Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sjálfsákvörðunarréttur kvenna eða óskoraður réttur til lífs

Eitt af umdeild­ari málum vor­þings er frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra um þung­un­ar­rof, eða fóst­ur­eyð­ingar eins og talað hefur verið um fram til þessa. Verði frum­varpið sam­þykkt yrði fóst­ur­eyð­ing­ar­lög­gjöfin á Íslandi ein af þeim frjáls­lynd­ustu í heim­inum. Af þeim umsögnum sem borist hafa þing­inu má greina tvö meg­in­þemu. Annars vegar eru þeir sem styðja frum­varpið og gera það í nafni kven­frelsis og hins vegar þeir sem eru á móti frum­varp­inu af sið­ferð­is­legum eða trú­ar­legum ástæðum.

Sjálfsákvörðunarréttur kvenna eða óskoraður réttur til lífs
|

Veiga­mestu og umdeild­ustu breyt­ing­arnar snúa að tíma­mörkum til fóst­ur­eyð­ingar. Samkvæmt núgild­andi lögum skal fóst­ur­eyð­ing aldrei fram­kvæmd eftir 16. viku með­göngu­tím­ans, nema að það séu ótví­ræði­legar lækn­is­fræði­legar ástæður fyrir hendi. Und­an­þága frá þessu eru ef miklar líkur eru á van­sköpun, erfða­göllum eða sköddun fóst­urs. Með nýja frum­varp­inu er lagt til að konu verði veitt fullt ákvörð­un­ar­vald um það hvort hún elur barn fram að lokum 22. viku þung­unar, óháð því hvaða aðstæður liggja að baki þeim vilja kon­unnar. Með öðrum orðum verður ákvörðun um fóst­ur­eyð­ingu alfarið ákvörðun barns­haf­andi konu fram að lokum 22. viku og þarf ekk­ert sam­þykki utan­að­kom­andi aðila til.

Tveir skólar

Það er til marks um hversu umdeilt málið er að það var gagn­rýnt þegar vel­ferð­ar­nefnd Alþingis óskaði eftir umsögnum um málið að leitað hafi verið til trúar- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga. Formaður nefnd­ar­innar, Halldóra Mogensen, var því mót­fallin þar sem hún telur slík félög ekki sem fag­að­ila en nokkrir nefnd­ar­menn fóru fram á að það yrði gert og var það nið­ur­staðan. Sé litið til þeirra umsagna sem borist hafa vel­ferð­ar­nefnd, sem nú eru orðnar á sjötta tug tals­ins, kemur í ljós að umsagn­ar­að­ilar skipt­ast í tvo hópa.

Annars vegar eru það sér­fræð­ingar á heil­brigð­is­vís­inda­sviði og tals­menn kven­frelsis sem eru fylgj­andi frum­varp­inu. Segir í umsögnum þeirra að frum­varpið feli í sér gríð­ar­lega rétt­ar­bót fyrir konur, bæði hvað varðar tíma­mörkin og þá stað­reynd að ekki þurfi leyfi heil­brigð­is­starfs­manna til að gang­ast undir aðgerð­ina. Segir í einni umsögn­inni að um sé að ræða stærsta fram­fara­málið fyrir konur síðan feðra­or­lof var tekið upp.

Agnes bendir á að dæmi séu um að börn hafi fæðst eftir 22 vikna með­göngu, bragg­ast og lifað.

Hins vegar eru það svo trúar- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög sem leggj­ast gegn breyt­ing­unum, þótt mis­sterkt sé tekið til orða. Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, seg­ist til að mynda styðja þann hluta frum­varps­ins um að konur taki sjálfar „hina erf­iðu ákvörðun“ um fóst­ur­eyð­ingu. Hins vegar gerir biskup athuga­semd við tímara­mmann. Bendir hún á að dæmi séu um að börn hafi fæðst eftir 22 vikna með­göngu, bragg­ast og lifað. Hinar nýju til­lögur raski því jafn­vægi sem ríkt hafi um málið og veki upp grund­vall­ar­spurn­ingar um mann­helgi og fram­gang lífs. Aðrir trú­ar­hópar taka sterkar til orða og sumir þeirra leggj­ast alfarið gegn fóst­ur­eyð­ingum. Öryrkja­banda­lag Íslands gagn­rýnir tímara­mmann þó á öðrum for­sendum, það er að þau telja að með því að lengja tímara­mmann upp í 22 vikur sé verið að gefa fólki rými til að bregð­ast við komi upp frá­vik – til að mynda fötlun – í 20 vikna skoðun.

Lögin breyti ekki landslaginu

Í umsögn Félags íslenskra fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­lækna (FÍFK) kemur fram að líf­væn­leiki fóstra mið­ist við 22 vikur en í umsögn Land­læknis er hins vegar talað um 23 og hálfa viku. Hins vegar eru dæmi um fyr­ir­bura sem hafa fæðst fyrir þann tíma og lifað og fædd­ist yngsti fyr­ir­bur­inn eftir 21 viku og 4 daga. Þótt frum­varpið verði að lögum er ljóst að hvorki lög­gjaf­inn né heil­brigð­is­yf­ir­völd búast við að fóst­ur­eyð­ingum komi til með að fjölga. Þannig bendir FÍFK á að 94,4% fóst­ur­eyð­inga á Íslandi fari fram fyrir 12 vikur, en 4,1% á tímbil­inu 13-16 vikur. Á síð­ar­nefnda tíma­bil­inu voru flestar aðgerð­irnar í kjöl­far skimunar. Áfram er búist við að langstærsti hluti fóst­ur­eyð­inga muni eftir sem áður fara fram í upp­hafi með­göngu verði frum­varpið að lögum. Er bæði litið til þró­un­ar­innar hér­lendis und­an­farin ár sem og reynsl­unnar frá öðrum löndum.

Fóstureyðing eða þungunarrof?

Í frum­varp­inu er jafn­framt lagt til að í stað fóst­ur­eyð­inga, eins og ferlið hefur verið kallað fram til þessa og not­ast er við í núgild­andi lögum, skuli talað um þung­un­ar­rof. Segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins að hug­takið fóst­ur­eyð­ing sé gild­is­hlaðið og sam­svar­andi orð sé ekki að finna í nágranna­löndum okkar. Ætlunin með þessu sé að færa áhersl­una yfir á kon­una en ekki fóstrið. Um þetta er einnig deilt, sam­an­ber umsögn bisk­ups þar sem segir að orðið þung­un­ar­rof vísi „á engan hátt til þess lífs sem sann­ar­lega er undir belti og er vísir að nýrri mann­veru“. Orðið þung­un­ar­rof sé þess vegna mis­vísandi.

Fleiri með leg en konur og stúlkur

Í öðrum umsögnum, svo sem frá Þóru Kristínu Þórs­dóttur sem titluð er for­ynja Kvenna­hreyf­ing­ar­innar og mann­rétt­inda­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar, eru gerðar athuga­semdir við að ein­göngu sé fjallað um rétt kvenna og stúlkna til þung­un­ar­rofs. Hins vegar sé ákveð­inn hópur fólks sem er með leg en kýs að skil­greina sig ekki sem konur. Það að ein­göngu sé fjallað um rétt­indi kvenna og stúlkna er því tak­mark­andi. Leggur Þóra Kristín til að í stað stúlkna og kvenna verði notuð hug­tök eins og mann­eskjur, fólk og ein­stak­lingar, svo lengi sem tekið er sér­stak­lega fram að rétt­ur­inn til þung­un­ar­rofs nái ekki til þess aðila sem sæðið fram­leiddi, það er föður. Einnig mætti nota nýyrði á borð við leg­bera eða barns­bera.

Ummæli þeirra sem eru fylgjandi

„Þetta frum­varp er stórt skref í að tryggja kyn­frelsi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt kvenna yfir eigin lík­ama. Víðtæk sam­fé­lags­sátt ríkir á Íslandi um nauð­syn þess að tryggja að konur geti rofið þungun að eigin ósk.“
Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands

„Það er skoðun land­læknis að ákvörðun um rof þung­unar svo seint á með­göngu sé gríð­ar­lega erfið og þung­bær ákvörðun sem kona taki ein­ungis að vand­lega athug­uðu máli og af illri nauð­syn. Mik­il­vægt er að skilja og virða að aðstæður kvenna geta verið marg­vís­legar og á stundum erf­ið­ari og flókn­ari en hægt er að gera sér í hug­ar­lund. Um þær aðstæður er eng­inn hæf­ari til að dæma og taka ákvörðun en konan sjálf.“
Land­lækn­is­emb­ættið

„Engar rann­sóknir benda til þess að konur iðrist þess til lengri tíma að binda endi á þungun. Þvert á móti lýsa konur, í okkar rann­sókn á Íslandi og í sam­bæri­legum rann­sóknum erlendis, létti og full­vissu um að hafa tekið rétta ákvörðun.“
Silja Bára Ómars­dóttir og Steinunn Rögn­valds­dóttir

„Frum­varpið er mik­il­vægt skref til að tryggja öllum konum rétt yfir lík­ama sínum enda er sá réttur grund­vall­ar­mann­rétt­indi og núgild­andi lög tryggja hann. Rétt­ur­inn yfir eigin lík­ama er ekki síst mik­il­vægt þeim konum sem höllum fæti standa í sam­fé­lag­inu, eiga við vímu­efna- og/eða geð­rænan vanda að etja …“
Rótin, félag um mál­efni kvenna

„Sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur kvenna er grund­vall­ar­mann­rétt­indi og því rök­rétt breyt­ing að þess sé ekki kraf­ist, skv. frum­varp­inu, að utan­að­kom­andi aðilar þurfi að sam­þykkja þung­un­ar­rof.“
Mann­rétt­inda­skrif­stofa Reykja­vík­ur­borgar

Ummæli þeirra sem eru andvíg

„Er ekki kom­inn tími tími til að stöðva þennan heims­far­aldur sem hefur á síð­ustu 20 árum eytt um það bil jafn­mörgum á Íslandi og þeim sem búa á Akureyri og nær­sveitum?“
David B. Tencer, biskup kaþ­ólsku kirkj­unnar

„Ég legg til að heiti frum­varps­ins og inn­tak taki veru­legum breyt­ingum og verði þannig: Frumvarp til laga um algjört bann við drápum barna í móð­ur­kviði.“
Guð­mundur Ragn­ars­son, for­stöðu­maður Sam­fé­lags trú­aðra

„Rétt­inda­bar­átta kvenna heldur áfram og vil ég taka þátt í henni og leggja henni lið, enn eigum við konur langt í land. Ég efast stór­lega um að þetta frum­varp hafi eitt­hvert vægi í þeirri bar­áttu.“
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands

„Ef þetta frum­varp um fóst­ur­eyð­ingar verður að lögum, sem ég ætla að vona að ekki verði, þá er verið að lög­leiða morð.“
Hvíta­sunnu­kirkjan í Keflavík

„Þær til­lögur að rýmka heim­ildir til þung­un­ar­rofs fram yfir 20 vikna fóst­ur­skimun eru aug­ljós­lega ætl­aðar til þess að hægt sé að bregð­ast við þeim frá­vikum sem þar kynnu að grein­ast og eru aðför að rétti fatl­aðs fólks til lífs.“
Öryrkja­banda­lag Íslands

„Ef móð­irin er ekki reiðu­búin að eiga barnið (sem er auð­vitað hennar eign þótt ófætt sé) fær hún blessun heil­brigð­is­yf­ir­valda til að ýta á Ctrl+Alt+Del, og skor­ast þannig snyrti­lega undan því stór­kost­lega hlut­verki sem bíður hennar. Mér þykir reyndar hálf­kald­hæðn­is­legt að yfir­völd sem kenna sig við heil­brigði skuli deyða líf, í stað þess að gera allt sem á þeirra valdi stendur til að varð­veita heil­brigði þess.“
Ívar Hall­dórs­son

Lög í öðrum löndum

Danmörk

Fram að 12. viku án skýr­inga. Eftir það þarf til sér­stök félags­leg og lækn­is­fræði­leg skil­yrði og er leyfi háð sam­þykki úrskurð­ar­nefndar.

Noregur

Fram að 12. viku án skýr­inga. Eftir það þarf til félags­leg og lækn­is­fræði­leg skil­yrði og er leyfi háð sam­þykki úrskurð­ar­nefndar. Óheimilt eftir 18. viku nema veiga­miklar ástæður eru fyrir hendi.

Svíþjóð

Fram að 18. viku án skýr­inga nema lækn­is­fræði­legar ástæður mæli gegn því. Eftir það þarf ríkar ástæður og leyfi heil­brigðis- og félags­mála­stofn­unar. Leyfi­legt á öllum stigum ef líf eða heilsa konu er í hættu.

Finnland

Einungis eftir lok 12. viku ef lífi og heilsu konu er stefnt í hættu. Heil­brigð­is­ráðu­neytið má, ef kona er ekki orðin 17 ára þegar hún verður þunguð, veita heim­ild til þung­un­ar­rofs fram að lokum 20. viku með­göngu og þegar sér­stakar aðstæður eru fyrir hendi. Þá er heim­ilt allt undir lok 24. viku að rjúfa þungun ef fóstur er haldið alvar­legum sjúk­dómi eða er lík­am­lega fatlað.

Bretland

Engin tíma­lengd er til­tekin en þung­un­ar­rof er refsi­laust þegar þungun er ekki komin lengra en 24 vikur og ákveðin lækn­is­fræði­leg og félags­leg skil­yrði eru upp­fyllt.

Holland

Heimilt fram að því tíma­marki þegar fóstur telst hafa náð líf­væn­legum þroska, eða fram að 24. viku. Skilyrði er sett um fimm daga umþótt­un­ar­tíma eftir að beiðni er lögð fram um þung­un­ar­rof.

Belgía

Heimilt að beiðni konu fram að 12. viku þung­unar. Eftir það ein­ung­ins ef þungun stofnar heilsu konu í hættu eða ef fóstur telst með mjög alvar­legan og ólækn­andi sjúk­dóm.

Frakkland

Fram að 12. viku þung­unar en eftir það ein­ungis ef heilsu konu er stefnt í hættu með áfram­hald­andi þungun eða ef fóstur telst haldið alvar­legum ólækn­andi sjúk­dómi.

Kanada

Engin tak­mark­andi lög­gjöf er í gildi um þung­un­ar­rof eftir að hæsti­réttur lands­ins úrskurð­aði að slík lög brytu í bága við stjórn­ar­skrá lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum