Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bandarískur verðlaunahafi við stjórnvölinn

Reykja­vík Meat er steik­ar­staður sem býður þó einnig upp á fisk-, græn­metis- og Vegan­rétti. Á hátíð­inni Food & Fun verður í boði glæsi­legur mat­seð­ill banda­ríska mat­reiðslu­meist­ar­ans Hamiltons Johnson þar sem tún­fiski, let­ur­humri, nauta­lund og súkkulaði er gert hátt undir höfði á listi­legan hátt.

Bandarískur verðlaunahafi við stjórnvölinn

Veit­inga­stað­ur­inn Reykja­vík Meat sem er til húsa við Frakka­stíg 8b, var opn­aður í fyrra­haust og er um að ræða steik­ar­stað þar sem jafn­framt er boðið upp á fisk-, græn­metis- og vegan­rétti og allir ættu að finna eitt­hvað við sitt hæfi. Reykja­vík Meat tekur þátt í Food & Fun í ár og er það banda­ríski mat­reiðslu­meist­ar­inn Hamilton Johnson sem galdrar fram girni­legan mat­seðil þar sem tún­fiski, let­ur­humri, nauta­lund og súkkulaði er gert hátt undir höfði á listi­legan hátt.

„Hamilton er með margar góðar pæl­ingar,“ segir Almar Yngvi Garð­ars­son, veit­ing­ar­stjóri og einn eig­enda veit­inga­stað­ar­ins. „Það verður til dæmis reykt beikon með let­ur­humr­inum sem maður er ekki vanur að fá og svo verður kálfatunga með aðal­rétt­inum,“segir Almar en fyrst fá gestir smá­rétti til að hita upp bragð­lauk­ana, síðan er tún­fiskur í for­rétt, let­ur­humar í milli­rétt, nauta­lund í aðal­rétt og vindla­reykt súkkulaði í eft­ir­rétt. „Ég hlakka mikið til að vinna með Hamilton. Þetta er í átt­unda skipti sem ég tek þátt í Food & Fun og er með góða reynslu af þessu og ég held að Hamilton hafi tekið þrisvar áður þátt í Food & Fun hér á landi.“

Notaleg stemmn­ing ein­kennir Reykja­vík Meat. Mynd / Hallur Karlsson

Hamilton er þekktur fyrir að blanda ein­stökum sem og þekktum hrá­efnum saman á óhefð­bund­inn hátt. Hann keppir reglu­lega í alþjóð­legum mat­reiðslu­keppnum og árið 2016 var hann annar tveggja mat­reiðslu­meist­ara í efstu sætum í alheimskeppni Food & Fun sem haldin var í Finn­landi. Þess má geta að norski bar­þjónn­inn Jörgen Jørgen Dons er gesta­bar­þjónn á Reykja­vík Meat á meðan á Food & Fun stendur en hann býr til sinn eigin kok­teila­seðil af þessu til­efni.

Almar segir að þátt­taka í Food & Fun skipti máli fyrir Reykja­vík Meat upp á að fá tengsl út í heim með þátt­töku Hamiltons. „Mér finnst Food & Fun vera mjög skemmti­leg hug­mynd. Þetta er hátíð þar sem fólk fær að prófa eitt­hvað nýtt og það er alltaf gaman að fá að gleðja bragð­lauk­ana hjá fólki. Það er líka gaman að fá kúnna­hóp sem maður er ekki vanur að fá en sem stundar að fara á Food & Fun og finnur okkur í raun í gegnum þessa hátíð.“

Matseðillinn

TÚNFISKUR
Hnúðkál, „vodouvan“,  radísur, rúg­brauð, andalifur

GRILLAÐUR HUMAR
Svín, fennel, jarð­skokkar, svört truffla

NAUTALUND
Hvítkál, smælki-kart­öflur, sell­er­í­rót, nauta­tunga, blá­ber

KAFFI & VINDLAR
Malt, súkkulaði, vind­ill, kara­mella, hesli­hnetur, espressó, mar­ens

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Reykja­vík Meat

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur