkur?

Við vildum gera eitt­hvað öðru­vísi. Eitthvað sem Áttan hafði ekki gert áður og fórum úr þessu típíska Áttulagi yfir í eitt­hvað allt annað. Lagið fjallar um fyrstu skrefin í ást­inni og við vonum að fólk finni þá til­finn­ingu þegar það hlustar.

Hvernig var til­finn­ingin þegar þið komust að því að lagið væri komið í und­an­úr­slit?

Það var gjör­sam­lega frá­bært til­finn­ing! Alltaf gaman að ná mark­miðum sínum.

Hvert er fyrsta lagið sem þið munið eftir í Eurovision?

Egill: Fyrsta lagið sem ég man eftir er Tell Me! með Einari Ágústi og Telmu. Það var svo skemmti­lega grillað atriði. Svo að sjálf­sögðu frá­bært lag!

Sonja: Sylvía Nótt – Congratulations. Af því að ég var Sylvíu Nótt fan #1.

En uppáhalds Eurovision-lagið og af hverju?

Egill: Upp­á­halds Eurovision lagið mitt kemur frá Belgíu. Tók þátt árið 2010 með lagið Me and my guitar. Hlusta reglu­lega á það ennþá í dag. Þetta er svona skemmti­lega mjúkt lag. Er mikið fyrir það! Svo gleymi ég reyndar oft að nefna lagið You með Robin Stjern­berg. Tók þátt fyrir Svíþjóð árið eftir Euphoria. Fékk þar af leið­andi ekki verð­skuld­aða athygli! Mikið spilað í vina­hópnum mínum!

Sonja: Euphoria af því að það var svo öðru­vísi og ég hlusta ennþá á það í dag.

Má búast við að það komi eitthvað á óvart í flutningi ykkar í beinni útsendingu?

Það eru þrot­lausar æfingar fram að keppni og leggjum við mikið upp úr flutn­ingnum og erum nokkuð viss um að við komum áhorf­endum á óvart þar.

Hvernig eigið þið eftir að bregðast við ef þið vinnið?

Það er ein­hvern veg­inn ómögu­legt að gera sér grein fyrir því. Við höfum eig­in­lega enga hug­mynd. Það væri nátt­uru­lega rosa­legt! En númer 1,2 og 3 er að njóta augna­bliks­ins.

En ef þið tapið?

Það er mikið af frá­bærum atriðum í keppn­inni. Við munum sam­gleðj­ast þeim sem fer út og keppir í Eurovision fyrir Íslands hönd. Svo höldum við áfram okkar striki og nýtum okkur með­byr­inn sem Söngvakeppnin von­andi gefur okkur.

Er líf eftir Eurovision?

Já við skulum rétt vona það!

Grenjar í hálftíma ef hann tapar

Söngv­ar­inn Dagur Sig­urð­ar­son stígur sín fyrstu skref í Söngvakeppn­inni með lagið Í stormi, eða Saviours. Höfundur lags­ins er Júlí Heiðar Hall­dórs­son en hann samdi íslenska text­ann ásamt Þórunni Ernu Clausen og enska text­ann með Guðmundi Snorra Sig­urð­ar­syni. Dagur segir lagið eins og samið fyrir sig.

Af hverju Eurovision?

Það hefur alltaf verið smá draumur hjá mér að fá prófa að syngja í Söngvakeppn­inni og lagið hent­aði mér full­kom­lega.

Hvaða þýðingu hefur lagið fyrir þér?

Lagið er eins og það sé samið ofan í mig, full­komin öskur powerballaða með nóg af drama­tík.

Hvert er fyrsta lagið sem þú manst eftir í Eurovision?

Fyrsta lagið sem ég man eftir er Minn hinsti dans sem Páll Óskar flutti og er þetta í raun­inni fyrsta minn­ingin mín um Eurovision.

En uppáhalds Eurovision-lagið og af hverju?

Ég ætla að segja að upp­á­halds Eurovision lagið mitt sé In my dreams með hljóm­sveit­inni Wig Wam, alvöru glys geð­veiki

Af hverju ætti íslenska þjóðin að kjósa þig?

Fólk á að kjósa það lag sem því finnst flott­ast og taka inn í dæmið öryggi í flutn­ingi.

Dagur er spenntur fyrir að taka loks­ins þátt í Söngvakeppn­inni.

Hvernig áttu eftir að bregðast við ef þú vinnur?

Ég á örugg­lega eftir að sturl­ast úr ánægju

En ef þú tapar?

Grenja í svona hálf­tíma og held svo áfram með lífið.

Gleyma sér í gleðinni og lifa ekki í eftirsjá

Stefanía Svav­ars­dóttir, Agnes Mar­in­ós­dóttir og Regína Lilja Magn­ús­dóttir flytja lagið Svaka stuð, eða Heart Attack. Þær segja áhorf­endur mega búast við óvæntum upp­á­komum í sínum flutn­ingi og segja engan tapa í Eurovision.

Af hverju Eurovision?

Því í Eurovision er bara gleði, glimmer og svaka stuð – og hver vill ekki vera með í því?

Hvaða þýðingu hefur lagið fyrir ykkur?

Agnes er skúffu­skáld sem er búin að bíða eftir spotlighti fyrir þetta lag. Þýðingin er að þora og gera, gleyma sér í gleð­inni og lifa ekki í eft­ir­sjá.

Hvert er fyrsta lagið sem þið munið eftir í Eurovision?

Stefanía: All out of Luck. Ég var 7 ára og horfði á keppn­ina með öðru aug­anu á meðan full­orðna fólkið fylgd­ist með og man hvað mér fannst Selma stór­kost­leg.

Agnes: Páll Óskar – Minn hinsti dans. Ég man hvað mér fannst hann töff að hafa brotið niður múra og ögrað.

Regína: Páll Óskar. Þetta var eig­in­lega í fyrsta skiptið sem ég sá svona risa­stóra söngvakeppni og ég var algjör sökker fyrir söngvakeppnum. Ég man að ég hugs­aði að ég ætl­aði að vera í þess­ari söngvakeppni þegar ég yrði stór en kannski aðeins öðru­vísi fötum, var pínu sjokkeruð en fannst hann samt eitt­hvað vand­ræða­lega töff.

En uppáhalds Eurovision-lagið og af hverju?

Euphoria er besta Eurovision-lag fyrr og síðar, við erum allar sam­mála um það.

Má búast við að það komi eitthvað á óvart í flutningi ykkar í beinni útsendingu?

Ó já, heldur betur. Verið við­búin.

Af hverju ætti íslenska þjóðin að kjósa ykkur?

Útaf því að við erum með svaka stuð­lag! Við viljum deila gleð­inni og glimmer­inu með sem flestum og hver vill ekki taka þátt í því partýi?

Þrusu þrí­eyki hér á ferð.

Hvernig eigið þið eftir að bregðast við ef þið vinnið?

Stefanía á eftir að fara að grenja, Agnes mun hugga Stefaníu og Regína fær tauga­á­fall = we got this.

En ef þið tapið?

Það tapar eng­inn í Eurovision.

Er líf eftir Eurovision?

Við erum spenntar að kom­ast að því. Eflaust aðeins rólegra líf en von­andi jafn mikið glimmer.

Gott silfur var gulli betra

Knatt­spyrnu­kapp­inn og tón­list­ar­mað­ur­inn Guð­mundur Þór­ar­ins­son flytur lagið Liti, eða Colours, sem hann samdi með félaga sínum, Fannari Frey Magn­ús­syni, en þeir eiga annað lag í keppn­inni; Brosa sem flutt er af Þóri og Gyðu. Guð­mundur verður alveg brjál­aður ef hann tapar en líka ríkur af góðum og skemmti­legum upp­lif­unum.

Af hverju Eurovision?

Fannar sem semur lögin með mér sendi þau inn til að koma okkar tón­list á fram­færi, það var engin djúp pæl­ing á bak við það, meira að við vildum koma okkur áfram í tón­list­inni.

Hvernig var til­finn­ingin þegar þú komst að því að lagið væri komið í und­an­úr­slit?

Spenn­andi hugs­aði ég. Ég bý erlendis svo að ég vissi að þetta yrði krefj­andi en þetta hefur gengið mjög vel hingað til.

Hvert er fyrsta lagið sem þú manst eftir í Eurovision?

Senni­lega Selma Björns með All out of luck. Þetta er svo minn­is­stætt því fjöl­skyldan var orðin mjög gíruð heima að við værum að fara að vinna en gott silfur var gulli betra í það skiptið.

En uppáhalds Eurovision-lagið og af hverju?

Í síð­asta skipti með Friðrik Dór. Flott lag sem passar alltaf sama hver stemn­ingin er og Stattu upp með Bláum Ópal, ef maður setur það á í partýi þá verður kvöldið gott.

Guð­mundur vonar að Eurovision sé bara byrj­unin á ferl­inum.

Af hverju ætti íslenska þjóðin að kjósa ykkur?

Það verður hver einn að fá að ákveða það með sjálfum sér, ég reyni að syngja vel og hafa atriðið flott og þá von­andi finnst fólki lagið flott.

Hvernig átt þú eftir að bregðast við ef þú vinnur?

Ég hrein­lega veit það ekki, ég hugsa ekki svo langt fram í tím­ann lengur, ég hef sem betur fer loks­ins lært að reyna að gera mitt besta í augna­blik­inu og ekki pæla of mikið í fram­tíð­inni.

En ef þú tapar?

Þá verð ég reyndar alveg brjál­aður.

Verður einhver ríkur á að taka þátt í Eurovision?

Ríkur af góðum og skemmti­legum upp­lif­unum.

Er líf eftir Eurovision?

Já, pæl­ingin mín var að tón­list­ar­fer­ill­inn myndi hefj­ast með Eurovision. Ég á mörg lög og finnst gaman að gefa af mér, von­andi verður þetta bara byrj­unin.

Fallegur boðskapur sem höfðar til allra

Söng­konan Rakel Páls­dóttir snýr aftur í Söngvakeppn­ina, en hún flutti lagið Til mín ásamt Arnari Jónssyni í fyrra. Í ár syngur hún ball­öð­una Óskin mín, eða My Wish, sem samið er af Hall­grími Bergs­syni. Hún seg­ist í fyrstu ekki hafa getað sungið lagið því hún fór alltaf að gráta, svo sterkt tengir hún við það.

Hvaða þýðingu hefur lagið fyrir ykkur?

Lagið hefur sterka þýð­ingu fyrir mig. Ég hef aldrei tengt eins vel við lag eins og þetta. Ég varð móðir árið 2015 og þá upp­lifir maður nýjar til­finn­ingar. Þetta lag var samið um tvo afa­stráka sem Hall­grímur eign­að­ist og er þetta um það að móðir syngi til barns síns, óski þess að það elti drauma sína og treysti á sína eigin dóm­greind. Ofsalega fal­legur boð­skapur. Í fyrstu bara gat ég ekki sungið lagið, fór alltaf að gráta. Svo sterkt tengi ég við það.

Hvernig var til­finn­ingin þegar þú komst að því að þú værir að fara að syngja lag í Söngvakeppn­inni?

Til­finn­ingin að fá sím­talið var ynd­is­leg! Ég var búin að hugsa með mér hversu leið­in­legt það væri að vera ekki með í keppn­inni í ár. En svo fæ ég sím­tal frá Hall­grími og hoppa af kæti. Ég hlusta svo á lagið og verð enn glað­ari. Þetta lag hentar mér svo vel.

Rakel keppti líka í fyrra og gekk vel.

Hvert er fyrsta lagið sem þú manst eftir í Eurovision?

Fyrsta lagið sem ég man eftir er Another sum­mern­ight sem var fram­lag Möltu árið 2001. Ég var að byrja að horfa á Eurovision á þessum tíma og þetta lag situr enn fast í minn­inu.

En uppáhalds Eurovision-lagið og af hverju?

Þau eru mörg en þessa stund­ina er það lagið Undo sem Sanna Nielsen flutti fyrir Svíþjóð árið 2014 og hafn­aði í 3. sæti. Annars eru lögin Je nai que mon âme, Frakk­land 2001 og lag Serbíu árið 2007 – Molitva.

Af hverju ætti íslenska þjóðin að kjósa þig?

Lagið er ein­lægt og fal­legt og hefur fal­legan boð­skap. Við Íslend­ingar þurfum að senda rólegt lag í þetta skiptið í Eurovision. Það er svo mikið stress í þjóð­fé­lag­inu. Ég held að það sé góð leið til þess að ná ró innra með okkur og anda léttar. Svo er þessi boð­skapur svo fal­legur og höfðar til allra.

Hvernig átt þú eftir að bregðast við ef þú vinnur?

Hoppa af kæti og fá svo stresskast.

En ef þú tapar?

Hugsa að maður á aldrei að svekkja sig yfir ein­hverju, heldur halda áfram, það kemur annað tæki­færi.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag