Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hefur ekki séð myndina sem hún leikur í

Leik­konan Aníta Briem hefur í nægu að snú­ast þessa dag­ana en hún leikur eitt af aðal­hlut­verk­unum ásamt Ólafi Darra í nýrri íslenskri þátta­röð sem er í vinnslu. Aníta fer líka með hlut­verk í mynd­inni The Drone sem var frum­sýnd á Slamdance-hátíð­inni fyrir stuttu og er auk þess að ljúka tökum á mynd sem hún leikur aðal­hlut­verkið í ásamt Terrence Howard.

Hefur ekki séð myndina sem hún leikur í

Þrátt fyrir að nóg sé að gera hjá Anítu í leik­list­inni er tón­listin ekki langt undan og hún við­ur­kennir að hún hafi verið að semja í leyni.

„Ég er heldur und­ar­leg kisu­lóra sem velur að eyða líf­inu sem ein­hvers­konar lista­spíra. Það er oft erfitt, oftar gef­andi og aldrei leið­in­legt,“ segir Aníta Briem sem var stödd á upp­á­halds­staðnum sínum, við skrif­borðið í vinnu­stúd­íó­inu hennar í Los Angeles, þegar Albumm hafði sam­band.

Á bak við hana er heill veggur af litaglöðum post-it miðum, pæl­ingar fyrir kvik­mynd sem hún er að skrifa. Á þessum stað semur Aníta tón­list, stúd­erar hand­rit og „masterar“ hæfi­leika sína og áhuga­mál í friði. „Maður velur sér ekki að vera í list­greinum nema maður geti ekk­ert annað, já, nema maður sé masókisti sem ég er örugg­lega líka, svona pínu pons, en guð má vita af hverju. Maðurinn minn er leik­stjóri svo við erum að minnsta kosti bæði sam­mála um hvað okkur finnst eðli­legt. Er það ekki und­ir­stöðu­at­riði í hjóna­bandi? Við eigum saman dótt­ur­ina Míu, sem er nýorðin 5 ára og er algjör snill­ingur. Við reynum að halda fjöl­skyld­unni saman og Mía ferð­ast alltaf með okkur þegar við förum í tökur eða á fundi.“

Ég er heldur und­ar­leg kisu­lóra sem velur að eyða líf­inu sem ein­hvers­konar lista­spíra.

Aníta hefur búið í Los Angeles í um 10 ár og segir að vissu­lega fái hún stundum heim­þrá en henni líði best þegar hún er á ferða­lagi og þegar hún fær að verja nokkrum mán­uðum hér og þar að taka upp myndir. „Ég sakna íslenska fólks­ins, því ég verð alltaf Íslend­ingur í kjarn­ann og aðeins á Íslandi líður mér eins og ég sé heima. Ég hlakka mikið til að koma núna og verja nokkrum mán­uðum í tökum á Íslandi og leyfa dóttur minni að fara í íslenskan leik­skóla í smá­tíma. Svo held ég áfram ferða­lag­inu.“

Spurð út í áhuga­málin segir Aníta að leik­listin taki mest af hennar tíma en henni finn­ist líka gaman að læra. Svo hlusti hún mikið á hlað­vörp sem fjalla um glæpa­mál, heim­speki, goða­fræði og geim­vís­indi. Tón­listin sé þó ekki langt undan.

„Ég hef verið að búa til tón­list í leyni í nokkurn tíma, svona fyrir sál­ina. Kvik­mynda­vinna og -fram­leiðsla er svoddan mara­þon og heill her af fólki fylgir því þannig að það er gott að hafa fundið leið til að koma hlut­unum frá sér sem maður getur bara gert einn. En nú er ég að koma út úr hell­inum með þetta og vinn með frá­bærum fram­leið­endum hér í LA. Kannski gef ég eitt­hvað út á næst­unni.“

Nýjasta myndin sem Aníta leikur í heitir The Drone og var frum­sýnd á Slamdance-hátíð­inni sem fram fór á dög­unum. Í mynd­inni fer Aníta með hlut­verk Corrine, nágranna­konu hjóna sem leikin eru af John Brotherton og Alex Essoe. „Þetta er spennu­tryllir sem við tókum upp fyrir um tveimur árum og er frekar lítil indie-mynd en ég hef reyndar ekki séð hana. Ætli ég sé ekki eitt­hvað að draga lapp­irnar, því þetta er fyrsta myndin þar sem ég var beðin um að vera í bik­iní, þó í nafni kómedíu svo það var aðeins skárra.“

Lengri umfjöllun er á Albumm.is

Mynd / Darri Ing­ólfs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu