Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Aðdragandinn af því hvernig Valur varð ríkasta íþróttafélag á Íslandi

Knatt­spyrnu­fé­lagið Valur er rík­asta íþrótta­fé­lag á Íslandi. Sú staða gerir Vali kleift að bjóða upp á aðstöðu, aðstæður og launa­greiðslur sem önnur íþrótta­fé­lög geta illa eða ekki keppt við. Nið­ur­staðan er sú að Valur er í fremstu röð á öllum víg­stöðum helstu hóp­í­þrótta á Íslandi hjá báðum kynjum og hirðir hvern tit­il­inn á fætur öðrum. Sagan á bak­við þennan upp­gang er hins vegar stór og mikil og er rakin í nýjasta tölu­blaði Mannlífs og á vef­síðu Kjarnans.

Aðdragandinn af því hvernig Valur varð ríkasta íþróttafélag á Íslandi
Mynd / Bára Huld Beck

Á árunum 1990-1992 hafði karla­lið Vals í knatt­spyrnu unnið þrjá bik­ar­meist­aratitla í röð og tekið þátt í Evr­ópu­keppni. Hand­boltalið Vals var líka það besta á Íslandi á tíunda ára­tugnum og vann hvern Íslands­meist­ara­tit­il­inn á fætur öðrum. Sögulega var félagið stór­veldi.
En fjár­hagur Vals var í molum. Skuldir söfn­uð­ust upp ár frá ári og voru að sliga allan rekstur.

Knatt­spyrnu­deildin var í verstum málum, enda fjár­frek­ust. Sú staða fór að end­ur­spegl­ast í frammi­stöð­unni á vell­inum og árið 1999 náði þetta nið­ur­læg­ing­ar­skeið félags­ins full­komnun þegar Valur féll úr efstu deild knatt­spyrnu karla í fyrsta sinn í sögu félags­ins.
Það sem gerði fallið enn verra var að Íslands­meist­ara­tit­ill­inn það árið fór til stór­veldis þess tíma, nágranna Vals úr Vesturbæ Reykja­víkur, KR.

Ári áður hafði KR gert eitt­hvað sem var ekki þekkt í íslenskum íþrótta­heimi. Nokkrir gall­harðir stuðn­ings­menn stofn­uðu eign­ar­halds­fé­lagið KR-sport sem hafði þann til­gangi að styðja við rekstur knatt­spyrnu­deildar KR og í raun taka yfir rekstur hennar. Skráðir stofn­endur voru tveir, Björgólfur Guð­munds­son og Haukur Gunn­ars­son.
Inn í félagið var greitt hlutafé sem síðan átti að vera hægt að ávaxta og nota ágóð­ann af því til að styrkja fjár­hags­lega rekstur knatt­spyrnu­liðs KR. Á meðal fjár­fest­inga sem KR-sport réðst í var að kaupa þrjá veit­inga­staði á Eiðis­torgi: Rauða ljónið, Kon­íaks­stof­una og Sex Baujuna. Líkast til má deila um ágæti þeirrar fjár­fest­ingar.
Ýmsir harðir stuðn­ings­menn Vals, sem áttu fjár­muni og fullt af vilja til að gera vel fyrir félagið sitt, horfðu til þess að KR-leiðin gæti verið leið sem nýst gæti þeim.

Á annan tug kjöl­festu­fjár­festa
Í byrjun des­em­ber 1999 var félagið Valsmenn hf. stofnað til að „vera sjálf­stæður fjár­hags­legur bak­hjarl fyrir Knatt­spyrnu­fé­lagið Val“. Alls lögðu á annan tug ein­stak­linga fram eina milljón króna í fyrstu. Þeir urðu svo­kall­aðir „kjöl­festu­fjár­festar“ í hinu nýja félagi. Á meðal þeirra sem til­heyrðu þeim hópi var margt þjóð­þekkt fólk. Helstu drif­kraft­arnir voru ann­ars vegar Grímur Sæmund­sen, fyrr­ver­andi leik­maður Vals og nú helsti eig­andi og stjórn­andi Bláa lóns­ins, og Helgi Magn­ús­son, stór­tækur fjár­festir sem um ára­bil var einnig stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna. Á meðal ann­arra sem lögðu fram milljón krónur voru Guðni Bergsson, einn ást­sæl­asti sonur Vals og þá enn atvinnu­maður í knatt­spyrnu, og fjöl­miðla­mað­ur­inn Ingvi Hrafn Jónsson, sem á síð­ustu árum er best þekktur fyrir rekstur sjón­varps­stöðv­ar­innar sál­ugu ÍNN.

Fleiri velunn­urum Vals var í kjöl­farið boðið að leggja til lægri fjár­hæðir. Alls söfn­uð­ust hluta­fjár­vil­yrði fyrir 50 millj­ónum króna og á end­anum inn­heimt­ust 43 millj­ónir króna af þeim. Flestir lögðu til mjög lágar upp­hæðir, um tíu þús­und krónur.

Í fyrstu stjórn Vals­manna hf. sátu Brynjar Harð­ar­son, fyrr­ver­andi hand­bolta­leik­maður hjá Val og íslenska lands­lið­inu sem var for­maður, Helgi Magn­ús­son, Elías Her­geirs­son, Friðrik Soph­us­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og áhrifa­maður í stjórn­málum um ára­bil, Stefán Gunn­ars­son, Kjartan G. Gunn­ars­son og Örn Gúst­afs­son.

Fyrsti skráði fram­kvæmda­stjór­inn var lög­mað­ur­inn Brynjar Níelsson, síðar þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og mik­ill Valsari.

Brynjar Harð­ar­son tók þó fljót­lega við öllum rekstri félags­ins sem snérist um að fjár­festa fyrir hluta­féð. Það var meðal ann­ars gert með kaupum á stóru aug­lýs­inga­skilti sem sett var upp við Hlíð­ar­enda og kaupum á verð­bréfum.

Þessi fyrstu ár var ávöxt­unin nokkrar millj­ónir króna á ári. Það var vissu­lega búbót fyrir skuldum hlaðið félag en var ekki að fara að umbylta rekstr­inum á Hlíð­ar­enda.

Áttu landið
Valur var í þeirri ein­stöku stöðu að eiga landið þar sem félagið stund­aði starf­semi sína, á Hlíð­ar­enda. Það hafði átt það frá því maí­mán­uði 1939. Það reynd­ist á end­anum mesta lukka Vals að hafa fest sér þetta land sem um 90 árum síðar varð eitt verð­mætasta bygg­ing­ar­land í höf­uð­borg lands­ins.

Valsmenn hf. höfðu áhuga á að nýta sér þessa ein­stöku stöðu til að styrkja Val og bæta aðstöðu félags­ins. Fyrsta skrefið sem stigið var til þess var að gera samn­ing við Reykja­vík­ur­borg hinn 11. maí 2002 um Hlíð­ar­enda­svæðið. Samkvæmt honum lét Valur hluta af erfða­festu­landi Vals undir umferð­ar­mann­virki sem tengd­ust m.a. legu nýju Hring­braut­ar­innar og stórt svæði sem átti að skipu­leggja sem lóðir með fram Flug­vall­ar­vegi og Hlíð­ar­fæti. Samhliða var gerður lóða­leigu­samn­ingur um það svæði sem íþrótta­svæði Vals stendur á.

Á þessum tíma skuld­aði Valur um 200 millj­ónir króna og við blasti að umtals­verða fjár­muni þurfti til að fjár­festa í bættri aðstöðu á svæði félags­ins. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Reykja­vík­ur­borg var metin á tæpan einn millj­arð króna. Þá fjár­muni átti að fá með því að selja bygg­inga­rétt af lóð­unum sem Valur lét frá sér í sam­komu­lag­inu og við­bót­ar­lóðum sem Reykja­vík átti við svæðið.

Fjár­mun­irnir áttu að not­ast ann­ars vegar til að greiða niður skuldir Vals og hins vegar að fjár­magna 780 millj­óna króna upp­bygg­ingu mann­virkja. Á meðal þess sem átti að byggja var íþrótta­hús með áfastri útistúku og aðal­leik­vang við hlið þess. Mann­virki sem í dag eru risin og bera nöfnin Origo-höllin og Origo-völl­ur­inn.

Frétta­skýr­ing­una í heild sinni má lesa í nýjasta tölu­blaði Mannlífs og á vef­síðu Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum