Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Beita byggingarreglugerðum og vísindaskáldskap

Hart er sótt að „rétt­inum til að velja“ í Banda­ríkj­unum en and­stæð­ingar með­göng­urofs eru þó ekki sam­mála um hvaða aðferðir séu væn­leg­astar til árang­urs. Repúblikanar í Ohio hafa lagt fram frum­varp sem bannar ekki bara fóst­ur­eyð­ingar heldur skyldar lækna til að fram­kvæma aðgerð sem er bæði lífs­hættu­leg og ómögu­leg.

Beita byggingarreglugerðum og vísindaskáldskap
Mynd/epa

And­stæð­ingar með­göng­urofs vest­an­hafs berj­ast nú með öllum ráðum fyrir því að fá úrræðið bannað sem víð­ast en þrátt fyrir harða bar­áttu síð­ustu ár er það enn lög­legt í öllum ríkjum Banda­ríkj­anna. Þó hefur tek­ist að þrengja veru­lega að aðgengi kvenna að með­göng­urofi með beinum og óbeinum hætti en æðsta mark­miðið er að fá Hæsta­rétt til að end­ur­skoða afstöðu sína frá því að dómur féll í máli Roe gegn Wade árið 1973. Þeir hópar sem hafa helgað sig stríð­inu gegn „frels­inu til að velja“ eygja nú mögu­leika á að ná þessu tak­marki, í kjöl­far þess að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti skip­aði Brett Kavan­augh dóm­ara við rétt­inn í stað Anthony Kennedy. Þeir eru þó ekki sam­mála um aðferðir; sumir telja væn­leg­ast að vinna stríðið með mörgum litlum skærum, á meðan aðrir hafa gripið til þunga­vopna og freistað þess að koma á alls­herj­ar­banni og hörðum við­ur­lögum.

Skær­urnar hafa meðal ann­ars falist í því að grafa undan þjón­ustu þeirra sem fram­kvæma með­göng­urof, með því til dæmis að breyta bygg­ing­ar­reglu­gerðum þannig að fjársveltar stof­urnar hafa engin ráð til að upp­fylla þær. Þá hefur lög­gjaf­inn í mörgum ríkjum freistað þess að tak­marka rétt­inn til með­göng­urofs niður í allt að sex vikur en á þeim tíma með­göng­unnar er allt eins víst að konan sé algjör­lega grun­laus um að hún sé þunguð. Nýlegt frum­varp í Ohio er dæmi um stór­tæk­ari aðgerðir en þar hafa 19 af 90 þing­mönnum neðri deildar rík­is­þings­ins lagt fram til­lögu þess efnis að frjóvgað egg verði skil­greint sem „ófætt barn“, að með­göng­urof verði gert ólög­legt og að þeir sem fram­kvæma eða gang­ast undir úrræðið verði sóttir til saka fyrir morð. Refs­ingin verði lífs­tíð­ar­fang­elsi og mögu­lega dauðrefs­ing.

Læknar krafðir um hið ómögulega

Þetta kann að virð­ast öfga­fullt en þó er ónefnt það ákvæði sem mesta athygli hefur vakið; að þegar um er að ræða utan­legs­fóstur sé læknum skylt að freista þess að „bjarga“ fóstr­inu með því að fjar­lægja það, í flestum til­vikum úr eggja­leið­ara kon­unnar, og koma því fyrir í leg­inu. Læknar hafa bent á að utan­legs­þungun sé ekki ein­ungis stór­hættu­leg konum, heldur sé sú aðgerð sem frum­varpið kveður á um hrein­lega ekki til í lækna­vís­ind­unum. „Ég trúi ekki að ég sé að skrifa þetta aftur en þetta er ómögu­legt,“ tísti fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­lækn­ir­inn David Hackney um hug­mynd­ina. „Við verðum öll send í fang­elsi.“ Ástæða þess að Hackney segir „aftur“ er að þetta er í annað sinn sem lög­gjaf­inn í Ohio ger­ist sekur um umræddan vís­inda­skáld­skap en fyrr á árinu freist­uðu and­stæð­ingar með­göng­urofs á þing­inu þess að greiða fyrir aðgerð­inni ómögu­legu með því að fella hana undir almanna­trygg­ingar.

„Það er kom­inn tími til að útrýma alfarið með­göng­urofi og við­ur­kenna að hver ein­stak­lingur eigi óskor­aðan rétt til lífs“

Samkvæmt New York Times er allt eins lík­legt að bar­áttan um rétt­inn til með­göng­urofs muni harðna á árinu 2020 en frum­vörp þar að lút­andi verða tekin til umræðu í Ohio, Suður-Karólínu, Tennessee, Nebraska og Idaho strax í byrjun árs. Í þessum ríkjum njóta repúblikanar þing­meiri­hluta. Þá má gera ráð fyrir að málið verði notað óspart í fjár­öflun fyrir for­seta­kosn­ing­arnar, sem fara fram í nóv­em­ber. „Tíminn til að ná böndum yfir hið illa með reglu­gerðum og mála­miðl­unum er lið­inn,“ er haft eftir Candice Keller, þing­manni í Ohio. „Það er kom­inn tími til að útrýma alfarið með­göng­urofi og við­ur­kenna að hver ein­stak­lingur eigi óskor­aðan rétt til lífs.“ James Bopp, lög­maður National Right to Life, vill hins vegar taka slag­inn í skrefum. Hann sagði ofstæk­is­fullar lög­gjaf­artil­raunir hafa gert and­stæð­inga með­göng­urofs að fíflum og að þær væru ekki lík­legar til þess að rata til Hæsta­réttar og ná til­ætl­uðu mark­miði.

Ítarlega er fjallað um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco