Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Undirskriftarsafnanir hunsaðar: „Þetta er sorglegur listi“

Undirskriftarsafnanir hunsaðar: „Þetta er sorglegur listi“
Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson.

Gunnar Smári Egilsson, for­sprakki Sós­í­alista­flokks­ins, segir Íslend­ingum að vera ekki óþarf­lega bjart­sýnir þegar kemur að und­ir­skrift­ar­söfn­unum. Sagan sýni það skýrt hversu oft vilji stórs hluta þjóðar er ítrekað huns­aður af ráð­andi öflum.

Til að und­ir­strika þetta tók Gunnar Smári saman langan lista af huns­uðum und­ir­skrifta­söfn­unum. Það gerir hann á svæði flokks síns á Facebook. „Í ljósi þess að und­ir­skrifta­söfnun um nýja stjórn­ar­skrá er að klár­ast er fróð­legt að skoða tutt­ugu stærstu und­ir­skrifta­safn­an­irnar hingað til sam­kvæmt wikipediu (ég bætti við tveimur elstu) og hvaða áhrif þær höfðu. Til að fá sam­an­burð reikn­aði ég fjölda und­ir­skrifta sem hlut­fall af fólki á kosn­inga­aldri á hverjum tíma og svo hvað það hlut­fall merkir í dag í fjölda und­ir­skrifta,“ segir Gunnar Smári til útskýr­ingar á list­anum.

Stjórn­málafor­ing­inn seg­ist sjálfur hafa komið að tveimur und­ir­skrifta­stöfnum á list­anum og að það hafi verið ágætis reynsla. Aftur á móti segir hann ljóst að sú reynsla hafi ekki aukið trú sína á að svona bæna­bréfum til vald­hafa. Ef ekki væri fyrir fram­lag Ólafs Ragnars telur Gunnar Smári almennu regl­una þá að stjórn­mála­stéttin gefi ekk­ert fyrir und­ir­skrifta­safn­anir. „Þetta er sorg­legur listi. En list­inn yfir safn­anir sem hafa verið huns­aðar er miklu lengri, meira að segja sú sem meira en ⅓ kosn­inga­bærs fólks skrifað undir. Sem ekki ætti að koma okkur á óvart. Stjórn­mála­stétt sem hunsar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur tekur und­ir­skrifta­safn­anir í nefið. Mín skoðun er sú að kom­inn sé tími til að skipta út vald­inu, hrekja auð­valdið og sendi­tíkur þess frá völdum. Meðan þessi fyr­ir­brigði eru við völd verður vilji almenn­ings huns­aður, sama í hvaða formi hann birt­ist,“ segir Gunnar Smári.

Hér finnur þú svo listar Gunnars Smára yfir huns­aðar und­ir­skrifta­safn­anir hér á landi:

  1. Varið land, gegn brott­för hers­ins (1974): 44,2% eða ígildi 124.845 und­ir­skrifta í dag
    Herinn fór ekki fyrr en 2006 hvort sem þessi söfnun hafði áhrif eða ekki. En án efa styrkti hún stöðu her­náms­sinna og dró úr vægi her­stöðva­máls­ins ´ stjórn­mála­um­ræð­unni.
  2. Gegn beit­ingu breska rík­is­ins á hryðju­verka­lögum gegn Íslandi (2008): 35,4% eða ígildi 100.181 und­ir­skrifta í dag
    Ísland og íslensk fyr­ir­tæki voru tekin af list­anum en ólík­lega vegna þess­arar und­ir­skrifta­söfn­unar. Og reyndar er Ísland nú á gráum lista í dag vegna slæ­legra varna stjórn­valda gegn pen­inga­þvætti í fjár­mála­kerf­inu.
  3. Krafa um að 11% af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu renni í heil­brigð­is­mál (2016): 34,3% eða ígildi 96.944 und­ir­skrifta í dag
    Hvorki rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar né rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur sinntu þess­ari kröfu.
  4. Gegn flutn­ingi Reykja­vík­ur­flug­vallar úr Vatns­mýri (2013): 28,8% eða ígildi 81.336 und­ir­skrifta í dag
    Í gildi er samn­ingur milli ríkis og borgar um að flug­völl­ur­inn hverfi þegar skárri kostur finnst, svo ætla má að völl­ur­inn fari.
  5. Gegn Icesave-samn­ingi II (2010): 23,7% eða ígildi 66.936 und­ir­skrifta í dag
    Alþingi huns­aði þessa und­ir­skrifta­söfnun en Ólafur Ragnar Grímsson for­seti skaut mál­inu til þjóð­ar­innar sem felldi samn­ing­inn.
  6. Gegn Eyja­bakka­virkjun (1999): 22,9% eða ígildi 64.800 und­ir­skrifta í dag
    Ekki varð að Eyja­bakka­virkjun en Kára­hnjúkar voru virkj­aðir í stað­inn.
  7. Áskorun um áfram­hald ESB-við­ræðna (2014): 21,8% eða ígildi 61.652 und­ir­skrifta í dag
    Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar sinnti þessu á engan hátt.
  8. Gegn kvóta­setn­ingu á mak­ríl (2015): 21,5% eða ígildi 60.813 und­ir­skrifta í dag
    Frum­varp­inu var breytt en mak­ríll er í kvóta í dag
  9. Gegn sölu HS-orku til Magma Energy (2011) 19,7% eða ígildi 55.838 und­ir­skrifta í dag
    Þessi söfnun kom ekki í veg fyrir söl­una né áfram­hald­andi einka­væð­ingu orku­kerf­is­ins.
  10. Áskorun um að Faxaflói verði griðland hvala (2018): 18,8% eða ígildi 53.190 und­ir­skrifta í dag
    Þótt vernd­ar­svæðið hafi verið stækkað má enn veiða hvali í Faxaflóa
  11. Gegn EES-samn­ingum (1992): 18,8% eða ígildi 53.135 und­ir­skrifta í dag
    Rík­is­stjórn Davíðs Odds­sonar sinnti þessu á engan hátt. Vigdís Finn­boga­dóttir for­seti skrif­aði undir eftir að hafa íhugað að gera það ekki.
  12. Gegn Icesave-samn­ingi III (2011): 17,8% eða ígildi 50.368 und­ir­skrifta í dag
    Sama og varð­andi Icesave II: Alþingi huns­aði en Ólafur Ragnar skaut mál­inu til þjóð­ar­innar sem felldi samn­ing­inn.
  13. Gegn vega­tollum (2011): 17,4% eða ígildi 49.329 und­ir­skrifta í dag
    Ekkert varð að þessum fyr­ir­ætl­unum í kjöl­farið en nú hefur málið risið upp margeflt og stefnt er á umfangs­mikla vega­tolla á næst­unni.
  14. Krafa um að hætt verði við áætl­anir um virkj­anir á íslenska hálend­inu (2015): 17,0% eða ígildi 48.068 und­ir­skrifta í dag
    Margar virkj­anir á hálend­inu er enn í nýt­ing­ar­flokki og verða það áfram þótt hálend­is­þjóð­garður verði að veru­leika, en innan hans verður leyft að virkja.
  15. Krafa um leið­rétt­ingu stökk­breyttra lána og afnám verð­trygg­ingar (2012): 15,7% eða ígildi 44.520 und­ir­skrifta í dag
    Rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sinnti þessu á engan hátt.
  16. Gegn Fjöl­miðla­frum­varp­inu (2004): 15,0% eða ígildi 42.346 und­ir­skrifta í dag
    Rík­is­stjórn Davíðs Odds­sonar tók ekki mark á þess­ari söfnun en Ólafur Ragnar hafn­aði lög­unum und­ir­skrift. Davíð dró lögin til baka frekar en að leyfa þjóð­inni að fella þau í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.
  17. Gegn breyt­ingum á veiði­gjaldi (2013): 14,4% eða ígildi 40.742 und­ir­skrifta í dag
    Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar stóð við sitt gagn­vart útgerð­inni og tók ekki mark á þess­ari söfnun.
  18. Gegn Kana­sjón­varp­inu (1966): 13,9% eða ígildi 39.211 und­ir­skrifta í dag
    Söfnunin var í tengslum við stofnun Rík­is­sjón­varps­ins. Ári síðar var útsend­ingum Kana­sjón­varps­ins beint á haf út svo færri náðu að horfa.
  19. Gegn hval­veiðum (2013): 13,6% eða ígildi 38.544 und­ir­skrifta í dag
    Þótt hval­veiðar hafi ekki verið stund­aðar und­an­farin ár er það ekki vegna banns stjórn­valda heldur af mark­aðs­á­stæðum.
  20. Áskorun SÁÁ um að 10% af áfeng­is­gjaldi renni til vímu­varna (2013): 12,8% eða ígildi 36.208 und­ir­skrifta í dag
    Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra tók við und­ir­skrift­unum en gerði ekk­ert með þær.
  21. Krafa þess efnis að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segi af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far Panama­skjal­anna (2016): 12,0% eða ígildi 33.869 und­ir­skrifta í dag
    Sig­mundur sagði af sér áður en und­ir­skrifta­söfn­unin klárað­ist. Söfnunin var aðeins ein birt­ing­ar­mynd af and­styggð stórs hluta þjóð­ar­innar á fram­ferði hans og ann­arra ráð­herra, sem einnig voru í Panama­skjöl­unum. Vegna hins fræga við­tals beind­ist reiðin þó mest gegn Sigmundi.
  22. Gegn Kefla­vík­ur­samn­ingnum (1946): 10,8% eða ígildi 30.562 und­ir­skrifta í dag
    Rík­is­stjórn Ólafs Thors sinnti þessu á engan hátt.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum