Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Örlagaríkt símtal

Örlagaríkt símtal

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Fyrir tæpum tuttugu árum komst ég að því að maðurinn minn héldi fram hjá mér en það voru þó ekki einu svikin sem ég uppgötvaði í kjölfar símtals þar sem viðmælandinn breytti rödd sinni og sagði ekki til nafns.

Ég var rétt rúm­lega tví­tug þegar ég kynnt­ist Jónsa sem heill­aði mig upp úr skónum við fyrstu sýn. Þótt ég sé borg­ar­barn fannst mér ekki erfitt að flytja með honum út á land, í bæinn þar sem hann var bor­inn og barn­fæddur. Við giftum okkur í kirkj­unni þar sem hann hafði verið skírður og fermdur og seinna meir börnin okkar en við eign­uð­umst tvö börn með skömmu milli­bili.

Jónsi var iðn­mennt­aður og starfs­kraftar hans mjög eft­ir­sóttir svo ekki liðu mörg ár þar til við festum kaup á fal­legu ein­býl­is­húsi. Þegar börnin voru orðin nokk­urra ára gömul fór ég að vinna, fyrst á leik­skól­anum á staðnum og síðan í verslun. Ég var ham­ingju­söm þarna, eign­að­ist ynd­is­lega vini og þá sér­stak­lega Freyju sem var mín besta vin­kona. Börnin okkar voru á svip­uðum aldri og léku sér saman þegar hún kom með þau í heim­sókn sem var oft. Hún bjó reyndar rétt fyrir utan bæinn, en hún og mað­ur­inn hennar höfðu byggt hús á jörð for­eldra hans sem voru með örlít­inn búskap.

Ingi, mað­ur­inn hennar, var smiður og vann bæði í bænum okkar og víða í sýsl­unni. Hann var mikið að heiman og því hitti ég Freyju lík­lega oftar en ella. Mér leist vel á Inga í fyrstu en eftir því sem ég kynnt­ist Freyju betur fékk ég á til­finn­ing­una að hann væri ekki sér­lega góður maður og þótt hún segði það aldrei held ég að hann hafi lagt á hana hendur. Freyja varð til dæmis ekk­ert sér­stak­lega upp­rifin þegar ég stakk upp á því að þau hjónin kæmu í mat­ar­boð til okkar Jónsa, sagði hann lítið vera fyrir slíkt og vildi bara vera heima þegar hann væri ekki í vinnu. Draumur minn um að við yrðum náin vina­hjón féll um sjálft sig.

Grunsemdir kvikna

Um tutt­ugu árum eftir að ég flutti í litla bæinn fór ég að finna fyrir breyt­ingum á Jónsa. Ég veit að það þarf að rækta hjóna­bönd en hvers­dags­lífið hafði tekið yfir og við gerðum aldrei neitt skemmti­legt eða róm­an­tískt saman. Það má segja að ég hafi vaknað við vondan draum. Við vorum vissu­lega góð hvort við annað og spjöll­uðum mikið saman en Jónsi var orð­inn fjar­lægur og fór til að mynda í hátt­inn ann­að­hvort á undan mér eða á eftir og þá eins og hann biði eftir að ég sofn­aði. Ég sakn­aði inni­legu stund­anna okkar og reyndi að end­ur­heimta þær með ýmsum ráðum en án árang­urs. Ég stakk upp á því að við færum í helg­ar­ferð til útlanda, bara við tvö, eða á hótel í Reykja­vík en hann lang­aði ekki, sagð­ist hafa svo mikið að gera.

Fyrst í stað kenndi ég sjálfri mér um, að ég hefði hugsað meira um börnin og heim­ilið en að rækta ást­ina og hjóna­bandið en smám saman lædd­ist að mér sá grunur að Jónsi væri far­inn að hitta aðra konu. Hann hugs­aði betur um útlitið en áður, sem mér skilst að geti verið merki um fram­hjá­hald, og vann líka meira en áður og annað slagið langt fram eftir kvöldi.

Fyrst í stað kenndi ég sjálfri mér um, að ég hefði hugsað meira um börnin og heim­ilið en að rækta ást­ina og hjóna­bandið en smám saman lædd­ist að mér sá grunur að Jónsi væri far­inn að hitta aðra konu.

Einn dag­inn þegar mér leið mjög illa viðr­aði ég þessar áhyggjur mínar við Freyju. Henni tókst að róa mig og sagði að mikið væri spjallað í bænum en hún hefði ekki heyrt að Jónsi héldi fram hjá mér. Það átti þó eftir að breyt­ast fljót­lega og allt fór að loga í kjafta­sögum, komst ég að síðar. Eitthvað var giskað en flestir héldu að ákveðin ein­hleyp kona væri við­haldið en sú virt­ist upp með sér af sög­unum, frekar en hitt, og sór ekki fyrir neitt. Seinna frétti ég að hún hefði vitað hið sanna og viljað með þess­ari fram­komu vernda við­kom­andi konu sem var skyld henni.

Auðvitað hafði ég gengið á mann­inn minn en hann harð­neit­aði öllu. Ástandið var frekar þungt á heim­il­inu, ég vildi trúa honum en átti erfitt með það.

Freyja var dug­leg að heim­sækja okkur og stundum var hún fram á kvöld og borð­aði með okkur. Mér fannst gott að fá Freyju og frekar hvatti hana en latti til að vera lengur. Hún var eina mann­eskjan sem ég gat talað við um líðan mína.

„Eltu rútuna“

Eina helg­ina þurfti Jónsi að vinna verk­efni í Reykja­vík. Við áttum bara einn bíl en Jónsi heimt­aði að ég hefði hann, það væri ekk­ert mál fyrir hann að taka rút­una í bæinn, hann yrði sóttur á BSÍ. Ég skutl­aði honum í sjopp­una þar sem rútan stopp­aði og fór svo heim. Ég hafði ekki verið lengi heima þegar sím­inn hringdi. Um leið og ég svar­aði sagði rödd sem greini­lega var reynt að breyta: „Eltu rút­una, þá sérðu hvað mað­ur­inn þinn er að gera.“ Ekki heyrði ég hvort þetta var karl eða kona og þegar ég spurði hver þetta væri var skellt á.

Ég ákvað að hlýða þessu, rauk út í bíl og ók sem leið lá í sömu átt og rútan hafði farið nokkrum mín­útum áður. Rútan stopp­aði stutt í bænum okkar en í tíu mín­útur eða korter í næsta bæ. Mér byrj­aði að líða eins og kjána meðan ég elti rút­una og ákvað að snúa við þegar ég væri komin þangað. Þetta hlyti að vera gabb.

Ég hafði ekki verið lengi heima þegar sím­inn hringdi. Um leið og ég svar­aði sagði rödd sem greini­lega var reynt að breyta: „Eltu rút­una, þá sérðu hvað mað­ur­inn þinn er að gera.“ Ekki heyrði ég hvort þetta var karl eða kona og þegar ég spurði hver þetta væri var skellt á.

Rútan ók inn í bæinn og stopp­aði við sölu­skála, ég lagði í nokk­urri fjar­lægð og fylgd­ist með far­þeg­unum stíga út, mað­ur­inn minn var einn þeirra. Mér til undr­unar gekk hann með föggur sínar beint að bíl sem stóð við skál­ann og sett­ist inn í hann. Þetta var bíll­inn hennar Freyju vin­konu, hún sat undir stýri og ók af stað fljót­lega og stefndi til Reykja­víkur. Ég sat eins og lömuð á meðan sann­leik­ur­inn rann upp fyrir mér. Ég veit ekki hvernig ég komst heim því ég var í svo miklu upp­námi.

Jú, mað­ur­inn minn og besta vin­kona höfðu skipu­lagt róm­an­tíska helgi í Reykja­vík. Þau byrj­uðu að vera saman löngu áður en mig grun­aði nokkuð.

Sturluð úr ást

Upp­gjörið í helg­ar­lok var erfitt. Jónsi reyndi ekki að neita neinu en sagði að vænt­um­þykja hans til mín og barn­anna hefði komið í veg fyrir að hann bæði um skilnað, en nú væri það víst óum­flýj­an­legt.

Sama kvöldið sagði Freyja mann­inum sínum frá sam­band­inu, ég held að Jónsi hafi hringt í hana og sagt henni að allt hefði kom­ist upp. Maðurinn henti Freyju öfugri út, sagði að hann vildi aldrei sjá hana aftur og væri viss um að sama gegndi um börnin þeirra. Það var nokkuð til í því, börnin hennar töl­uðu ekki við hana í nokkur ár en svo jöfn­uðu þau sig. Ætt­ingjar Freyju refsuðu henni á sinn hátt líka, buðu Inga í öll fjöl­skyldu­boð næstu árin sem hann þáði þannig að Freyju var ekki vært þar. Auðvitað höfðu allir samúð með Inga og vildu sýna honum að hegðun Freyju væri ekki sam­þykkt af þeim.

Börnin mín urðu líka mjög reið út í pabba sinn en ekki jafn­lengi og börn Freyju.

Freyja og Jónsi fóru að búa saman strax í kjöl­farið og þótt bæj­ar­búar stæðu með okkur mökum þeirra, treysti ég mér ekki til að búa þarna lengur. Börnin mín vildu endi­lega flytja líka. Fína húsið okkar seld­ist hratt og Jónsi, eflaust fullur af sam­visku­biti, gaf mér sinn helm­ing af and­virð­inu og leyfði mér að velja það sem ég vildi úr inn­bú­inu. Hann vissi svo sem að hann ætti mun betur með að hefja nýtt líf, með marg­falt hærri tekjur og enda­lausa atvinnu­mögu­leika. Ég er honum þakk­lát fyrir þetta þótt þakk­læti hafi þó ekki verið mér efst í huga fyrst eftir skiln­að­inn.

Við börnin fluttum á höf­uð­borg­ar­svæðið og þar tókst mér að búa okkur gott líf. Ég fékk strax fína vinnu, ekki vel borg­aða þar sem ég er ekki með góða menntun en mér leið vel þar. Ári seinna var ég orðin versl­un­ar­stjóri í búð skammt frá heim­ili mínu og við það hækk­uðu laun mín nokkuð.

…sagði hún að hún hefði verið sturluð af ást og gert allt til að vera nálægt Jónsa, þótt það þýddi svik við bestu vin­kon­una, mig.

En áður en ég flutti hringdi ég í Freyju, hún hafði forð­ast að verða á vegi mínum en mig lang­aði að tala við hana. Þetta var erfitt sím­tal. Þegar ég spurði hana hvernig hún hefði getað hugsað sér að vera trún­að­ar­vin­kona mín, koma svona oft í heim­sókn og borða stundum með okkur, sagði hún að hún hefði verið sturluð af ást og gert allt til að vera nálægt Jónsa, þótt það þýddi svik við bestu vin­kon­una, mig. Ef hún gæti farið aftur í tím­ann hefði hún kosið að þau Jónsi hefðu komið hreint fram frá upp­hafi, það hefði kannski verið auð­veld­ara fyrir alla aðila, að minnsta kosti stytt þetta erf­iða tíma­bil.

Hún og Jónsi giftu sig og miðað við það sem ég hef heyrt eru þau ham­ingju­söm.

Ég hef aldrei kom­ist að því hver það var sem hringdi í mig þennan örlaga­ríka dag en er við­kom­andi þakk­lát. Að vísu flýtti þetta sím­tal aðeins fyrir því óhjá­kvæmi­lega og gerði hlut­ina lík­lega dramat­ísk­ari en ég hefði ekki viljað vita þetta mikið seinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina