Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Vilja sýna fólki hvað það er skemmtilegt að elda vegan-mat

Græn­ker­inn Þórdís Ólöf Sig­ur­jóns­dóttir deilir hér nokkur upp­skriftum að dásam­legum vegan-réttum.

Vilja sýna fólki hvað það er skemmtilegt að elda vegan-mat
|||

Þórdís heldur úti vef­síð­unni gra­en­kerar.is þar sem hún deilir með les­endum dásemdar vegan-upp­skriftum sem ljós­mynd­ar­inn og kær­asti hennar, Aron Gauti Sigurðar, myndar af mik­illi snilld.

Þau gerð­ust bæði vegan fyrir þremur árum eftir að hafa horft á heim­ilda­mynd­ina Cowspiracy og hafa aldrei litið til baka. „Við teljum að vegan-matar­æði sé besta og jafn­framt ein­faldasta leiðin til að stuðla að betri heimi fyrir okkur, dýrin og jörð­ina. Eftir að við breyttum um matar­æði tók við tíma­bil þar sem við áttum í smávand­ræðum með hvað við gætum borðað. Það tíma­bil stóð sem betur fer stutt yfir og við tók heill heimur af upp­skriftum, mat og fróð­leik sem kemur okkur enn á óvart. Okkur finnst plöntu­miðað fæði frá­bært í alla staði, hvort sem horft er til bragð­laukanna eða til heilsu, umhverfis og dýra.“

Með vef­síð­unni vilja þau sýna fólki hvað það er auð­velt og skemmti­legt að elda vegan-mat og að græn­kerar geti vel verið sæl­kerar.

Hvar lærðir þú að elda?

Þegar ég var 10 ára fékk ég það verk­efni að elda kvöld­mat einu sinni í viku. Ég eld­aði ein­falda heim­il­is­rétti til að byrja með og fékk hjálp frá for­eldrum mínum eftir þörfum. Þetta gaf mér gríð­ar­legt sjálfs­traust í eld­hús­inu og fljót­lega var ég byrjuð að biðja um að fá að elda oftar og prófa mig áfram með nýja rétti.

Hver er fyrsti rétt­ur­inn sem þú lærðir að búa til?

Ég hugsa að fyrsti rétt­ur­inn hafi verið grjóna­grautur. Það var upp­á­halds­mat­ur­inn minn og í raun er mjög ein­falt að elda hann, svo lengi sem maður fylgist vel með og hrærir reglu­lega í grautnum.

Höfðar ein­hver mat­reiðslu­hefð sér­stak­lega til þín?

Ég er mjög heilluð af allri heilsu­sam­legri mat­ar­gerð sem er laus við dýra­af­urðir. Einnig höfðar hrá­fæði sér­stak­lega til mín. Ég hef ekki enn prófað að borða ein­göngu hrá­fæði en mun ábyggi­lega gera það ein­hvern tím­ann. Þangað til reyni ég að inn­lima hrá­fæð­is­rétti í matar­æðið mitt eftir bestu getu.

Verstu mis­tök sem þú hefur gert í eld­hús­inu?

Einu sinni var ég að útbúa sæt­kart­öflu­súpu og setti hana í bland­ara til að mauka. Það er víst ekki snið­ugt að setja heitan vökva í bland­ara því lokið þaut af og app­el­sínugult græn­met­is­mauk skvett­ist út um allt eld­húsið og upp í loft. Ég held að það megi enn finna leifar af þessu slysi, ef vel er gáð.

Hver er upp­á­halds­mat­reiðslu­bókin þín?

Mér þykir alltaf vænt um gömlu, snjáðu möpp­una hennar mömmu þar sem hún hefur safnað saman öllum sínum upp­á­halds­upp­skriftum frá vinum og ætt­ingjum. Ég kíki enn í þessa möppu til að fá hug­myndir og vegan-væði jafn­vel rétti sem þar er að finna.

„Það var nokkuð stór áskorun að ger­ast vegan, sér­stak­lega þar sem ég varð vegan á einu kvöldi og þurfti skyndi­lega að end­ur­hugsa alla mína matseld.“

Hver er stærsta áskorun sem þú hefur mætt í elda­mennsku?

Það var nokkuð stór áskorun að ger­ast vegan, sér­stak­lega þar sem ég varð vegan á einu kvöldi og þurfti skyndi­lega að end­ur­hugsa alla mína matseld. Þessi áskorun var þó, eftir á að hyggja, tals­vert minni en ég hafði búist við og á skömmum tíma var ég búin að gjör­breyta um lífs­stíl án þess að sakna neins.

Önnur áskorun sem ég mætti í elda­mennsku var sú að byrja að skrifa niður upp­skrift­irnar mínar. Ég lærði aldrei að elda eftir upp­skriftum heldur lagði meiri áherslu á að prófa mig áfram og að smakka mat­inn til. Það var því mikil breyt­ing að opna upp­skrifta­síð­una og þurfa skyndi­lega að mæla hrá­efni og skrá niður.

Kasjúhnetupiparostur

Mynd / Hallur Karlsson

1,5 dl kasjú­hnetur
2 dl syk­ur­laus plöntu­mjólk, t.d. soja­mjólk
1/2 tsk. agar-agar
1,5 msk. sítrónu­safi
1/2 hvít­lauks­rif
1/2 dl kókos­olía
1/4 tsk. salt
1/2 tsk. hlynsíróp
1 msk. nær­ing­ar­ger
svartur pipar eftir smekk

Leggið kasjú­hnetur í bleyti í 3 klst. eða yfir nótt. Þessu má þó sleppa ef not­aður er öfl­ugur bland­ari.

Setjið plöntu­mjólk og agar-agar í pott og hitið að suðu. Setjið öll hrá­efnin í bland­ara og blandið þar til silki­mjúkt. Smakkið til og bætið við sítrónusafa, salti og svörtum pipar eftir smekk.

Setjið blönd­una loks í sílíkon­mót eða lítið smellu­form og geymið í kæli þar til ost­ur­inn hefur stífnað.  Eftir að ost­ur­inn stífnar er fal­legt að þekja hann með muldum, svörtum pipar.

Chili-sulta Jennýar

5 stk. chili-pipar
1 rauð paprika
2 app­el­sínugular paprikur
50 ml epla­edik
100 g hrá­sykur
1/2 tsk. agar-agar

Fræ­hreinsið paprik­urnar en ekki hreinsa fræin úr chili-ávöxt­unum. Setjið öll hrá­efnin í mat­vinnslu­vél og blandið þar til þau hafa maukast vel.

Setjið blönd­una í pott og sjóðið í 10 mín. Hellið loks sult­unni í hreinar krukkur.

Pítsa með ind­versku ívafi
2 pít­su­botnar

Mynd / Hallur Karlsson

pít­su­deig, keypt eða heima­gert
1 krukka grænt vegan-pestó (t.d. frá Himneskt)
1 eggaldin
1/2 askja sveppir
1/2 rauð­laukur
1 dolla Oatly på Mackan-rjóma­ostur
1 dós kjúklinga­baunir
1/2 msk. garam masala
1 tsk. hlynsíróp
salt og pipar

Kveikið á ofn­inum og stillið á 180°C. Skerið eggaldin í þunnar sneiðar og steikið á pönnu upp úr olíu. Kryddið sneið­arnar með salti og pipar og snúið þeim við svo þær brún­ist á báðum hliðum.

Hellið vatn­inu af kjúklinga­baun­unum og skolið þær. Steikið kjúklinga­baun­irnar á pönnu upp úr olíu ásamt garam masala og hlynsírópi. Bætið við salti og pipar eftir smekk. Fletjið út pít­su­deig og myndið tvo botna.

Smyrjið botn­ana með grænu pestói. Raðið eggald­in­sneið­unum ofan á botn­ana ásamt skornum sveppum og rauð­lauk. Setjið stórar klípur af Oatly-rjóma­ost­inum ofan á og dreifið loks kjúklinga­baun­unum yfir.

Bakið pít­s­urnar í 10-15 mín., eða þar til botn­inn hefur bak­ast og ost­ur­inn brúnast.

Súkkulaðihrákaka

Mynd / Hallur Karlsson

8 stk. Medjool-döðlur (um 2 dl)
2 dl kókos­flögur
2 dl möndlur
2 msk. kakó­duft
1 tsk. vanillu­dropar

Setjið kókos­flögur og möndlur í mat­vinnslu­vél og blandið þar til úr verður gróf­gerð mylsna. Hreinsið stein­ana úr döðl­unum og setjið þær út í mat­vinnslu­vél­ina ásamt hinum hrá­efn­unum.

Blandið þar til hægt er að klípa saman deigið. Klæðið botn­inn á 22 cm smellu­formi með smjör­pappír og þrýstið deig­inu í botn­inn. Geymið í kæli á meðan fyll­ingin er útbúin.

Fylling

2 lítil avókadó
1 ban­ani
1 dl möndlu­smjör
2 dl kókos­mjólk í dós, þykki hlut­inn
2 dl bragð- og lykt­ar­laus kókos­olía
1 msk. kakósmjör (má nota kókosolíu í stað­inn)
1 dl hlynsíróp
4 msk. kakó­duft
1 tsk. vanillu­dropar
salt eftir smekk

Bræðið kókosol­í­una og kakósmjörið á lágum hita. Setjið öll hrá­efnin í blender og blandið þar til silki­mjúkt. Hellið fyll­ing­unni yfir botn­inn og geymið í frysti þar til kakan er frosin.

Losið kök­una úr smellu­form­inu og færið hana yfir á köku­disk. Best er að láta kök­una þiðna í ísskáp og bera hana fram kalda ásamt ferskum berjum og vegan-rjóma.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni