Helle Mardahl er fjölhæfur listamaður og hönnuður frá Danmörku. Verk hennar einkennast af einstökum formum og litum og hefur hún sótt innblástur víða; í sælgæti, steina og kirsuber svo eitthvað sé nefnt.
Hún hefur meðal annars unnið með hönnuðum og fyrirtækjum á borð við Muuto og Stine Goya.
Geysir Heima hefur nú tekið í sölu vörur eftir Helle. Hver hönnunarvara hefur sína einstöku lögun og persónuleika – ófullkomin fegurð bundin í fagurfræðilegri næmni og heiðarlegu handverki sem vekja öll skilningarvit.
View this post on Instagram
A post shared by GEYSIR HEIMA (@geysir_heima) on Oct 8, 2019 at 8:14am PDT































Athugasemdir