Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Stórskotalið söngvara styður Þóru í baráttunni við Óperuna

Stórskotalið söngvara styður Þóru í baráttunni við Óperuna
Elsa Waage

Fjöl­margir hafa und­an­farið lýst yfir stuðn­ingi við Þóru Ein­ars­dóttur söng­konu sem hefur stefnt Íslensku óper­unni fyrir van­goldin laun. Einn þeirra er stór­söngv­ar­inn Gunnar Guð­björns­son sem hrósar Þóru fyrir vask­lega fram­göngu í mál­inu og vonar að þetta leiði til þess að starf­semi Óper­unnar verði end­ur­skoðuð.

„Þóra Ein­ars­dóttir á hrós skilið fyrir að fara fram í þessu máli. Vonandi verður þetta til þess að sjón­ar­mið söngv­ara verða sett á odd­inn og afstaðan gagn­vart núver­andi stjórn­ar­háttum í ÍÓ verði skoðuð þannig að breyt­ingar verði á á öllu þar inn­an­dyra. Það er af nógu að taka í því efni,“ skrifar Gunnnar í færslu á Facebook og deilir við­tali við Þóru í síð­asta tölu­blaði Mannlífs.

Þóra Ein­ars­dóttir. Mynd / Jóhanna Ólafs­dótttir

í umfjöllun Mannlífs kom fram að Félag íslenskra hljóm­list­ar­manna, FÍH, væri búið að stefna Óperunni vegna van­gold­inna launa Þóru við upp­færslu óper­unnar Brúðkaup Fígarós síð­ast­liðið haust. Upphaf máls­ins mætti rekja til þess þegar átta ein­söngv­arar í Brúð­kaupi Fígarós leit­uðu til FÍH leið­rétt­ingu launa sinna við sýn­ing­una, en félagið ákvað að fara þá leið að stefna Óperunni af fyrr­greindum ástæðum þar sem lend­ing náð­ist ekki í mál­inu.

Er umfjöll­unin tikefni skrifa Gunnars sem segir í fyrr­nefndri færslu að hann hafi ekki verið vin­sæll þegar hann hafi tekið upp á því að vera leið­indagaur­inn sem segir það sem segja þurfti og því að mestu látið það eiga sig síð­ustu ár. En nú geti hann hrein­lega ekki stað­ist að minn­ast á þetta, „á þessum tíma­mótum þegar söngv­arar loks­ins standa saman í stað þess að hnýta í þá sem þora að opna munn­inn.“

Sorglegt hvað margir studdu ráðningu núverandi óperustjóra

„Auðvitað finnst mér sorg­legt og raunar tals­vert sárt að hugsa til þess hve margir í röðum söngv­ar­anna sjálfra studdu ráðn­ingu núver­andi óperu­stjóra þegar stjórnin tók þá ákvörðun að ræða ekki við neinn annan umsækj­anda,“ skrifar Gunnar enn­fremur. „Þá var við­horf margra að við ættum bara að gefa nýjum óperu­stjóra umboð til að sinna sínum góðum störfum. Þetta er m.a. afleið­ingin.“

Hann segir val á stjórn­anda í lista­stofnun verða að mið­ast við það fyrst og fremst að við­kom­andi beri hag list­grein­ar­innar fyrir brjósti og það þýðir að um leið að hann verji hags­muni lista­mann­anna sjálfra. „Ég tel víst að í hópi umsækj­enda þegar síð­ast var val­inn óperu­stjóri, hafi verið um nokkra að ræða sem ekki hefðu hikað að verja sitt fólk.“

Fólk ekki tjáð sig af ótta við að verða af atvinnu

Mezzosópransöngkonan Elsa Waage er ein þeirra sem tekur undir orð Gunnars. „Við sem höfum tjáð okkur um þessi og önnur mál varð­andi íslensku óper­una und­an­farin ár höfum ekki fengið hljóm­grunn,“ skrifar hún við færslu hans. „Líklega hræðslan við að vera fryst/ur úti varð­andi mögu­leg tæki­færi hjá óper­unni hefur sett fólk í skoð­anafang­elsi. Það er alger­lega frá­bært að ein af okkar virt­ustu óperu­söng­konum Þóra Ein­ars­dóttir skuli ganga í þetta mál og von­andi ryðja nýja braut hvað varðar rekstur á okkar íslensku óperu­stofnun í fram­tíð­inni.“

Guðrún Jóhanna Ólafs­dóttir  mezzósópran segir Þóru hafa sýnt hug­rekki með því að tjá sig opin­ber­lega um málið. „Það þarf mikið hug­rekki til að stíga svona fram og mér finnst það aðdá­un­ar­vert. Það er mik­il­vægt að það sé gegn­sæi varð­andi fjár­mál Íslensku óper­unnar, sem er eins og margir hafa bent á, eini óperu­starfs­vett­vangur söngv­ara á Íslandi. Það er aldeilis leitt að vita af því að söngv­urum séu ekki einu sinni greidd laun eftir samn­ingum.“

Vildi ekki tjá sig um málið

Mannlíf hafði sam­band við Stein­unni Birnu Ragn­ars­dóttur, óperu­stjóra Íslensku óper­unnar, til að fá hennar hlið á mál­inu þegar fjallað var um málið í blað­inu en hún kaus að tjá sig ekki um það að svo stöddu. „Ég kýs að tjá mig ekki um þennan ágrein­ing að svo stöddu. Fyrst ákveðið er að fara þessa leið þá finnst mér rétt að málið sé útkljáð á þeim vett­vangi,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum