Til að læra af þeim Covid aðgerðum sem ráðist hefur verið í hér á landi er gagnsæi nauðsynlegt. Um leið og þingmaður Pírata telur sóttvarnaryfirvöld hafa staðið sig vel í mikili óvissu telur Jón Þór Ólafsson mikilvægt að aðgerðir þeirra verði metnar.
Líkt og Mannlíf hefur greint frá eru vísbendingar um að sjálfsvígum hafi fjölgað í Covid-faraldrinum en þær byggjast á bráðabirgðatölum lögreglu og kunna að að breytast í höndum landlæknis næstu mánuði þegar skorið verður úr um dánarmein. Vísbendingar eru um að sjálfsvígstilfellum hér á landi hafi fjölgað um 67 prósent frá því í fyrra. Tölur gefa til kynna að fleiri hafi mögulega fallið fyrir eigin hendi í kórónuveirufaldrinum heldur en úr Covid-19.
Þeim hefur einnig fjölgað mjög tilfellunum þar sem fólk með sjálfsvígshugsanir leitar til Píeta samtakanna. Aukningin nemur rúmum 120 prósentum. Framkvæmdastjóri samtakanna segir skýrar vísbendingar uppi um fjölgun sjálfsvíga.
Einangrun leiðir til örvilnunar. Greint hefur verið frá því að metfjöldi hefur leitað sér aðstoðar vegna heimilisofbeldis í kórónuveirufaldrinum. Fólk er meira og minna aflokað og án samskipta við aðra en sína allra nánustu. Þá hafa tölur sýnt að áfengisneysla hefur aukist mjög í faraldrinum. Ferðamannaiðnaðurinn er í rúst. Listamenn eru margir hverjir á vonarvöl. Gríðarlegt atvinnuleysi er smám saman að færast yfir þjóðina í stærra mæli en nokkru sinni fyrr með tilheyrandi mannlegum harmleikjum.
Jón Þór og flokkur hans Píratar hafa kallað eftir því á Alþingi að sóttvarnaraðgerðir yfirvalda verði metnar. Hann segir það gott að yfirvöld séu byrjuð á þeirri vinnu að taka saman hvort og hve mikil aukning sjálfsvíga hefur verið vegna aðgerðanna. „Sóttvarnaryfirvöld hafa staðið sig mjög vel í mikilli óvissu og hafa kallað eftir að aðgerðir þeirra séu metnar. Til að læra af COVID aðgerðunum þarf gagnsæi, svo það er gott að yfirvöld séu að taka saman hvort og hve mikil aukning sjálfsvíga hefur verið vegna aðgerðanna. Félagsleg fjarlægð gerir líf okkar fátæklegra, sálfræðilega og fjárhagslega, svo málefnaleg umræða grundvölluð á gögnum er mikilvæg til að læra sífellt betur hvernig minnka megi skaðan af faraldrinum og viðbrögðunum við honum.“ segir Jón Þór.































Athugasemdir