Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hún sagði mér að fangelsið væri öruggara en hjónabandið

Móðir Nöru Walker, sem var dæmd í 18 mán­aða fang­elsi hér­lendis fyrir að bíta hluta tung­unnar úr þáver­andi eig­in­manni sínum, seg­ist hafa verið lömuð af ótta þegar hún fékk fréttir af því að dóttir hennar sæti í fang­elsi hinu meg­inn á hnett­inum. Þrátt fyrir að vera ósátt við þá með­ferð sem Nara fékk frammi fyrir íslenskum dóm­stólum er hún mjög hrifin af Íslandi og íslenskri þjóð.

Hún sagði mér að fangelsið væri öruggara en hjónabandið
Mynd úr einka­safni.

Umrætt atvik átti sér stað í byrjun nóv­em­ber 2017. Nara og þáver­andi eig­in­maður hennar höfðu boðið ónefndri konu og banda­rískum ferða­manni heim til sín eftir að þau höfðu verið úti að skemmta sér í mið­borg Reykja­víkur. Staðfest er að til ósættis hafi komið milli eig­in­manns­ins og banda­ríska ferða­manns­ins sem end­aði með því að þeim síð­ar­nefnda var vísað á dyr. Sagði banda­ríski ferða­mað­ur­inn fyrir dómi að mað­ur­inn hafi verið mjög æstur og fleygt honum niður stiga með ókvæð­is­orðum. Þá hafi Nara og eig­in­maður hennar rif­ist þegar hann forð­aði sér út úr hús­inu.

Nara hélt því fram fyrir dómi að eig­in­maður hennar og hin konan í sam­kvæm­inu hafi veist að henni og að hún hafi bitið hluta úr tungu hans í nauð­vörn. Lækn­is­vott­orð sem lagt var fyrir dóm­inn sýndi að Nara hafði hlotið áverka. Bæði eig­in­mað­ur­inn þáver­andi og umrædd kona, sem nú eru í sam­búð sam­kvæmt dómnum, sögðu hins vegar að Banda­ríkja­mað­ur­inn hafi farið í mesta bróð­erni og það hafi ekki verið fyrr en eftir að hann var far­inn sem Nara hafi veist að þeim báðum.

Nara var dæmd í 12 mán­aða fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur en Lands­réttur þyngdi dóm­inn í 18 mán­uði, þar af voru þrír mán­uðir óskil­orðs­bundnir. Mál Nöru hefur vakið mikla athygli og söfn­uð­ust vinir hennar saman fyrir utan fang­elsið á Hólms­heiði þegar hún hóf afplánun í febr­úar til að sýna henni stuðn­ing. Vinir Nöru í Ástralíu hófu und­ir­skrifta­söfnun til stuðn­ings henni sem um 43 þús­und manns hafa skrifað undir og sjálf hefur Jane skrifað bréf til for­seta Íslands, for­sæt­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra þar sem farið er fram á að hún verði náðuð.

Heillaði hana upp úr skónum

Mannlíf ræddi við Jane Lumeah, móður Nöru, sem er sér­stak­lega gagn­rýnin á máls­með­ferð­ina frammi fyrir dóm­sólum, þá sér­stak­lega að ekki hafi verið tekið til­lit til þess að hún hafi löngum sætt ofbeldi af hálfu eig­in­manns síns. Segist Jane hafa vitað að þannig væri ástatt í hjóna­bandi þeirra. „Það voru við­vör­un­ar­ljós. Ég man eftir einu til­viki, í Brisban, þar sem hún end­aði á sjúkra­húsi með brákuð bein í and­liti. Nara hafði sofnað á sóf­anum og hann missti hana þegar hann bar hana í rúmið. Þau á sjúkra­hús­inu spurðu hvort hann hafi gert þetta. þau vildu að hún kæmi aftur dag­inn eftir en hann leyfði henni það ekki.“

Það var hins vegar ekki fyrr en tveimur mán­uðum fyrir kvöldið örlaga­ríka sem Nara trúði móður sinni fyrir því að hún væri beitt ofbeldi. Þá voru þær staddar í Hong Kong og átti Jane flug heim til Ástralíu dag­inn eftir. „Hann virk­aði svo ver­ald­ar­vanur og heill­andi og hann heill­aði hana upp úr skónum. Hún elskaði hann og flutt­ist til Evrópu með honum. Nara varð vör við að hann varð upp­stökkur, drykkja hans jókst, aðrar konur og svo fram­vegis. En hún studdi hann alltaf, hún virki­lega elskaði hann. Hún trúir á fólk, hún trúði á hann og var var til­búin til að fyr­ir­gefa honum. Hún sér það góða í fólki. “

Fangelsið öruggara en hjónabandið

Jane komst að því að Nara hafi verið hand­tekin þegar hún fékk skila­boð frá eig­in­mann­inum þáver­andi. „Ég fékk skila­boð frá eig­in­manni hennar sem sagði að Nara væri „…í fang­elsi þar sem hún ætti heima“ og að ég „ætti að sjá hvað dóttir mín hafi gert honum“. Ég var leið fyrir hans hönd og skelf­ingu lostin fyrir hönd Nöru.

Ég hringdi á lög­reglu­stöð í Reykja­vík og tal­aði við vin­gjarn­legan full­trúa. Hann sagði að Nara væri við góða heilsu og að ég gæti talað við hana dag­inn eftir. Ég sagði honum að eig­in­mað­ur­inn hennar hafi margoft beitt hana ofbeldi. Ég spurði hvort hún væri meidd. Mér leið virki­lega illa. Þegar ég hringdi dag­inn eftir hafði henni verið sleppt og ég vissi ekk­ert hvar hún var. Það var ekki fyrr en ég tal­aði við Nöru nokkrum tímum síðar að ég frétti hvað raun­veru­lega gerð­ist. Lög­reglan hafði skutlað henni aftur til eig­in­manns­ins og tekið vega­bréfið af henni. Svo fór ég að sjá fyr­ir­sagnir í fjöl­miðlum. Ég ótt­að­ist mjög um öryggi hennar og hún var ein á báti.“

Lands­réttur þyngdi dóm Nöru Walker úr 12 mán­uðum í 18.

Jane er sann­færð um að dóttir hennar hafi verið beitt órétt­læti við máls­með­ferð­ina. „Í öllum öðrum Schengen-löndum hefði frum­kvæð­is­mað­ur­inn að ofbeld­inu, sá sem hefur beitt heim­il­is­of­beldi árum saman, verið lát­inn bera sök á því sem átti sér stað þetta kvöld. Ég skil ekki hvers vegna ára­langt heim­il­is­of­beldi var ekki tekið til greina, að ekki hafi verið hlustað á dóttur mína. Ég er mjög leið yfir því.“

Jane segir að fang­els­is­vistin hafi vissu­lega tekið á Nöru en að sama skapi hafi hún fengið tæki­færi til að upp­götva sjálfa sig. „Hún hefur sagt að fang­elsið sé í raun örugg­ara en hjóna­band hennar. Hún hefur nýtt tím­ann vel, hún hefur skrifað, æft og málað. Hún fær að hringja í mig á Skype einu sinni í viku. Það er eins og veisla fyrir mér. Þegar við tölum saman sé ég að hún er að reyna að gera það besta úr stöð­unni en ég sé líka að þetta er henni erfitt, að vera aðskilin frá vinum sínum, ein­angruð, ófrjáls.“

Jane segir að til að bæta enn á óviss­una hafi Nöru borist bréf þar sem henni var til­kynnt að hafið sé ferli um mögu­lega brott­vísun úr landi eftir að afplánun lýkur. Slík nið­ur­staða gæti þýtt miklar hömlur á ferða­frelsi hennar í Evrópu, segir Jane sem býst þó við að Nara snúi aftur til Ástralíu eftir að hún hefur setið af sér dóm­inn. „Hún þarf tíma með fjöl­skyldu sinni til að jafna sig. Hún hefur lifað í sam­felldum ótta und­an­farna 17 mán­uði. Hún hefur þurft að glíma við aukin ein­kenni áfallastreiturösk­unar, ára­langt ofbeldi og nú síð­ast rétt­ar­höldin sem virð­ast fram­leng­ing á mis­notk­un­inni.“

Jane býst þó ekki við að hún verði heima lengi. Eitt af fyrstu verkum Nöru verði að fara með málið skrefi lengra, til Strass­borgar. „Hún ætlar með málið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Hún vill gera það, ekki bara sín vegna heldur einnig fyrir þær konur sem hafa þurft að ganga í gegnum sömu reynslu. Hún vill að lögin veiti konum sem hafa þurft að sæta heim­il­is­of­beldi meiri vernd.“

Fékk heimsókn frá forsetafrúnni

Þrátt fyrir að dvöl Nöru á Íslandi hafi verið þyrnum stráð segir Jane hana tala vel um land og þjóð. Hér hafi hún eign­ast góða vini og fengið stuðn­ing úr mörgum ólíkum áttum. „Hún hefur fengið stuðn­ing frá mörgu dásam­legu fólki. Til dæmis þeim sem mættu fyrir utan fang­elsið og for­seta­frúnni, Elízu Reid, sem heim­sótti hana sem almennur borg­ari, þessir hlutir skipta hana svo miklu máli. Nara hafði hitt for­sta­frúna áður en hún var sak­felld og ég brast í grát þegar ég heyrði að hún hefði heim­sótt hana. Það er svo mikil við­ur­kenn­ing fyrir dóttur mína og end­ur­speglar það sem er svo gott við Ísland. Ég og Nara erum svo þakk­látar fyrir þann stuðn­ing sem okkur hefur verið sýndur, bæði á Íslandi og ann­ars staðar.“

Nara Walker hóf þriggja mán­aða afplánun í febr­úar.

Jane býst þó ekki við að dóttir hennar staldri lengi við í Ástralíu. „Ég held að hún ótt­ist hvaða áhrif dóm­ur­inn og mögu­leg brott­vikn­ing hafi á hennar ferða­frelsi og atvinnu. Það munu verða margar hindr­anir. Hún mun koma aftur til Ástralíu og tengj­ast land­inu og fjöl­skyld­unni á ný. Við erum mjög náin en ég veit að hún mun fara aftur þegar henni er batnað. Hennar atvinna er alþjóð­leg, hún nær­ist á öllum menn­ing­ar­kimum. Hún hefur myndað djúp og ein­læg tengsl við landið ykkar. Hún hefur kynnst fólki sem eru orðnir henni eins og fjöl­skyldu­með­limir og það er á Íslandi sem hún hefur kom­ist í raun­veru­leg kynni við sjálfa sig. Arfleifð okkar er evr­ópsk og Ísland er orðið eins og annað heim­ili. Ég hef tví­vegis heim­sótt Nöru til Íslands og þótt til­gang­ur­inn hafi verið í tengslum við þennan skelfi­lega atburð þá var ég hrærð yfir þeim mót­tökum sem ég fékk frá fólk­inu. “

Fang­els­is­mála­stofnun hafn­aði beiðni Mannlífs um að ræða við Nöru og var vísað til hags­muna brota­þola, það er eig­in­manns hennar, við þá ákvörðun og þess hversu stór hluti refs­ing­ar­innar er skil­orðs­bund­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum