Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kaupir notuð föt og stundar fataskiptimarkaði til að draga úr sóun

Vistvænn lífs­stíll hefur verið tón­list­ar­kon­unni Hafdísi Bjarna­dóttur hug­leik­inn und­an­farin ár. Á seinni árum hefur Hafdís lagt sér­stak­lega mikla áherslu á umhverf­is­vænar lausnir þegar kemur að tísku og hún kaupir sjaldan ný föt. Í stað­inn reynir hún að kaupa föt á nytja­mörk­uðum og stunda fata­skipti­mark­aði svo dæmi séu tekin. Hún hvetur fólk til að vanda valið þegar kemur að fata­kaupum.

„Ég kaupi mér rosa­lega sjaldan föt. Síðasta flík sem ég keypti voru íþrótta­skór af konu á Bland.is núna í vetur. Þar áður keypti ég not­aða kápu sem ég fékk í Hertex-nytja­mark­aði í des­em­ber,“ segir Hafdís þegar hún er spurð hvar hún kaupi helst föt.

„Stundum kaupi ég af fólki á Facebook og stundum í Org í Kringl­unni. Org finnst mér frá­bær búð því hún leggur áherslu á föt úr góðum nátt­úru­legum efnum sem eru fram­leidd á sjálf­bæran hátt af fyr­ir­tækjum sem styðja við mann­úð­ar­mál og upp­bygg­ingu. Ég hef ein­staka sinnum keypt mér vönduð merkja­föt í Geysi og Kiosk. En ann­ars kaupi ég helst notuð föt í Hertex-búð­unum, versl­unum Rauða kross­ins eða af fólki á Netinu. Mesta fjörið finnst mér samt vera í fata­skiptum, þá skipti ég út fötum sem ég passa ekki lengur í eða er orðin leið á fyrir föt sem aðrir passa ekki lengur í eða eru orðnir leiðir á,“ útskýrir Hafdís.

Engin flík í eitt ár

Hafdís segir að henni hafi alltaf þótt erfitt að henda hlutum og þess vegna á það vel við hana að gefa gömlum fötum fram­halds­líf.

„Mér hefur alltaf þótt ösku­haugar og land­fyll­ingar ótrú­lega sorg­legir staðir. Ég hef alltaf haft áhuga á að nýta hitt og þetta,“ segir Hafdís.

Það var fyrir um sex árum sem Hafdís fór að setja sér reglur og við­mið um hversu mikið hún mætti kaupa af til­teknum hlutum, til dæmis fötum. „Þá fór ég að leggja aukna áherslu á að kaupa not­aðar flíkur frekar en nýjar, þó ég hafi alla tíð keypt notuð föt og hluti í bland við nýtt.“

Ég hef alltaf haft áhuga á að nýta hitt og þetta.

Eitt sinn setti Hafdís sér það mark­mið að kaupa ekki eina ein­ustu flík í heilt ár, ekki einu sinni nær­föt. Spurð út í hvernig það gekk segir hún: „Það gekk furðu­vel, ég var sjálf frekar hissa hvað þetta var miklu minna mál en ég hélt.“

Áður en hún setti sér þá áskorun hafði hún verið í nokkrar vikur í lista­manna­búðum erlendis og hafði þá lítið af fötum með sér. Hún segir þær vikur hafa verið góðan und­ir­bún­ing fyrir áskor­un­ina. „Þetta var í raun­inni ekk­ert erfitt, nema kannski smá­vegis eftir svona átta mán­uði þegar ég var orðin frekar leið á úrval­inu í skápnum. Sem betur fer hafði ég hugsað út í það fyrir fram, þannig að nokkrum mán­uðum fyrr hafði ég „falið“ einn upp­á­halds­kjól til að draga fram þegar að þessu kæmi. Það var mjög hressandi að fara í hann á þessum tíma­punkti.“

Skyrtu­kjóll­inn sem Hafdís klæð­ist hér fékk hún í fata­skiptum.

Meðan á áskor­un­inni stóð upp­götv­aði Hafdís fata­skipti­markað sem er hald­inn á Loft, Banka­stræti, einu sinni í mán­uði. „Það var mjög gaman að kíkja þangað og skipta, enda var ekk­ert í regl­unum sem sagði að ég mætti ekki skipta á fötum, svo lengi sem ég væri ekki að kaupa ný föt,“ segir Hafdís kímin.

Gerir tilraunir með stíliseringar

Eftir að Hafdís fór að draga veru­lega úr fata­kaupum hefur hún lært að nýta það sem hún á vel með því að stílisera flík­urnar á nýjan hátt eða breyta þeim og laga.

„Ég er alltaf að leita að ein­hverjum snið­ugum leiðum til að breyta föt­unum. Stundum dreg ég fram sauma­vél­ina og stytti ermar, breyti sniði eða háls­máli eða eitt­hvað slíkt. En stundum þarf ekk­ert endi­lega að gera það. Um dag­inn fékk ég til dæmis skemmti­legan kjól í fata­býttum, hann virkar eig­in­lega best sem „bolur“, og svo fer ég í pils yfir.

Stundum dreg ég fram sauma­vél­ina og stytti ermar, breyti sniði eða háls­máli eða eitt­hvað slíkt.

Ég á líka peysu úr fata­býttum sem er hneppt og rosa­lega síð en ég kom­ast að því að hún er mjög skemmti­leg ef ég læt hana snúa „vit­laust“, þannig að töl­urnar séu að aftan, og svo bretti ég hana inn undir sjálfa sig til að gera hana styttri. Stórar karla­skyrtur verða svo að hálf­gerðum kjólum með því að bretta upp ermar og nota með belti. Stundum áskotn­ast mér peysur sem eru allt of stórar á mig en eru mjög flottar ef ég bretti upp ermarnar,“ tekur Hafdís sem dæmi.

Gott að byrja á litlum skrefum

Það gleður Hafdísi að sjá að ein­hvers konar vit­und­ar­vakn­ing er að eiga sér stað núna hvað fata­sóun og óhóf­leg fata­kaup ræðir.

„Mér finnst eins og mikil vit­und­ar­vakn­ing sé að eiga sér stað akkúrat núna. Ég held samt að fyrir marga sé það stórt stökk að ætla að draga úr fata­kaupum, enda höfum við mörg verið svo­lítið kræf í því að kaupa okkur ný föt án þess að þurfa þau. Það er um að gera að taka lítil skref í þessu, til dæmis að setja sér mark­mið um engin ný föt í ein­hvern ákveð­inn tíma, sem hver og einn telur sig geta ráðið við. Svo má setja sér við­mið um hversu markar flíkur má kaupa á ákveðnu tíma­bili. Eða mark­mið um að kaupa notað frekar en nýtt.“

Ég held samt að fyrir marga sé það stórt stökk að ætla að draga úr fata­kaupum.

Hafdís er viss um að margt fólk sé í auknum mæli að velta fyrir sér hvernig sé hægt að draga almennt úr umhverf­is­fótspor­unum með breyttum venjum.

Þessi Stine Goya-kjóll er í upp­á­haldi hjá Hafdísi. Kjólinn keypti hún af konu í gegnum Facebook.

„Mér sýn­ist margir vera að velta fyrir sér hvernig best sé að vernda jörð­ina gegn mengun og drasli. Eins er fólk að velta fyrir sér hvaða val­kosti það hefur. Til dæmis hvort betra sé að kaupa end­ur­unnið polyester eða líf­rænt rækt­aða bóm­ull. Eða hvort venju­legt plast eða líf­plast sé skárra o.s.frv. Það sem við getum verið 100% viss um að skili ein­hverju er að ef við öll minnkum óþarfa neyslu og kaupum hrein­lega minna af öllu.“

Með­fylgj­andi eru nokkrir punktar sem Hafdís mælir með að fólk skoði hafi það áhuga á að draga úr fata­kaupum:

  1. Það er skemmti­legt að mæta á fata­skipti­mark­aði, til dæmis þann sem er hald­inn á staðnum Loft, sein­asta mið­viku­dag í hverjum mán­uði. Þar getur þú skipt föt­unum þínum út fyrir önnur.
  2. Á Facebook-síð­unni Zero Waste – Fata­skipti er hægt að býtta á fötum.
  3. Reyndu að laga föt í stað þess að henda þeim. Fyrsta sunnu­dag hvers mán­aðar er hald­inn við­gerð­ar­við­burður á vegum Reykja­vík Tool Library (fyrir föt og margt fleira). Þar býðst fólki að koma með föt og laga þau með aðstoð sjálf­boða­liða.
  4. Kynntu þér svo­kallað „capsule wardrobe“, sem snýst um það að hafa fáar, vand­aðar og hag­nýtar flíkur í fata­skápnum. Lesa nánar hér: Smár en knár fata­skápur.
  5. Stíliser­aðu fötin á ólíkan hátt og gerðu til­raunir með sam­setn­ingar til að minnka lík­urnar á að þú verðir leið á þeim fötum sem þú átt.
  6. Vertu opin/nn fyrir því að kaupa notuð föt, t.d. á nytja­mörk­uðum, á Bland.is og Facebook svo dæmi séu tekin. Þá má nefna Barna­lopp­una fyrir föt á börn.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum