Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Magnús læknir segir Íslendinga verða að velja unga fólkið fram yfir frelsið: „Við vitum hver hættan er af ferðalögum“

Magnús læknir segir Íslendinga verða að velja unga fólkið fram yfir frelsið: „Við vitum hver hættan er af ferðalögum“

„Sköpum aðstöðu til að unga fólkið geti stundað skóla, hitt félaga sína og fengið að þroskast með eðli­legum hætti. Sköpum þá stöðu að þeir sem eru eldri eða hafa sjúk­dóma þurfi ekki að ótt­ast að hitta þá sem eru þeim kær­astir. Sköpum þá stöðu að við getum sem sam­fé­lag notið þess að njóta saman.“

Þetta skrifar Magnús Karl Magn­ús­son, pró­fessor við Lækna­deild Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi for­seti deild­ar­innar, á Facebook-síðu sinni um COVID-far­ald­inn. Pistil­inn hefur vakið tals­verða athygli og er ljóst að margir eru sam­mála honum. Magnús lýsir meðal ann­ars mik­il­vægi þess fyrir sam­fé­lagið að ná aftur sama and­rými og skap­að­ist í sumar. Nú þurfi að hugsa um unga og gamla í sam­fé­lag­inu.

Magnús segir að ekk­ert land hafi kom­ist klakk­laust úr COVID. „Mánuðir líða og enn lætur veiran ekki deigan síga. Það er skrítið að hugsa að fyrir átta mán­uðum síðan gátu fáir ímyndað sér að veira myndi lama sam­fé­lög okkar, leggja hund­ruðir þús­unda að velli og stöðva ferða­lög um heim­inn. En við höfum á þessum átta mán­uðum líka lært ótal margt. Það hefur ekk­ert sam­fé­lag getað lifað klakk­laust með veirunni án þess að draga veru­lega úr öllum sam­skiptum, loka á sam­komur, draga úr skóla­haldi. Ef slíkt er ekki gert hefur þurft að horfa upp á búsifjar sem siðuð sam­fé­lög geta ekki sætt sig við,“ segir Magnús.

Hann minnir á góðan árangur Íslands um tíma. „Það hafa nokkur ríki náð ótrú­lega góðum árangri í að útrýma veirunni að minnsta kosti tíma­bundið. Við náðum þessum árangri, Nýja Sjáland, Færeyjar og all­nokkur önnur ríki. Það er mögu­legt. Andrýmið sem skap­að­ist við þennan árangur var áþreif­an­legt. Slíkt and­rými skiptir senni­lega mestu máli fyrir þá sem stjórna minnstu í sam­fé­lagi okkar, ungu kyn­slóð­ina sem sækir skóla, kyn­slóðin sem nær­ist meira á sam­skiptum en nokkrir aðrir. Andrýmið var einnig áþreif­an­legt þeim eldri, kyn­slóð­inni sem ein­angr­að­ist meira en nokkrir aðrir meðan sam­fé­lagið lok­að­ist,“ segir Magnús.

Hann segir mik­il­vægt að læra af reynsl­unni, sem hefur sýnt hætt­una af ferða­lögum í þessu ástandi. „Hér á landi höfum við borið þá gæfu að hafa safnað gögnum um hegðun veirunnar betur en margir aðrir. Við höfum safnað fleiri sýnum en flestir. Við höfum kafað ofan í ferða­lag veirunnar frá einum ein­stak­lingi til ann­ars, bæði með hjálp smitrakn­ingar og með því að skoða fingrafar veirunnar sjálfrar með aðferðum sam­einda­líf­vís­inda. Í dag vitum við að það er mögu­legt að skapa and­rými, að minnsta kosti tíma­bundið. Við vitum hvernig við getum ski­mað þá sem koma frá öðrum land­svæðum. Við vitum hver hættan er af ferða­lögum. Við vitum hve lúmsk veiran er og hve hæg­lega ein sýk­ing getur dreifst um allt. Þetta höfum við séð síð­ustu vikur. Við verðum því að bera gæfu til að læra af þess­ari þekk­ingu,“ segir Magnús.

Hann segir skelfi­legt að hugsa til afkomu­brests bæði í ferða­þjón­ust­unni og menn­ing­ar­starfi. Nú verði samt að hugsa um unga fólki sem og það eldra. „Nú er haustið að skella á. Skólar farnir af stað. Við stöndum nú frammi fyrir mik­il­vægum ákvörð­unum. Frelsi er hug­tak sem okkur öllum þykir vænt um. Ferða­frelsi er eins og annað frelsi; frelsi eins nær aldrei lengra en svo að það megi skaða frelsi ann­arra. Ferða­frelsi er líka það að geta farið úr húsi. Það er sorg­legt til þess að hugsa til þess að mik­il­væg störf í ferða­iðn­aði séu í hættu. En á sama tíma hafa tón­listar- og leik­hús­fólk þurft að horfa upp á hrun og tekju­leysi allt frá upp­hafi far­ald­ur­ins. Og við sem sam­fé­lag mun fátæk­ari að hafa ekki fengið að njóta þeirra,“ segir Magnús og heldur áfram:

„Nú skulum við hugsa um þá sem venju­lega stjórna ekki öllu í okkar sam­fé­lagi. Sköpum aðstöðu til að unga fólkið geti stundað skóla, hitt félaga sína og fengið að þroskast með eðli­legum hætti. Sköpum þá stöðu að þeir sem eru eldri eða hafa sjúk­dóma þurfi ekki að ótt­ast að hitta þá sem eru þeim kær­astir. Sköpum þá stöðu að við getum sem sam­fé­lag notið þess að njóta saman. Við allar ákvarð­anir, hvort sem þær byggja á hag­fræði­legum, lýð­heilsu­fræði­legum eða ein­hverjum öðru mæli­kvörðum skulum við láta vafann falla með þeim yngstu og elstu. Þetta mun líða hjá á end­anum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum