Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimilislausar konur: „Á götunni er okkur nauðgað“

Heimilislausar konur: „Á götunni er okkur nauðgað“
Mynd/ skjá­skot DV

Fjöldi heim­il­is­lausra kvenna telur lífi sínu ógnað vegna yfir­vof­andi lok­unar á neyð­ar­rúr­ræðum fyrir heim­il­is­lausa. Í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum höfðu Gisti­skýlin og Konukot opið allan sól­ar­hring­inn en þar var þó aðeins um tíma­bundið úrræði að ræða. Nú þegar til stendur að loka telja kon­urnar líf þeirra í hættu.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem átta heim­il­is­lausar konur sendur frá sér. Þær segja þetta tíma­bundna úrræði hafa leitt til þess að þær hafi í fyrsta sinn fundið fyrir öryggi og mót­mæla lok­un­inni.

„Neyð­ar­skýlin rúma ekki allt heim­il­is­laust fólk á Reykja­vík­ur­svæð­inu. Tíu konur á aldr­inum 19-60 ára sem allar áttu það sam­eig­in­legt að hafa þurft að búa á göt­unni í lengri eða styttri tíma fluttu í þetta tíma­bundna neyð­ar­úr­ræði í lok apríl 2020. Við erum þessar konur. Nú þegar COVID-19 smitum hefur fækkað á Íslandi á að loka
úrræð­inu og henda okkur aftur út á göt­una,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Konurnar átta sem rita undir yfir­lýs­ing­una hafa lengi verið heim­il­is­lausar. Sumar þeirra í  nokkra mán­uði en aðrar til nokk­urra ára. Sú sem lengst hefur verið án heim­ilis hefur verið það í átta á. Konurnar lýsa hrika­legu lífi á göt­unni og hvernig Covid-neyð­ar­úr­ræðin hafi gefið þeim nýja von.

Svona hljóðar yfir­lýs­ing heim­il­is­lausu kvenn­anna:

„Það á eng­inn að vera heim­il­is­laus

Það ætti eng­inn að vera heim­il­is­laus, hvað þá á Íslandi. En því miður erum við, hin heim­il­is­lausu, alltof, alltof mörg þrátt fyrir að það séu fjöldi húsa sem standa auð og eig­endur þeirra bíða eftir að þau brenni til grunna eða hrynji til að geta byggt hótel, skrif­stofu­hús­næði eða lúxus­í­búðir. Þessi yfir­lýs­ing er frá okkur, heim­il­is­lausum konum í Reykja­vík, til ykkar, sem aldrei hafið neyðst til að lifa á göt­unni. Til ykkar, sem byggið sam­fé­lag þar sem það virð­ist vera allt í lagi að fólk eigi ekki þak yfir höf­uðið, og til ykkar sem seg­ist styðja heim­il­is­laust fólk, svo lengi sem sá stuðn­ingur er ekki í ykkar hverfi.

Á meðan það eru heim­il­is­lausir ein­stak­lingar í sam­fé­lag­inu neyð­umst við að fræða fólk um heim­il­is­leysi. Því hvað vitið þið um heim­il­is­leysi? Hvað vitið þið um fólk sem er heim­il­is­laust? Heim­il­is­lausir eru ekki eins­leitur hópur líkt og mörg ykkar halda. Heim­il­is­laust fólk er af öllum kynjum, á öllum aldri og með mis­mun­andi bak­grunn. Við erum á göt­unni af jafn marg­breyti­legum ástæðum og við erum mörg.

Þið þurfið að vita að það að vera á göt­unni er ekki sjálf­skapað ástand. Samt er oft komið fram við okkur eins og þetta hafi verið val og vegna þessa við­horfs líta margir á okkur sem sam­fé­lags­mein og glæpa­menn. En þetta er ekki val. Við ,,lendum” ekk­ert á göt­unni. Þetta er rot­högg. Þetta er ekk­ert eins og flytja að heiman – þú mjúk­lendir ekk­ert á göt­unni. Það kemur eitt­hvað fyrir þig, þú brotnar og slamm­ast á göt­una. Þannig ger­ist þetta. Við erum á göt­unni útaf áföllum og ofbeldi sem við höfum verið beittar. Á göt­unni snýst allt um að lifa af og þegar allt snýst um að lifa af þá þarf að gera hluti sem geta leitt af sér enn fleiri áföll og enn meira ofbeldi.

Á göt­unni er okkur nauðgað, við lendum í kyn­ferð­is­legu ofbeldi, áreitni og við erum alltaf ávarð­bergi. Það er ekk­ert and­rými. Við getum lofað ykkur því að hver ein­asta mann­eskja sem er á göt­unni er með áfallastreituröskun á mjög háu stigi.

Sam­fé­lagið gefur okkur ekk­ert tæki­færi til að vinna úr þessum áföllum með því að læsa okkur inni í fang­elsi og halda okkur á göt­unni. Af því að á göt­unni vinnum við ekki úr neinu, það er ekk­ert færi á því.

Mörg okkar nota ein­hvers­konar vímu­efni og við skömm­umst okkar ekki fyrir það, þó að sam­fé­lagið vilji að við gerum það. Stað­reyndin er sú að það er erfitt að sjá góða part­inn og til­gang­inn í því að vera edrú þegar við erum alveg heim­il­is­lausar.

Gatan tekur okkur alveg og raun­irnar á göt­unni eru bara þær sömu aftur og aftur. Þetta snýst ekki um gáfur eða vilja­styrk. Vilja­styrkur okkar er gíf­ur­legur og hann fer allur í það að lifa af. Oftast felur vímu­efna­notk­unin í sér að deyfa sárs­auk­ann á einn hátt eða annan hátt. Við skulum gefa hverjum þeim sem tekst að finna eina mann­eskju á göt­unni sem er edrú elds­legna, hand­smíð­aða medalíu sem við búum til sjálfar.

Það á eng­inn að vera heim­il­is­laus. Sorglega stað­reyndin er sú að það þurfti heims­far­aldur til að aðeins færri yrðu heim­il­is­lausir á Íslandi. Vegna COVID-19 neydd­ust yfir­völd til að gefa heim­il­is­lausum þak yfir höf­uðið. Það er nefni­lega erfitt að halda sig heima, ef þú átt hvergi heima.

Um tíma, þegar smitin voru sem flest í sam­fé­lag­inu og fólki var skipað að vera heima hjá sér, voru Gisti­skýlin og Konukot höfð opin allan sól­ar­hring­inn í stað­inn fyrir að vera ein­ungis opin frá 17:00-10:00 eins og er vana­lega. Örfáar hræður innan kerf­is­ins börð­ust einnig fyrir því að opnað yrði tíma­bundið neyð­ar­úr­ræði þar sem neyð­ar­skýlin rúma ekki allt heim­il­is­laust fólk á Reykja­vík­ur­svæð­inu. Tíu konur á aldr­inum 19-60 ára sem allar áttu það sam­eig­in­legt að hafa þurft að búa á göt­unni í lengri eða styttri tíma fluttu í þetta tíma­bundna neyð­ar­úr­ræði í lok apríl 2020. Við erum þessar konur. Nú þegar COVID-19 smitum hefur fækkað á Íslandi á að loka
úrræð­inu og henda okkur aftur út á göt­una.

Þó að við séum þakk­látar Rauða kross­inum, sjálf­boða­lið­unum og starfs­fólk­inu sem rekur Konukot, eina úrræðið sem er í boði fyrir heim­il­is­lausar konur, þá er aðstaðan þar mjög tak­mörkuð. Húsið rúmar ekki nema mest 12 konur, sem þurfa að deila fjórum her­bergjum og ein­ungis ein sturta er í hús­næð­inu. Það krefst ekki mik­illar umhugs­unar til að skilja álagið og streit­una sem fylgir því að þurfa vera nótt eftir nótt í slíkum aðstæðum. Það er ekki í lagi að bjóða okkur upp á hvað sem er þó við séum heim­il­is­lausar.

Í okkar tíma­bundna úrræði fær hver kona litla aðstöðu með svefn­her­bergi, rúmi og hillu, ásamt litlu bað­her­bergi. Þar er líka sam­eig­in­legt þvotta­hús, eld­hús og borð­stofa. Það að þurfa ekki að fara alltaf út á götu klukkan tíu á morgn­anna (Gisti­skýlin og Konukot), sama hvaða dagur er, sama hvort það sé hlýtt eða kalt, snjór eða rign­ing, hefur breytt öllu fyrir okkur. Við höfum ekki fundið fyrir svona miklu öryggi í mörg ár. Við erum orðin eins og fjöl­skylda, bæði starfs­fólkið og kon­urnar sem hér dvelja.

Hér eru nokkur dæmi um þær breyt­ingar sem hafa orðið á lífi okkar síðan við fluttum inn í úrræðið:

– „Síðan ég brot­lenti á göt­unni þá er ég bara búin að reyna að laga hluti. Ég náði aldrei að laga neitt fyrr en eftir þriðju viku í öruggu hús­næði.

Ég gat talað við fólkið sem býr hérna.
Átt ein­læg og ynd­is­leg sam­töl og myndað sam­bönd. Svo allt í einu þegar ég rakst á
strák­inn sem beitti mig rosa­legu ofbeldi, sem ég hélt að yrði það hræði­leg­asta af öllu, þá
gat ég kom­ist yfir það af því ég gat komið alltaf bara hingað og grátið og verið reið og
sofið. Ég gat byrjað að vinna úr áföllum af því ég hafði aðrar mann­eskjur til að tala við á
öruggum sama­stað.“

– „Þetta skiptir mig öllu máli. Ég gæti ekki verið meira heil­brigð en ég er hérna. Ég er að upp­lifa að ég er ham­ingju­söm og sátt í eigin skinni, stend mig vel í því sem ég er að
gera, ég er að sinna öllu sem ég þarf að sinna. Ég stefni á að kaupa mér íbúð. Hér er passað upp á að eng­inn komi inn, það er passað upp á okkur. Ég verð að fá að hrósa
starfs­fólk­inu hérna, þetta er búið að vera full­komið. Ég tengi ekki alveg þegar ég heyri neyð­ar­skýli… þetta er nefni­lega meira eins og heim­ili. Eina sem er að plaga mann fyrir utan fjár­hags­leysið er þetta óör­yggi og kvíð­inn yfir fram­hald­inu. Hvað ætli ég hugsi oft á dag um hversu lengi þetta verður opið og hvenær ég þarf að fara aftur á göt­una?“

„Það er mik­il­vægt að hafa hús­næði, það er mik­il­vægt svo við frjósum ekki í hel. Það er réttur allra. Eftir að ég fékk pláss hér er ég orðin betri til alls. Það er allt betra. Mér líður öruggri, ég get lagt mig hvenær sem ég þarf án þess að vera á sífellu varð­bergi og án þess að lög­reglan komi og veki mig. Ég get haft dótið mitt í kringum mig og verið inni hjá mér með lok­aðar dyr. Það þarf ekk­ert að vera svona mikið af heim­il­is­lausu fólki hérna, það er bara rugl. Það eru örugg­lega mun fleiri félags­ráð­gjafar til heldur eru til heim­il­is­lausir.“

– „Það vantar svona úrræði, sem er svona „stepp­ing stone” í að kom­ast eitt­hvað annað í líf­inu. Frá göt­unni, ná jafn­vægi og þá eiga kannski mögu­leika á að kom­ast eitt­hvað
annað. Mér finnst sjálf­sagt að ef þetta yrði fram­lengt að við myndum borga á mán­uði, við getum borgað litla leigu til rík­is­ins ef það er það sem þarf. Covid er líka ekk­ert farið að eilífu en við eigum samt að halda áfram að vera á göt­unni? Já, við erum í neyslu en við kunnum alveg að fokk­ing þrífa. Við erum ekki rústandi eða ræn­andi ein­hverju, við getum alveg búið ein­hver­staðar eðli­lega ef okkur er gefið tæki­færi.“

„Fyrst og fremst er það að ef þetta úrræði væri ekki til staðar þá væri ég dáin. Ég væri dáin og ég hefði aldrei hringt á sjúkra­bíl ef ég þyrfti hann af því að ég skulda 190.000 í
sjúkra­bíla­sjóð. Ef þær hefðu ekki hringt fyrir mig á sjúkra­bíl svona 15 sinnum væri ég dáin núna útaf blóð­sýk­ingu, eða ef ég væri ekki dáin væri sýk­ingin komin út í hjartað.
Ábyggi­lega átján sinnum hefur fólk hérna bjargað mér og stutt mig og huggað mig. Ef þetta lokar byrja ég örugg­lega að nota mor­fín aftur, fer í Konukot. Ég held ég muni missa vitið aftur. Það hefur bjargað mér að hafa sama­stað, hafa ein­hvern að tala við. Þú þarft ekki að vera svona „nojaður” um að lifa af. Ef ég er ein úti þá byrja ég að fríka út af því að mér líður ekki öruggri. Maður þarf að gera svo mikið til að lifa af í þessum heimi, og þá er svo gott að eiga öruggan stað þar sem fólk getur ekki bara birst.“

Vonandi skiljið þið núna. Þetta er upp á líf eða dauða fyrir okkur. Skila­boðin sem þið sendið okkur með því að moka millj­örðum undir stór­fyr­ir­tæki en loka þessu litla úrræði eru þau að líf okkar séu einskis virði. Því við getum lofað ykkur því að a.m.k. tvær þeirra kvenna sem hér búa verða dánar innan árs ef þessu úrræði verður lokað.

Ekki mis­skilja okkur. Þó að við lendum í áföllum þá lítum við ekki á okkur sem fórn­ar­lömb. Við erum stríðs­konur. Við höfum lifað af aðstæður sem fá ykkar myndu geta. Það minnsta sem sam­fé­lagið getur gert er að standa með okkur í bar­átt­unni fyrir mann­sæm­andi lífi og hætta að glæpa­væða okkur. Þannig ef þið sjáið aðra mann­eskju sofa í bíl eða bíla­kjall­ara, þá a) er hún bara að reyna að sofa og b) hún sefur þarna af því hún hefur engan annan stað til að vera á c)ekki hringja í lög­regl­una. Sofandi mann­eskjan er ekki hættu­leg, en sam­fé­lagið sem skap­ar­að­stæður þar sem ein­hver neyð­ist til að sofa í bíla­kjall­ara er ban­vænt.

Það að þetta sé fyrsta álíka úrræðið fyrir heim­il­is­lausar konur á Íslandi er ótrú­legt. Í öll þessi ár hafa konur á göt­unni verið að deyja. Femínist­arnir eru bara í slag við ein­hverja karla um jafn­launa­vottun, kynja­kvóta og dóna­skap og virð­ast finn­ast minna mik­il­vægt að pæla í okkur, kon­unum sem er mest mis­munað í sam­fé­lag­inu. Jafn aðgangur að mat, hús­næði, heil­brigð­is­þjón­ustu og öryggi eru allt hlutir sem varða konur og ættu þess vegna að varða femínista og vera for­gangs­mál.

Það er á mörgum stöðum pottur brot­inn í kerf­inu. Svo þegar eitt bregst, þá eru stoðir sam­fé­lags­ins ekki til staðar. Þær eru til­bún­ingur, orð á blaði, sem ekki er farið eftir.
Við höfum fengið nóg og við ætlum ekki að láta ýta okkur út í opinn dauð­ann án þess að berj­ast fyrir lífi okkar. Við berj­umst fyrir því að þessu úrræði verði haldið opnu. Við berj­umst fyrir öll okkar sem hafa verið á göt­unni og orðið svo kalt á hönd­unum að við gátum ekki lengur hreyft fing­urna. Við erum að berj­ast fyrir stefnu í sam­fé­lag­inu sem þjónar systrum okkar, mæðrum og dætrum. Auðvitað þarf að loka þessu úrræði. En ekki deg­inum fyrr en það er engin heim­il­is­laus­kona eftir á göt­unni.

Emilie Camilla Johans Jacob, 31 ár, heim­il­is­laus í 3 ár
Embla Nótt Anderson, 23 ára, heim­il­is­laus í 7 ár
Zvala Zjana, heim­il­is­laus í 8 ár
Tiger of the fighted of the death, 43 ára, heim­il­is­laus í 7 mán­uði
S.R.K., 35 ára, 5 ár heim­il­is­laus
Magnea Örv­ars­dóttir, 48 ára, 4 ár heim­il­is­laus
Alma Lind.
Krist­vina, 32 ára, heim­il­is­laus í 2 mán­uði

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum