Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Fólk sem setur sér skýr markmið nær meiri árangri í lífinu“

Þær Erla Björns­dóttir og Þóra Hrund munu á mið­viku­dag­inn halda opinn fyr­ir­lestur um mark­miða­setn­ingu, tíma­stjórnun og jákvæða sál­fræði í Vinnu­stofu Kjarvals í Aust­ur­stræti 10.

„Fólk sem setur sér skýr markmið nær meiri árangri í lífinu“

„Þarna munum við að fara yfir mik­il­væg skref til þess að hámarka árangur í mark­miða­setn­ingu,“ segir Erla en hún og Þóra eru kon­urnar á bak við MUNUM dag­bæk­urnar.

Við fengum Erlu og Þóru til að gefa les­endum ráð­legg­ingar hvað varðar mark­miða­setn­ingu en þær mæla ein­dregið með að fólk setji sér mark­mið reglu­lega.

„Rann­sóknir hafa sýnt það að fólk sem setur sér skýr mark­mið nær meiri árangri í líf­inu. Þeir sem ná langt á sínu sviði eru sjaldn­ast komnir þangað fyrir ein­skæra til­viljun, oft­ast liggur þrot­laus vinna og mjög skýr mark­miða­setn­ing þar að baki. Ef við höfum skýr mark­mið þá erum við búin að marka okkur stefnu sem við vinnum eftir. Ef við höfum engin mark­mið er hætt við því að við vill­umst af leið og vitum ef til vill ekki hvert okkur langar að stefna,“ segir Erla. „Þess vegna er mik­il­vægt að fylgja ákveðnum skrefum í mark­miða­setn­ingu til þess að auka líkur á árangri.“

Gerðu „bucket“ lista

Áður en við byrjum að skrifa niður mark­mið okkar getur verið gott að  gefa sér góðan tíma til að hugsa um það hvað það er sem maður virki­lega vill gera í líf­inu, áfangar sem maður vill ná og hlutir sem manni langar að fram­kvæma. Til dæmis getur verið góð leið að byrja að skrifa svo­kall­aðan „bucket“ lista sem inni­heldur 100 atriði sem manni langar að upp­lifa og fram­kvæma yfir ævina. Í amstri dags­ins gefum við okkur sjaldan rými til þess að hugsa á þennan hátt og margir eru sífellt að fresta draumum sínum þar til hið full­komna augna­blik kemur, en svo bara kemur það ekki og þess vegna verðum við að búa það til. Þegar við erum komin með svona lista þá höfum við góðan leið­ar­vísi sem við getum síðan unnið áfram með og byrjað að for­gangs­raða og setja mark­miðin upp í rétt skref.

Sértæk og nákvæm mark­mið

Það fyrsta sem þarf að hafa í huga er að mark­mið séu sér­tæk og nákvæm. Til dæmis er mark­miðið: „ég ætla að sinna vinum mínum betur“ frekar óljóst mark­mið sem erfitt getur verið að árang­urs­mæla. Hins vegar ef við tökum mark­miðið lengra og gerum það mæl­an­legt og nákvæmt er mun auð­veld­ara að fylgja því eftir. Til dæmis mætti umorða þetta mark­mið og segja: „Ég ætla að sinna vinum mínum betur með því að hringja alla­vega einu sinni í viku í þá, hitta þá að minnsta kosti tvisvar sinnum í mán­uði og bjóða í mat fjórum sinnum á árinu“. Þarna erum við komin með mun skýr­ara mark­mið sem auð­veld­ara er að fylgja eftir.

Skrifaðu niður á blað

Þegar við skrifum niður mark­miðin okkar er lík­legra að við náum þeim. Þau verða raun­veru­legri fyrir okkur og það verður ein­hver mögnuð teng­ing sem á sér stað þegar við skrifum mark­mið, hugs­anir og drauma niður á blað. Það er ekki sama teng­ing sem á sér stað þegar við skrifum eitt­hvað inn í tölv­una. Það sem við hand­skrifum fest­ist betur í minni okkar.

Mik­il­vægt að búta mark­miðin niður

Ef þú setur þér stór mark­miðið getur verið gott að skipta því niður í nokkur minni mark­mið sem eru við­ráð­an­legri. Með þessu móti er lík­legra að þú gef­ist ekki upp. Ef þú villt hlaupa mara­þon næsta sumar getur mark­mið fyrir jan­ú­ar­mánuð til dæmis verið að ná að hlaupa 10 kíló­metra í febr­úar, svo 20 kíló­metra í mars og koll af kolli.

Líttu til baka og end­ur­skoð­aðu

Ein ástæða þess að mörg mark­mið renna í sand­inn er lík­lega sú að mark­miðin eru of víð­tæk og jafn­vel óraun­hæf. Einnig er lík­legt að hluti ástæð­unnar liggi í því að fólk er ekki að end­ur­skoða mark­miðin sín reglu­bundið og fylgj­ast með árangri. Mark­miðin eru gjarnan sett á ára­mótum en eru svo ekki skoðuð aftur fyrr en um næstu ára­mót. Við leggjum til að end­ur­skoða mark­miðin að minnsta kosti árs­fjórð­ungs­lega

Ekki gleyma að verðlauna þig

Og það sem er mögu­lega það allra mik­il­væg­ast: að verð­launa sjálfan sig fyrir góðan árangur. Við eigum það flest til að vilja alltaf ná aðeins lengra, gera aðeins meira og gleymum þá að staldra við og klappa okkur á bakið og njóta þess árang­urs sem við höfum náð. Það getur verið snið­ugt að ákveða fyr­ir­fram hvernig við ætlum að verð­launa okkur þegar við náum mark­miði. Slík gul­rót getur verið hvetj­andi í ferða­lag­inu sjálfu.

Mynd / Anni Viskus 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum