Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Hefur ekki fundið fyrir fordómum á Íslandi

Hefur ekki fundið fyrir fordómum á Íslandi

Kathira­van Nara­yanan, eða Kathir eins og hann er gjarnan kall­aður, seg­ist hvergi ann­ars staðar vilja búa en á Íslandi og stefnir á að sækja um rík­is­borg­ara­rétt innan fárra ára. Hann er einn af fjöl­mörgum erlendum vís­inda­mönnum hjá líf­tækni­fyr­ir­tæk­inu Alvotech hér á landi en hjá því starfa vís­inda­menn og sér­fræð­ingar af 50 ólíkum þjóð­ernum. Saga Kathir er saga af fjöl­skyldu sem flýgur hálfan hring í kringum jörð­ina til að koma í gjör­ó­líkan menn­ing­ar­heim á Íslandi. Hér hefur hann blómstrað bæði í starfi og einka­lífi.

Kathir flutti hingað frá Indlandi fyrir þremur árum ásamt eig­in­konu sinni, Priya Jay­ara­man, og tveggja ára dóttur þeirra, Deekshita Kathira­van. Öll hafa þau aðlag­ast vel íslensku sam­fé­lagi. Dóttirin er nú orðin fimm ára og blómstrar í íslensku skóla­kerfi. Hún hefur til­kynnt föður sínum að hún vilji ávallt búa á Íslandi.

Ánægjuleg upplifun að eignast barn á Íslandi

„Dóttir mín hefur verið í leik­skól­anum Linda­borg þar sem allt starfs­fólkið, einkum María, er mjög vin­sam­legt og hjálp­legt. Leik­skóla­kerfið er mjög gott með skap­andi starf. Ég hef verið mjög glaður að fylgj­ast með henni í skól­anum. Hún er farin að tala góða íslensku og er þegar búin að til­kynna okkur það að héðan mun hún ekki vilja flytja enda mjög ánægð. Hún er bara til í að fara í frí til Indlands,“ segir Kathir.

Árið 2014 gengu Kathir og Priya í hjóna­band og eign­uð­ust dótt­ur­ina ári síðar á Indlandi. Fyrir tæpum þremur mán­uðum eign­uð­ust þau svo sitt annað barn hér á Íslandi, son­inn Shaam Kathira­van. Kathir er mjög ánægður með heil­brigð­is­þjón­ust­una sem þau hafa fengið. „Þetta var mjög ánægju­leg upp­lifun að eign­ast barn hér á Íslandi. Við vorum bæði mjög ánægð með þjón­ust­una sem við fengum í gegnum alla með­göng­una og fæð­ing­una. Núna eru þrjár konur í hópnum ófrískar og eftir frá­sagnir okkar af kerf­inu hafa þær ákveðið að fæða börnin líka hér á Íslandi,“ segir Kathir og vísar þar í hóp ind­verskra starfs­manna hjá Alvotech og fjöl­skyldur þeirra.

Mikil lífsgæði

Kathir ólst upp í bænum Raya­kottai á Indlandi ásamt tveimur systrum. Faðir hans vann hjá hinu opin­bera á meðan móðir hans var heima­vinn­andi hús­móðir. Eftir að hafa lokið grun­námi í heima­vist­ar­skólum lauk hann fram­halds­námi í líf­tækni og starf­aði síðan í rúman ára­tug hjá ind­verskum stór­fyr­ir­tækjum á því sviði. Árið 2017 tók hann starfstil­boði hjá Alvotech og flutti hingað til lands með fjöl­skyldu sína. Kathir hefur einnig náð góðum frama í starfi því hann tók í upp­hafi við deild­ar­stjóra­stöðu hjá fyr­ir­tæki en er nú aðstoð­ar­for­stjóri yfir lyfja­fram­leiðsl­unni. „Ég er virki­lega ánægður, bæði í vinnu og einka­lífi. Fram­leiðslu­deildin hefur náð mjög góðum árangri og fyrir það er ég bæði stoltur og þakk­látur. Ég hef kunnað því mjög vel að starfa þar og það er ánægju­legt hversu vel er hugsað um starfs­fólk hér á landi. Þannig að ég er mjög ánægður að hafa fengið hér vinnu og lífs­gæðin hér eru mun meiri en á Indlandi,“ segir Kathir.

„Hún er farin að tala góða íslensku og er þegar búin að til­kynna okkur það að héðan mun hún ekki vilja flytja enda mjög ánægð.“

Hefur þroskast

Fyrstu tvö árin hjá Alvotec var Kathir hluti af fámennum hópi Indverja hjá fyr­ir­tæk­inu en nú eru Ind­verjarnir sem þar starfa orðnir yfir 40 tals­ins. „Það hefur auð­vitað haft jákvæð félags­leg áhrif því þessi stóri hópur er mér bein­tengdur og þau hafa öll komið hingað því við höfum talað svo vel um Ísland. Þá hefur þetta líka haft jákvæð félags­leg áhrif fyrir kon­una mína og hún hefur getað hjálpað kon­unum að koma sér fyrir hér. Allur hóp­ur­inn er mjög ánægður hér og ég er sann­færður um að flestir úr hópnum komi til með að vilja vera hér áfram til fram­tíðar,“ segir Kathir.

„Eftir því sem fyr­ir­tækið fer stækk­andi gæti Ind­verj­unum hér fjölgað. Það er mjög ánægju­legt að búa á Íslandi. Það er pínu kalt þar sem veðrið breyt­ist mjög hratt en hér er samt mjög gott að búa. Eftir að ég kom hingað hef ég bæði þroskast mjög á mínu atvinnu­sviði en ég hef líka þroskast sem fjöl­skyldu­faðir.“

Í lykilhlutverki

Kathir er í hópi hámennt­aðra vís­inda­manna líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins sem er með fjölda líf­tækni­lyfja í þróun og stefnir á að koma fyrsta lyf­inu á markað á næsta ári. Þar gegnir hann lyk­il­hlut­verki og því hefur hann hvorki haft mik­inn tíma til tóm­stunda né íslensku­náms. „Ég æfi tennis reglu­lega og spila einnig krikket sem var alveg ynd­is­legt fyrir mig að kom­ast í. Íslend­ingar eru kannski ekki á alþjóð­legu stigi í krikket en ég hef náð að kenna þeim aðeins,“ segir hann bros­andi.

Eftir að hafa lokið grun­námi í heima­vist­ar­skólum lauk Kathira­van fram­halds­námi í líf­tækni og starf­aði síðan í rúman ára­tug hjá ind­verskum stór­fyr­ir­tækjum á því sviði. Árið 2017 tók hann starfstil­boði hjá Alvotech og flutti hingað til lands með fjöl­skyldu sína. Mynd / Hákon Davíð

„Í hrein­skilni sagt hef ég ekki haft nógu mik­inn tíma til að læra íslensk­una en ég er með það mark­mið að bæta þar úr því eftir nokkur ár stefni ég á að sækja um rík­is­borg­ara­rétt. Mig langar til að verða Íslend­ingur. Við höfum aðlag­ast vel, það er bara mat­ur­inn sem við höfum haldið í þar sem við eldum áfram ind­verskan mat og erum svo heppin að fá hér allt hrá­efni.“

Ekki mætt fordómum

Aðspurður hvort hann hafi orðið fyrir aðkasti eða athuga­semdum á Íslandi vegna upp­runa síns segir hann svo ekki vera. „Alveg frá upp­hafi hef ég fundið fyrir því að vera vel­kom­inn hér. Ég hef núna verið hér í þrjú ár og hef ekki lent í neinu slíku til­viki þrátt fyrir dökkan húð­lit minn. Það hef ég heldur ekki heyrt frá neinum af mínum sam­starfs­mönnum. Þess vegna erum við enn þakk­lát­ari fyrir að vera hér,“ segir Kathir.

„Þegar við fluttum hingað þá var breyt­ingin fyrir okkur mjög mikil. Þetta eru gjör­ó­líkir menn­ing­ar­heimar. Á Indlandi er líka mjög heitt en hér er kalt og miklar breyt­ingar á birtu­skil­yrðum eftir árs­tíðum. En ég er sem betur fer ekki hræddur við myrkrið og við hjónin völdum það frá upp­hafi að láta veðrið ekki trufla okkar til­finn­inga­líf. Þess vegna vorum við heldur ekki kvíðin fyrir flutn­ingnum þar sem við lítum hann bara jákvæðum augum. Hér er allt svo hreint og ferskt, til dæmis vatnið, og manni finnst heilsu­sam­legt að búa hér. Fólkið er líka mjög almenni­legt. Fyrir utan fjöl­skyld­una á Indlandi þá er ekk­ert sem við söknum þaðan.“

Lestu við­tal við Kathir í Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina