Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ernu Ýr leið eins og hún væri stödd í sjónvarpssal á trúarlegri stöð

Ernu Ýr leið eins og hún væri stödd í sjónvarpssal á trúarlegri stöð
Erna Kristín

Frammi­staða blaða­kon­unnar Ernu Ýrar Öldu­dóttur á borg­ara­fundi um lofts­lags­mál sem sýndur var á RÚV á þriðju­dag­inn hefur vakið mikil athygli.

Erna Ýr var ein þeirra sem tók þátt í pall­borði til að ræða lofts­lags­mál. Aðrir sem tóku þátt voru m.a. rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason, jarð­fræð­ing­ur­inn Sævar Helgi Bragason og veð­ur­fræð­ing­ur­inn Elín Björk Jón­as­dóttir.

Erna Ýr birti pistil um fund­inn í gær undir yfir­skrift­inni Hrút­skýr­ingar, trú­ar­hiti og kenni­valds­hroki á borg­ara­fundi Kast­ljóss.

Í pistli sínum greinir Erna frá því að hún hafi frá upp­hafi efast um að sam­koman yrði „hlut­laus“.

„En ég lét mig þó hafa það og ákvað að mæta til opin­berrar aftöku, með hrút­skýr­ingum og kenni­valds­hroka í beinni útsend­ingu á rík­is­fjöl­miðl­inum. Þar sem að bæði þátta­stjórn­endur, þau Jóhanna Vigdís Hjalta­dóttir og Einar Þor­steins­son létu það óátalið að ég og hinn efa­semd­ar­mað­ur­inn, Magnús Jónsson, veð­ur­fræð­ingur og f.v. veð­ur­stofu­stjóri, værum end­ur­tekið upp­nefnd „afneit­un­ar­sinnar“ í þætt­inum, ætla ég að kalla þá sem trúa á lofts­lags­vána „hina heit­trú­uðu“ fram­vegis,“ skrifar Erna Ýr sem er ein þeirra sem efast um að lofts­lags­breyt­ingar séu af manna­völdum.

Á fund­inum gerði Erna Ýr til­raun til að færa rök fyrir því að umræðan um lofts­lags­mál væri byggð á upp­lýs­ingum frá þeim sem hafa fjár­hags­legra hags­muna að gæta.

„Eitt af því sem ég tók eftir var að flestir hinna heit­trú­uðu var fólk sem hefur bein­línis hags­muni af því að vera stað­föst og boða trúna á lofts­lags­vána, en í því sam­hengi ætla ég að telja upp hverjir það voru. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverf­is­ráð­herra, með stóra drauma um skatt­pín­ingar, boð og bönn í þágu umhverf­is­mála. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri, sem þarf að koma borg­ar­búum í strætó og selja þeim hug­mynd­ina um borg­ar­línu. Andri Snær Magnason, rit­höf­undur, sem verður að selja bók um lofts­lags­vána fyrir jólin,“ skrifar Erna m.a. um nokkra þeirra sem tjáðu sig á fund­inum.

„…bæði vís­inda­menn og þátta­stjórn­endur töl­uðu um hina ósönn­uðu til­gátu vís­ind­anna um hlýnun lofts­lags­ins af manna­völdum sem stað­reyndir.“

Erna segir þá frá því að henni hafi liðið eins og hún væri stödd í sjón­varps­sal á trú­ar­legri stöð. „Meðal ann­ars vegna þess hvernig bæði vís­inda­menn og þátta­stjórn­endur töl­uðu um hina ósönn­uðu til­gátu vís­ind­anna um hlýnun lofts­lags­ins af manna­völdum sem stað­reyndir. Slíkur var trú­ar­hiti þátta­stjórn­enda, vís­inda­manna og vel upp­lýsta fólks­ins í pan­elnum.“

Svo tínir hún saman ummæli sem hún kallar „brot af því besta úr þætt­inum.“

Pistil Ernu má lesa í heild sinni á vef Viljans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum