Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

„Á auðvelt með að halda mörgum boltum á lofti“

Guð­mundur Andri Hjálm­ars­son er heim­spek­ingur að mennt og starfar hjá Reikni­stofu bank­anna ásamt því að vera stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands. Honum er margt til lista lagt og hafði blaða­maður afspurn af því að hann smíð­aði fal­leg hús­göng í frí­stundum. Fyrir stuttu síðan flutti hann í Hlíð­arnar, í fal­lega íbúð sem hann hefur verið að nostra

„Á auðvelt með að halda mörgum boltum á lofti“
Guð­mundur Andri Hjálm­ars­son er heim­spek­ingur að mennt og starfar hjá Reikni­stofu bank­anna ásamt því að vera stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands. Honum er margt til lista lagt og hafði blaða­maður afspurn af því að hann smíð­aði fal­leg hús­göng í frí­stundum. Fyrir stuttu síðan flutti hann í Hlíð­arnar, í fal­lega íbúð sem hann hefur verið að nostra við með konu sinni Foldu Guð­laugs­dóttur en þau eiga tvo unga syni, þá Kára og Úlf.

Segðu okkur frá því hvernig áhug­inn kvikn­aði á hús­gagna­smíði?

„Síðan ég man eftir mér hef ég haft áhuga á vand­lega hönn­uðum og smíð­uðum hlutum. Þar sem heim­ili okkar allra eru öllu að jöfnu full af hús­gögnum fór ég því snemma að veita þeim athygli. Þegar sem barn var ég mjög vand­látur á hús­gögn í nán­asta umhverfi mínu. Mörgum árum seinna, þegar ég flutti aftur til Íslands að loknu námi, skráði ég mig í húsa­smíði í Tækni­skól­anum með vinnu, þar sem mig lang­aði til þess að læra gott hand­bragð svo ég gæti bjargað mér sóma­sam­lega heima fyrir – meira af fag­mennsku og minna af fúski. Námið í húsa­smíði byrjar á stórum áfanga, þar sem nem­endur fá nasa­þef af tré­smíði af ýmsum toga. Ég heill­að­ist þá þegar af hús­gagna­smíði, þar sem nákvæmnin og vand­virknin höfð­aði sterk­lega til skap­hafnar minnar. Eins og iðu­lega leiddi síðan eitt af öðru og nám í húsa­smíði varð fljótt að námi í hús­gagna­smíði.“

„Mig langar til þess að smíða mér kofa í garð­inn og mögu­lega smíða­að­stöðu.“

Nú hef­urðu verið að læra hús­gagna­smíði með­fram vinnu, get­urðu sagt okkur frá leið­unum sem þú fórst?

„Vinnu­tími minn er mjög sveigj­an­legur. Þær annir sem ég hef ekki haft of mikið að gera við barna­upp­eldi eða kennslu, þá hef ég skráð mig í einn og einn áfanga í senn í Tækni­skól­anum. Ég hef alltaf átt auð­velt og liðið ein­stak­lega vel með að halda mörgum boltum á lofti á sama tíma, þannig að það hefur reynst mér vel að hafa smíð­ina sem mót­vægi við vinnu.“

Guðmundi Andra er margt til lista lagt.

Hvað er erf­ið­ast við að smíða hús­gögn?

„Hús­gagna­smíði er þol­in­mæð­is­þraut sem krefst vand­virkni og nákvæmni. Það sem hefur oft reynst mér erf­ið­ast er að halda aftur af sjálfs­traustinu. Þegar maður fyllist sjálfs­trausti, þá á maður það til að gera hlut­ina án umhugs­unar og í flýti. Hús­gagna­smíði er við­fangs­efni sem maður verður stöðugt að nálg­ast af yfir­vegun og auð­mýkt ef vel á að vera.“

Hvaðan sæk­irðu þér inn­blástur?

„Því er auðsvarað, ég sæki mér ekki inn­blástur. Stundum rekur vissu­lega eitt­hvað á fjörur manns sem blæs manni nýjum hug­myndum í brjóst. En það hefur aldrei reynst mér vel að leita inn­blást­urs af neinu tagi. Hug­myndir — rétt eins og ham­ingjan hafa í gegnum tíð­ina fundið mig þegar ég er ekki sér­stak­lega að leita þeirra.

Mynd / Hallur Karlsson

Hvernig er ferlið frá hug­mynd að hús­gagni?

Það hefst venju­lega á vand­lega yfir­veg­uðum teikn­ingum, þar sem hús­gagnið er oft teiknað í 1:1 (raun­stærð) eða 1:2 (hálfri stærð). Þessi hluti smíð­innar tekur oft hlut­falls­lega lengstan tíma og krefst mestrar hugs­unar. Þegar teikn­ingin er full­búin áður en eig­in­leg smíði, með end­an­legan efni­við, hefst, þarf oft að gera ýmsar til­raunir með ódýr­ari og oft mýkri við, til þess að sann­reyna að hug­mynd­irnar séu fram­kvæm­an­legar og stundum til þess að átta sig almenni­lega á því hvernig þær séu fram­kvæm­an­legar. Þegar hug­mynd­irnar hafa verið stað­festar, þá loks­ins hefst eig­in­leg smíði hús­gagns­ins. Und­ar­lega, eins og það kann að hljóma, þá tekur sá hluti smíð­innar hlut­falls­lega stuttan tíma ef und­ir­bún­ing­ur­inn hefur verið vand­aður.“

Hvaða efni­við not­arðu helst, kaup­irðu efnið eða reyn­irðu að end­ur­nýta gam­alt efni?

„Ég hef smíðað tals­vert úr eik og hnotu, þar sem ég kann vel við efn­is­eig­in­leika þeirra og mér finnst við­ur­inn ein­stak­lega fal­legur. Ég hef einkum unnið með nýtt efni en ef ég get nýtt eitt­hvað notað, þá reyni ég það vissu­lega.“

Mynd / Hallur Karlsson

Erf­ið­asta verk­efni sem þú hefur unnið?

„Ég smíð­aði eitt sinn snú­inn tré­stiga svona eins og finna má í sumum gömlum timb­ur­húsum. Það var ein­stak­lega lær­dóms­ríkt verk­efni og krefj­andi á köflum.“

Hvað með aðstöðu, þarf ekki tól, tæki og gott rými?

„Góð aðstaða og almenni­legar vélar auð­velda vissu­lega alla smíði. Engu að síður má kom­ast mjög langt ein­ungis með hand­verk­færi og nægan tíma sem smiðir gerðu í árþús­und. Ég bý ekki svo vel að eiga stóra geymslu eða bíl­skúr, þannig ég hef ein­fald­lega notað mér aðstöð­una í Tækni­skól­anum, þær annir sem ég er þar í námi, en haldið mig við hand­verk­færi og minni verk­efni þess á milli.

Mynd / Hallur Karlsson

Hvað er næst á dag­skrá?

„Eins og stendur er ekk­ert í vinnslu hjá mér, þar sem ég er upp­tek­inn þessa dag­ana á öðrum víg­stöðvum. Mig langar til þess að smíða mér kofa í garð­inn og mögu­lega smíða­að­stöðu en hann er ekki enn kom­inn á teikni­borðið.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni