Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þjóðsagnaverur kvikna til lífsins í nýrri íslenskri teiknimynd

Kvik­mynda­gerð­ar­konan Þórey Mjall­hvít Ómars­dóttir vinnur að nýrri teikni­mynd og teikni­mynda­seríu sem sækja í íslenskan þjóð­sagna­arf.

Þjóðsagnaverur kvikna til lífsins í nýrri íslenskri teiknimynd
Þórey Mjall­hvít Ómars­dóttir byggir hug­mynd­ina á barna­bók­inni Orm­hild­ar­sögu sem hún skrif­aði sjálf og mynd­skreytti.|Kynn­ing­arplakat vænt­an­legrar teikni­myndar.

„Ég er mjög spennt. Mér líður eins og sprett­hlaupara í start­hol­unum. Farin að búa til gát­lista í hug­anum yfir allt sem þarf að gera, enda í mörg horn að líta. Já, bara rosa­lega spennt og til­búin í slag­inn,“ segir kvik­mynda­gerð­ar­konan Þórey Mjall­hvít Ómars­dóttir sem er leið­inni til höf­uð­borgar Póllands, Gdansk, að funda með fram­leiðslu­fyr­ir­tæki sem mun koma að gerð nýrrar teikni­myndar og seríu sem Þórey er með í vinnslu.
„Í stuttu máli erum við að hefja fram­leiðslu á stuttri teikni­mynd sem ég mun leik­stýra og kall­ast Allar verur jarðar,“ útskýrir hún. „Pólskir teikn­arar og hönn­uðir munu koma að henni en per­sónu­hönnun og fleira, hljóð­vinnsla, klipp­ing og tal­setn­ing verður í höndum Íslend­inga auk þess sem ég og Heather Millard, sem er búsett á Íslandi, fram­leiðum undir merkjum Compass Film. Sem sagt íslensk fram­leiðsla í sam­starfi við pólska með­fram­leið­endur og gefnar út tvær útgáfur, önnur alþjóð­leg og hin með íslensku tali.“

„Þetta verður íslensk fram­leiðsla í sam­starfi við pólska með­fram­leið­endur.“

Hug­myndin kvikn­aði í kjöl­far barns­burðar
Að sögn Þóreyjar hefur und­ir­bún­ings­vinna að mynd­inni staðið yfir í nokkur ár, eða frá árinu 2015, en hug­myndin byggir á barna­bók­inni Orm­hild­ar­sögu sem hún skrif­aði sjálf og mynd­skreytti og var gefin út af bóka­for­lag­inu Sölku árið 2016. „Sú saga ger­ist í fram­tíð­inni og segir frá því hvernig jöklar heims­ins hafa bráðnað með þeim afleið­ingum að undan þeim skríða nykrar, skoffín, lyngormar og alls kyns óvættir sem við þekkjum úr þjóð­sög­unum, á meðan flest fólk hefur drukknað í flóðum. Eft­ir­lif­end­urnir kúldr­ast á Breið­holts­eyju og mynda þar sam­fé­lag sem lifir í stöð­ugum ótta við þessar skepnur, en aðal­sögu­hetjan Orm­hildur vinnur á Kukl- og galdra­rann­sókn­ar­setri rík­is­ins sem hefur það mark­mið að kljást við þær og snúa við galdr­inum sem hélt þeim föngnum í ísnum. Þegar sú leið upp­götvast hefst æsispenn­andi ævin­týri.“
Þórey segir bók­ina hafa orðið til út frá smá­sögu sem hún skrif­aði þegar hún var við nám í Háskóla Íslands og fjallar um bók­mennta­fræð­inör­dinn Ormhildi sem lendir í ævin­týrum í þessum svaka­lega heimi. Dag einn hafi hún bara allt í einu séð per­són­una ljós­lif­andi fyrir sér. „Á þessum tíma var ég líka nýbúin að eign­ast barn og spáði mikið í fram­tíð­ina, hvernig hún liti út meðal ann­ars í ljósi þess skaða sem mað­ur­inn hefur valdið í nátt­úr­unni. Aðal­per­sónan varð því svo­lítið eins og þetta nýfædda barn, hálf­gerður sak­leys­ingi sem ferð­ast í gegnum þennan óhug­an­lega sögu­heim og er að reyna að finna ein­hverja fót­festu í til­ver­unni um leið og hún þarf að kljást við alls kyns hættu­legar skepnur. Þetta er sem sagt póli­tísk ádeila en sett fram á ævin­týra­legan og spaugi­legan hátt svo les­endur drep­ist ekki úr leið­indum,“ segir hún og hlær.

Kynn­ing­arplakat vænt­an­legrar teikni­myndar.

Stærsta verk­efni sem hún hefur komið nálægt
Spurð hversu vel vænt­an­leg mynd og sería komi til með að fylgja sögu­þræði bók­ar­innar, segir Þórey að hvorttveggja muni ger­ast í sama sögu­heimi auk þess sem karakt­er­arnir byggi á per­sónum bók­ar­innar. Þar sem myndin sé stutt­mynd komi hún til með að verða fjórar til fimm mín­útur að lengd en þætt­irnir verði 26 tals­ins og 22 mín­útna langir. Myndin sé raun­veru­lega liður í því að gera þætti upp úr bók­inni. „Þannig að núna er ég að fara út til að kynn­ast betur „crewinu“ þar og skerpa á verka­skipt­ing­unni sem er algjört lyk­il­at­riði þegar maður er að vinna svona stórt og dýrt verk­efni á milli landa. Það þarf að velja rétta mann­skap­inn með sér í þetta svo að útkoman verði góð. Allt þarf að vera alveg á krist­al­tæru, því þótt ég hafi gert stutt­myndir áður er þetta miklu stærri fram­leiðsla og meiri pen­ingar sem eru í húfi.“

Erlendar aðilar áhuga­samir
Þótt fram­leiðslan sé enn á ákveðnu byrj­un­ar­stigi seg­ist Þórey skynja mik­inn áhuga á verk­efn­inu, bæði hér heima og erlendis frá. „Við höfum til dæmis þegar farið á nokkra fundi með stórum alþjóð­legum dreif­ing­ar­að­ilum, en því miður get ég ekki sagt hvar þau mál standa, alla vega ekki í bili,“ segir hún leynd­ar­dóms­full. „Nú er ég bara með hug­ann við ferð­ina til Póllands og hlakka rosa­lega mikið til enda er mér sagt að Gdansk sé afskap­lega fal­leg borg. Svo er víst mat­ur­inn í Póllandi algjört æði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum