Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Gott þegar hægt er að fá krakka til að hugsa um dýpri hluti“

Árni Árnason venti kvæði sínu í kross, seldi fyr­ir­tæki sitt og lét gamlan draum ræt­ast um að gefa út bók. Barna­bókin Frið­bergur for­seti, varð að veru­leika með dyggri aðstoð Helenu dóttur Árna og hefur bókin um for­set­ann slegið ræki­lega í gegn.

„Gott þegar hægt er að fá krakka til að hugsa um dýpri hluti“
|Alda Rose Cartwright

„Ég er búinn að vera í mark­aðs­geir­anum í 20 ár og seldi fyrr á árinu aug­lýs­inga­stof­una sem ég hef átt í átta ár, Árna­synir,“ segir Árni eld­hress þegar blaða­maður hringir. „Ég fór síðan að elt­ast við gamlan draum um að skrifa. Ég hef unnið mikið með texta í gegnum árin en löng­unin var að taka skrift­irnar á nýjan stað.“

Barnabók varð fyrir val­inu sem fyrsta bók, þar sem Árna lang­aði að skrifa bók fyrir og með Helenu, níu ára dóttur sinni, en bækur og lestur eru sam­eig­in­legt áhuga­mál feðgin­anna.

„Við lesum mikið saman og ég hef mikla trú á lestri og bókum sem upp­eld­is­tæki til að þroska hug­ann og gagn­rýna hugsun. Mig lang­aði að skrifa barna­bók á meðan Helena væri enn á þeim aldri að njóta. Mér finnst líka aldrei nóg af bókum fyrir börn og sér­stak­lega um hluti sem skipta máli.“

En finnst honum að barna­bækur eigi að hafa boð­skap?

„Það má bara vera gaman að sjálf­sögðu. En mér finnst gott þegar hægt er að fá krakka til að hugsa um dýpri hluti, af því þeir eru oft að pæla í ein­hverju. Ég frá­bið mér samt allar predik­anir í bók­inni.“

Frið­bergur for­seti fjallar um krakka sem rísa upp þegar rétt­læt­is­kennd þeirra er mis­boðið. „Og gegn for­set­anum Frið­bergi, sem hefur tekið sér hálf­gert ein­ræð­is­vald og þau finna í hjarta sínu að hlutir eru að ger­ast sem ættu ekki að eiga sér stað. Síðan fara krakkar að hverfa og fleiri hlutir ger­ast.“

Hugmyndin varð til í heita pottinum

Feðginin fara í sund dag­lega og í spjalli í pott­inum kom upp hug­myndin að bók­inni. „Helena lét mér í té sögu­per­són­urnar og gaf þeim nöfn. Saman þró­uðum við grunn­þráð­inn í sög­unni og ég tók hann svo og vann áfram,“ segir Árni.

„Per­són­urnar eru í raun­inni per­sónur sem hún vildi heyra sögur um. Eru ekki allar per­sónur byggðar á ein­hverjum; bæði úr mínu, þínu og okkar allra lífi? Þetta eru per­sónur sem hún þekkir og við þekkjum saman. Ég er viss um að ég er þarna ein­hvers staðar,“ svarar Árni aðspurður um hvort Helena hafi byggt per­són­urnar á ein­hverjum sem hún þekkir.

Frið­bergur for­seti fjallar um krakka sem rísa upp þegar rétt­læt­is­kennd þeirra er mis­boðið.

En hvað finnst feðgin­unum um okkar for­seta, Guðna Th. og er hann búinn að fá ein­tak af bók­inni? „Við höfum ekki náð að gera það en fáum von­andi tæki­færi til þess. Okkur finnst hann nátt­úr­lega bara frá­bær og hann er for­seti sem við getum verið montin og stolt af,“ segir Árni. „Sagan ger­ist í náinni fram­tíð og það má segja að Frið­bergur gæti tekið við af Guðna ef við pössum okkur ekki á hvert við erum að fara. Það eru nokkrir sam­tíma pop­u­listar sem  má finna í Frið­bergi.“

Bókin hefur farið vel af stað og fór í efsta sæti á sölu­lista barna­bóka í útgáfu­viku. „Bókin hefur fengið góðar við­tökur og það er gaman að sjá að bæði börn og full­orðnir taka bók­inni vel. Bókin er fyrir ald­ur­inn 8-12 ára og hún hentar vel fyrir börn og for­eldra til að lesa saman. Það er margt í henni sem for­eldrar geta líka haft gaman af,“ segir Árni. „Það er fram­hald á teikni­borð­inu alveg klár­lega, sem kemur von­andi á næsta ári. Ég er einnig með fleiri hug­myndir.“

Árni hefur farið með bók­ina í skóla og lesið fyrir nem­endur og seg­ist til­bú­inn til að vera með upp­lestur ef áhugi er fyrir því. „Það er ofsa­lega skemmti­legt og gaman að hitta vænt­an­lega les­endur. Mjög gef­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum