Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Fágæt en afar spennandi vín fyrir lengra komna

Loire-dal­ur­inn í Frakk­landi (eða Leir­ár­dalur, eins og við höfum þýtt á íslensku, sem er ein­stak­lega við­eig­andi miðað við leir­bakk­ana sem ein­kenna ána) liggur þvert um Mið-Frakk­land, frá eld­fjalla­garð­inum Massif Central að Atl­ants­hafi fyrir sunnan Bretaníu-skag­ann. Sagt er að Loire-dal­ur­inn sé „garður Frakk­lands“ svo milt er lofts­lagið, enda sér­stak­lega eft­ir­sótt hérað af mörgum kon­ungum Frakk­lands sem byggðu þar glæsi­legar hallir þar sem garð­listin náði nýjum hæðum.

Fágæt en afar spennandi vín fyrir lengra komna

Loire-dal­ur­inn býður einnig bestu skil­yrðin fyrir vín­rækt, ann­ars vegar vegna lofts­lags, sem er temprað, og hins vegar vegna jarð­vegs og berg­myndana, sem eru afar fjöl­breyttar frá upp­sprettu Loire til hafs­ins. Efst í dalnum eru vínin Sancerre og Pouilly Fumé fram­leidd úr sauvignon blanc- og pinot noir-þrúgum. Síðan taka við mörg und­ir­héruð sem eru lítt þekkt hér heima: Touraine, Vouvray, Chinon, Bourgueil, Saumur, Saumur Champigny og Anjou, þar sem chenin, cabernet franc og gamay skipt­ast á milli staða, og næst ósnum eru Muscadet-hvítvínin. Fjöl­breytnin er mikil og fyrir stuttu var boðið upp á smökkun hér á landi, á vínum frá tveimur af þessum hér­uðum, Chinon og Pouilly Fuissé.

Loire-dal­ur­inn býður einnig bestu skil­yrðin fyrir vín­rækt.

Í Chinon-vínin eru ein­ungis not­aðar tvær þrúgur, cabernet franc fyrir rauð­vín og chenin fyrir hvítvín. Jarð­veg­ur­inn er að mestu kalk­steinn og leir frá árfar­veg­inum og bestu vínin þarf að geyma því þau eru lengi að opna sig. Cabernet franc er ein­stak­lega elegant þrúga, með angan af fjólum og hind­berjum, en vínin geta verið tannísk og geym­ast lengi. Í Chinon, sem og í Saumur, eru klettar í kalk­berg­inu algengir og þar hefur mað­ur­inn grafið sér húsa­kynni, sum enn notuð, en flestir hellar eru í dag not­aðir sem „vín­kjall­arar“, þrátt fyrir að „rigni“ nokkuð oft inni. Chinon-vínin verður að fram­reiða við hita­stig nær 16°C en 20°C til að njóta sem best: fágun þrúg­unnar og hin við­kvæmu og rok­gjörnu ilm­efni koma þá best fram.

Ofar í dalnum, beint á móti Sancerre, er lítið hérað að nafni Pouilly Fumé, á hæð­unum við Loire sem snúa í vestur, en jarð­veg­ur­inn þar er allt annar. Hér finn­ast tinnu­steinar í öllum stærðum í leir frá ánni og kemur nafnið Pouilly Fumé („reyktur“) af þessum steinum. Sauvignon blanc er eina þrúgan í Pouilly Fumé og eru vínin stein­efna­rík, einmitt með keim af reyk, fín­gerð, skörp og lang­líf. Hér finn­ast lík­lega bestu sauvignon blanc-vínin í Frakk­landi.

Það er alveg þess virði að smakka Chinon-vín frá Couly-Dutheil, besta fram­leið­anda Chinon, og Pouilly Fumé-vín frá Château de Tracy.

Texti / Dominique Plédel Jónsson og Eymar Plédel Jónsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni