Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Magnað hvað maður hefur lært mikið bara á þessum þremur árum“

Hljóm­sveitin Between Mountains var að senda frá sér sína fyrstu breið­skífu sem kall­ast ein­fald­lega Between Mountains. Sveitin sigr­aði Mús­íktil­raunir 2017 en hún var stofnuð af Kötlu Vigdísi Vern­harðs­dóttur og Ásrósu Helgu Guð­munds­dóttur sem voru aðeins 16 ára á þeim tíma. Nú fer Katla Vigdís fyrir sveit­inni og semur sjálf öll lög og texta á plöt­unni. Albumm hitti á Kötlu og byrj­aði að grennsl­ast fyrir um sam­starf þeirra vin­kvenna og þátt­töku þeirra í Músiktil­raunum.

„Magnað hvað maður hefur lært mikið bara á þessum þremur árum“
pól­land

„Ég hafði síðan haustið 2016 verið að semja lög og texta og lang­aði að taka þátt í Mús­íktil­raunum. Eldri bræður mínir höfðu gert það tveimur árum áður og sigrað með hljóm­sveit sinni Ryt­hmatik og með hlið­sjón af því vissi ég hvers konar stökk­pallur Mús­íktil­raunir getur verið. Þess vegna fékk ég Ásrósu í lið með mér. Við kynnt­umst í blaki á Ísafirði, höfðum þekkst í svona tvö ár, að mig minnir, og ég vissi að hún hafði áhuga á að syngja og væri að læra söng. Ég fékk hana því til að taka þátt í keppn­inni með mér,“ útskýrir Katla, en vin­kon­urnar sem koma báðar frá Vest­fjörðum, höfðu aðeins æft í um það bil mánuð áður en þær tóku þátt í Músiktil­raunum og sigr­uðu.

Hvernig var að vinna Mús­íktil­raunir svona ungar? „Fyrst var það svo­lítið skrýtið,“ játar hún. „Auðvitað var samt gaman að vera eitt­hvað að „gigga“ í grunn­skóla og það er fyndið að hugsa um það eftir á. Ég er nátt­úr­lega enn ung þannig að ég á eflaust eftir að læra margt en það er magnað hvað maður hefur lært mikið bara á þessum þremur árum,“ tekur hún fram og segir það hjálpa að hafa byrjað í tón­list­inni svona snemma, kynnst fólki í brans­anum og öðl­ast reynslu af því að spila og koma fram. „Síðan er magnað að vera búin að gefa út plötu. Núna veit ég aðeins hvernig hlut­irnir virka, en ég var svo­lítið að þreifa mig áfram í myrkr­inu við gerð þess­arar plötu.“

Mynd / Ása Dýra­dóttir

Gaman að fletta upp í gömlum minningum

Between Mountains kom út fyrir viku og segir Katla að það hafi verið ansi skemmti­legt að gera plöt­una en tíma­frekt líka. „Ég held að það sé nokkuð algengt, svona með fyrstu plötur,“ segir hún og nefnir sem dæmi að fyrsta lagið, Into the Dark, hafi verið tekið upp haustið 2017, ef hún man rétt, og gefið út í árs­byrjun 2018. „Eftir það leið smá­tími þangað til við fórum aftur að taka upp,“ útskýrir hún. Upp­haf­lega hafi staðið til að gera EP-plötu, eins og tíðk­ist mikið í dag, en eftir að plötu­fyr­ir­tækið fékk að heyra lögin hafi verið ákveðið að ráð­ast í gerð plötu í fullri lengd. „Þrjú lög á plöt­unni voru því svo­lítið samin í hvelli,“ segir hún, „en ég átti til eitt lag.“

„Auðvitað var samt gaman að vera eitt­hvað að „gigga“ í grunn­skóla og það er fyndið að hugsa um það eftir á.“

Spurð út í umfjöll­un­ar­efni plöt­unnar segir Katla að yfir­leitt sé saga á bak við hvert lag. Vegna þess hversu langur tími leið á milli þess sem sum lögin voru samin sé þó ekki hægt að segja að platan fjalli um eitt­hvað eitt til­tekið mál­efni. „Ég er á þeim aldri að ég hef breyst og þroskast mikið á þessum tíma sem hún var gerð. En það er svo­lítið gaman að pæla í gömlum textum því þeir sýna hvar maður var staddur and­lega þegar þeir voru samdir. Þeir geta virkað eins og nokk­urs konar mynda­albúm. Maður getur skemmt sér við að fletta upp gömlum minn­ingum í texta­formi,“ lýsir hún og bætir við að nú hlakki hún mikið til að fara aftur í stúdíó og gera meira efni.

Katla er í ítar­legra við­tali á albumm.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu