Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Það er alltaf að koma meira í ljós og málið verður bara stærra“

„Það er alltaf að koma meira í ljós og málið verður bara stærra“
Þor­steinn Már Bald­vins­son.

„Ég er mjög rólegur með þetta allt,“ segir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, um upp­lifun sína af ásök­unum og rann­sókn á meintum mútum fyr­ir­tæk­is­ins til afrískra ráða­manna og vensla­manna þeirra. Hér­aðs­sak­sókn­ara hefur verið send rétt­ar­beiðni frá Namib­íu­mönnum vegna máls­ins. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist hann jafn­framt hafa undir höndum tölu­vert gagna­magn sem verið sé að fara yfir.

Samherji er sak­aður um að hafa á árunum 2014 til 2019 greitt hátt­settum stjórn­mála- og emb­ætt­is­mönnum í Namibíu rúman millj­arð króna í mútur í þeim til­gangi að kom­ast yfir eft­ir­sóttan hrossa­makríl­kvóta. Fyr­ir­tækið er sagt hafa hagn­ast þannig veru­lega á starf­semi sinni í land­inu og síðan not­fært sér þekkt skatta­skjól til að koma hagn­að­inum undan. Rann­sóknin hefur hins vegar dreg­ist á lang­inn vegna lok­unar landamæra í COVID-far­aldr­inum og hefur dóm­ari í Namibíu sam­þykkt að fresta því til sum­ar­loka að fast­setja dag­setn­ingar fyrir rétt­ar­höldin. Svo segir aðstoð­ar­rík­is­sak­sókn­ari í Namibíu, Ed Marondedze.Hann segir að unnið sé sleitu­laust að rann­sókn­inni. Marondedze hefur lýst því yfir að hann búist við hand­tökum á Íslandi vegna máls­ins en nú sitja sjö grun­aðir Afr­íku­menn í namibísku fang­elsi vegna máls­ins.

„Við erum með mikið undir í þessu máli, tölu­vert mikið gagna­magn og það er tíma­frekt að fara yfir þetta allt.“

Starf­semi Samherja í Namibíu hefur í tæpan ára­tug farið þannig fram að allt að þrír verk­smiðju­tog­arar hafa verið við veiðar á hrossa­makríl við landið. Samherja tókst að tryggja sér tug­millj­arða króna verð­mæti með því að kom­ast yfir þennan eft­ir­sótta hrossa­makríl­kvóta.

Dótt­ur­fé­lag Samherja sem er með heim­il­is­festi á Kýpur hefur haldið utan um veiðar Samherja í Namibíu þar sem fyr­ir­tækið og stjórn­endur þess eru nú grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­ast yfir ódýran kvóta. Auk þess er rök­studdur grunur um umfangs­mikla skatta­snið­göngu í gegnum Kýpur og aflands­fé­lög og pen­inga­þvætti.

Namibísk yfir­völd hafa óskað eftir lið­sinni alþjóða­lög­regl­unnar Interpol við rann­sókn­ina og hefur Ólafi Þór Hauks­syni hér­aðs­sak­sókn­ara verið send rétt­ar­beiðni frá Namib­íu­mönnum vegna máls­ins. Aðspurður um hvort þeirri rétt­ar­beiðni fylgi ósk um fram­sal hafnar Ólafur því. Spurður hvort fram­sals­beiðni hafi verið lögð fram seg­ist hann hvorki geta stað­fest það né hafnað því. „Ég get ekki tjáð mig um hvað kemur fram í þess­ari rétt­ar­beiðni því það er rann­sókn sem Namib­íu­menn­irnir eru með í sínum höndum og verða að svara fyrir.“

Ekkert samkomulag um framsal

Til þess að namibísk yfir­völd geti kraf­ist fram­sals Íslend­ing­anna sem mál­inu tengj­ast þurfa að vera gild­andi um það samn­ingar milli land­anna. Aðspurður segir Ólafur þá samn­inga ekki til staðar. „Nei, það held ég ekki. Í öllum til­vikum þegar fram kemur beiðni um fram­sal þarf alltaf að vísa til ein­hverra heim­ilda. Til þess að fram­sal sé inni í mynd­inni þurfa að vera ein­hvers konar samn­ingar eða skuld­bind­ingar þarna á milli landa,“ segir Ólafur Þór.

Hann bendir á að rann­sókn geti breyst og stækkað eftir því sem henni vindur fram. Hvort rann­sóknin á meintum mútum Sam­herj­a­manna hafi leitt meira í ljós seg­ist hann ekki geta svarað því, hvorki af né á. „Því miður hafa hlutir dreg­ist á lang­inn og COVID-19 hefur óneit­an­lega sett strik í reikn­ing­inn. Við erum með mikið undir í þessu máli, tölu­vert mikið gagna­magn og það er tíma­frekt að fara yfir þetta allt.

Hvað það er nákvæm­lega get ég ekki upp­lýst um. Ég get ekk­ert annað en verið passífur þótt það sé vissu­lega erfitt stundum að vera í þeirri stöðu.“

Mun tjá sig fyrr en seinna

Samherji hefur gefið út að namibísk yfir­völd hafi ekki sett sig í sam­band við fyr­ir­tækið í tengslum við rann­sókn­ina eða mögu­legar hand­tökur sem boð­aðar hafa verið. Þá hefur fyr­ir­tækið einnig bent á að ekki sé í gildi tví­hliða sam­komu­lag milli land­anna sem heim­ili aðgerðir Namib­íu­manna gagn­vart íslenskum fyr­ir­tækjum eða ein­stak­lingum.

Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Þor­steinn Már hafa það þokka­legt en hann vilji lítið tjá sig um gang mála. Aðspurður seg­ist hann ekk­ert hafa heyrt í neinum varð­andi rann­sókn Namib­íu­mann­anna og við­ur­kennir að hann viti ekk­ert um rétt­ar­beiðn­ina sem þaðan hefur borist. Þegar hann er inntur eftir því hvort hann sé alveg rólegur gagn­vart rann­sókn­inni segir hann svo vera. „Ég er alveg rólegur, já. Ég veit ekk­ert um þessa rétt­ar­beiðni og mun ekki tjá mig um það. Ég hef sem sagt ekki heyrt í neinum og hef ekki miklu við það að bæta. Ég mun tjá mig um þetta mál fyrr en seinna,“ segir Þor­steinn Már.

Málið hefur stækkað

Jóhannes Stef­áns­son var verk­efna­stjóri Samherja í Namibíu til 2016 og og ljóstr­aði hann upp um meint mútu­mál Samherja. Hann við­ur­kenndi sjálfur í við­tölum að hafa brotið lög fyrir hönd fyr­ir­tæks­ins til að kom­ast yfir kvóta og segir hann málið fá mikla athygli í Namibíu. „Rann­sóknin gengur vel í Namibíu og málið verður bara stærra. Það er alltaf að koma meira í ljós. Málið er í fréttum svo til dag­lega í Namibíu,“ segir Jóhannes.

Símon T. Idipo, upp­lýs­inga­full­trúi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í Namibíu, neit­aði að gefa upp­lýs­ingar um stöðu rann­sókn­ar­innar og rétt­ar­beiðn­ina sem send hefur verið íslenskum yfir­völdum. Hann benti á að rann­sóknin sé ekki á borði ráðu­neyt­is­ins heldur alfarið í höndum þartil­gerðar spill­ing­ar­stofn­unar á vegum stjórn­valda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum