Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gott að starfa fyrir fyrirtæki sem lætur sig samfélags- og umhverfismál varða

Gott að starfa fyrir fyrirtæki sem lætur sig samfélags- og umhverfismál varða
Tinna Gunn­laugs­dóttir, vöru­merkja­stjóri hjá ÍSAM fyrir innocent á Íslandi. Mynd / Eyrún Jóns­dóttir.

Gott bragð, fersk­leiki og gæða­hrá­efni skýrir vax­andi vin­sældir innocent smoothies á Íslandi, að sögn vöru­merkja­stjóra hjá ÍSAM en innocent setti fyrr á árinu á markað nýja end­ur­bætta og umhverf­is­væna smoothies-vöru­línu sem hefur mælst vel fyrir meðal lands­manna.

„Bragðið ræður miklu. Fersk­leik­inn skiptir auð­vitað miklu máli í því sam­hengi og gott hrá­efni. Það gerir gæfumun­inn. Við vitum að fátt er meira hressandi en fersk­bland­aður ávaxta- og græn­metis-smoothie og fólk talar um að því finn­ist einmitt gott hvað þessir drykkir eru ferskir og góðir. Því líði eins og það sé að drekka nýbland­aðan smoothie,“ segir Tinna Gunn­laugs­dóttir, vöru­merkja­stjóri hjá ÍSAM fyrir innocent á Íslandi.

Endurbætt lína

Í sumar setti innocent á markað end­ur­bætta smoothies-vöru­línu sem Tinna segir Íslend­inga hafa tekið fagn­andi vegna fyrr­greindra ástæðna. „Bragð­teg­und­irnar eru sjö tals­ins, þar á meðal græni Anti­ox­idant-drykk­ur­inn sem er vin­sælastur hér­lendis, bleiki Energise sem nýtur næst­mestra vin­sælda og Into the Blue spirul­ina-drykk­ur­inn sem er sá þriðji sölu­hæsti úr vöru­lín­unni. Svo er hægt að fá sér smoothie með hafra­mjöli eða smoothie með góð­gerlum. Þeir eru allir fer­lega góðir og nær­ing­ar­ríkir,“ tekur hún fram og brosir.

„Við vitum að fátt er meira hressandi en fersk­bland­aður ávaxta- og græn­metis-smoothie og fólk talar um að því finn­ist einmitt gott hvað þessir drykkir eru ferskir og góðir. Því líði eins og það sé að drekka nýbland­aðan smoothie.“

Kælivara til að halda ferskleika

Að sögn Tinnu er þó ekki öll sagan þar með sögð því tvö­falt meira er nú af vítamínum í hverjum drykk, meira er af trefjum í flestum teg­undum og upp­færðar upp­skriftir inni­halda nú enn færri hita­ein­ingar, í mesta lagi 180 kalor­íur í hverri flösku.

innocent fæst í öllum helstu mat­vöru­versl­unum lands­ins.

„innocent setur aldrei við­bættan sykur í sína drykki, þetta eru bara hreinir ávextir og græn­meti og við­bætt vítamín. Það er erfitt að ætla að lengja geymslu­tím­ann með ein­hverjum hætti á sama tíma og varan þarf að halda fersk­leika. Því þarf að geyma flösk­urnar í kæli og þær hafa ekki mjög langan líf­tíma,“ útskýrir hún. „Það tryggir líka þetta góða bragð og þennan fersk­leika sem fólk seg­ist vera ánægt með og sæk­ist eftir.“

Umverfismál í fyrirrúmi

Bragðið er þó ekki eina sem vakið hefur góð við­brögð, Tinna segir að umhverf­is­vænni flöskur hafi líka hlotið góðir und­ir­tektir. „Fram­leið­endur innocent tóku ákvörðun um að nota plast í stað glers vegna þess að plastið er miklu létt­ara en gler, það er auð­veld­ara að flytja það og það brotnar ekki. Rann­sóknir sýna að kolefn­is­spor einnar plast­flösku er þrefalt minna en gler­flösku. Talan er enn lægri þegar plast er end­ur­unnið, en flösk­urnar sem við notum núna eru úr 50 pró­sent end­urunnu plasti og árið 2022 verður það 100 pró­sent end­ur­unnið. Hér ráða umhverf­is­sjón­ar­mið ferð­inni.“

„… innocent hefur sýnt sam­fé­lags­lega ábyrgð frá upp­hafi og gefur til dæmis 10 pró­sent af hagn­aði af hverri seldri flösku til góð­gerð­ar­mála og hefur gert það í rúm 15 ár.“

Samfélagsleg ábyrgð

Tinna Gunn­laugs­dóttir, vöru­merkja­stjóri hjá ÍSAM fyrir innocent á Íslandi, kveðst ánægð með að vera vöru­merkja­stjóri fyrir vöru­merki fyr­ir­tækis sem lætur sig sam­fé­lags- og umhverf­is­mál varða. Mynd / Eyrún Jóns­dóttir.

Er fyr­ir­tæk­inu annt um umhverfið? „Algjör­lega, innocent hefur sýnt sam­fé­lags­lega ábyrgð frá upp­hafi og gefur til dæmis 10 pró­sent af hagn­aði af hverri seldri flösku til góð­gerð­ar­mála og hefur gert það í rúm 15 ár. Fyrir utan það þá hringdu þeir hingað heim þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn stóð sem hæst og vildu vita hvar þörfin væri brýn­ust. Þá var tekin ákvörðun um að styrkja Kvenn­athvarfið,“ segir Tinna og kveðst ánægð með að vera vöru­merkja­stjóri fyrir vöru­merki fyr­ir­tækis sem lætur sig sam­fé­lags- og umhverf­is­mál varða.

Hún hvetur sem flesta til að fara inn á innocentfoundation.org, þar megi kynna sér betur þau verk­efni sem fyr­ir­tækið hefur verið að styrkja. „Svo hvet ég bara alla okkar við­skipta­vini til að huga að umhverf­inu og skila innocent-flösk­unum í næstu end­ur­vinnslu­stöð,“ bætir hún við og brosir.

ÍSAM í sam­starfi við Stúdíó Birtíng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur